Innlent

Tvö á einu raf­magns­hlaupa­hjóli og flutt á bráða­mót­töku

Bjarki Sigurðsson skrifar
Mynd úr safni og tengist frétt ekki beint.
Mynd úr safni og tengist frétt ekki beint. Vísir/Vilhelm

Tveir voru fluttir á bráðamóttöku í gær eða í nótt eftir að hafa dottið af rafmagnshlaupahjóli. Einstaklingarnir voru saman á einu hjóli og óskuðu eftir aðstoð lögreglu og sjúkrabíls. 

Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu þar sem farið er yfir verkefni embættisins frá fimm í gær til fimm í nótt. Slysið átti sér stað í umdæmi lögreglustöðvar 3 sem sinnir Kópavogi og Breiðholti. 

Einn var handtekinn í vesturhluta borgarinnar. Hann hafði verið stöðvaður í akstri og reyndist vera erlendur ríkisborgari sem gat ekki borið kennsl á sig. Hann er grunaður um sölu og dreifingu fíkniefna og var vistaður í fangaklefa. 

Tveir voru handteknir í austurhluta borgarinnar eftir að hafa verið stöðvaðir á bíl sem búið var að tilkynna stolinn. Þeir voru vistaðir í fangaklefa og ökumaðurinn er grunaður um akstur undir áhrifum fíkniefna. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×