Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Andri Broddason skrifar 22. október 2026 08:31 Cesc Fabregas og lærisveinar hans í Como unnu stórsigur á Manchester United í Meistaradeild Evrópu. Image Photo Agency/Getty Images Como vann stórsigur í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi þegar liðið vann Manchester United 4-1 á heimavelli. Cesc Fabregas þjálfari liðsins sagði leikmönnum sínum að minnka ákefðina og spara orku undir lok leiksins fyrir komandi leikjaálag.
Como er í fyrsta skipti að spila í Meistaradeild Evrópu og því er mikið leikjaálag á leikmönnum liðsins. Hópurinn er ekki mjög stór og því er mikilvægt að huga að orku leikmannanna. Fabregas fannst liðið vera með mikla stjórn á leiknum og því sagði hann leikmönnum liðsins að slaka á. “I TOLD THEM TO SLOW DOWN AT 4-0!” 😳 Cesc Fabregas admits Man Utd’s late goal hurt him https://t.co/UsKlpEqiZg— BeanymanSports (@BeanymanSports) October 21, 2026 Á blaðamannafundi eftir leik sagðist hann sjá eftir ákvörðuninni þar sem Manchester United náði að nýta tækifærið og skora undir lok leiks. Það hafði lítil áhrif á úrslitin þar sem Como var með 4-0 forystu fyrir markið en Fabregas var samt sár yfir því að hafa fengið á sig mark. „Ég er alltaf að segja við leikmennina að þeir eigi að berjast alveg fram að leikslokum og þetta mark særði mig. Það kom vegna þess að við minnkuðum ákefðina og hættum varnarvinnunni okkar en það var mér að kenna,“ sagði Fabregas og var gagnrýninn á sjálfan sig þrátt fyrir stórsigur. Como átti frábært tímabil á síðasta ári þar sem liðið endaði í fjórða sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar og er því mikil áskorun fyrir Fabregas að halda áfram góðu gengi. Hann virðist vera að gera það til að byrja með þar sem eftir sjö umferðir er liðið í fimmta sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar. Auk þess er liðið einu sæti frá því að fara beint áfram í 16-liða úrslit Meistaradeildarinnar þegar aðeins þrjár umferðir eru búnar. Fabregast hefur staðið sig vel sem þjálfari liðsins en það er enn nóg eftir af tímabilinu.
Meistaradeild Evrópu í fótbolta karla Manchester United Mest lesið Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Belgarnir láta Elísabetu fara Fótbolti Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Extraleikarnir: Nablinn og Tommi reyna fyrir sér í ballet Körfubolti Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United Fótbolti Svona missti Aron markið sögulega Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Er skrefareglan dauð í NBA? Körfubolti Fleiri fréttir Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM Sjá meira