Körfubolti

Elvar Már gaf ellefu stoð­sendingar í Evrópubikarnum

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Elvar Már Friðriksson gaf ellefu stoðsendingar en skaut bara fimm sinnum á körfuna.
Elvar Már Friðriksson gaf ellefu stoðsendingar en skaut bara fimm sinnum á körfuna. Getty/Jón Gautur

Elvar Már Friðriksson og félagar í Neptunas Klaipeda þurftu að sætta sig við tap í Evrópubikarnum, Euro Cup, í kvöld en íslenski bakvörðurinn mataði engu að síður félaga sína í kvöld.

Neptunas var á útivelli á móti Buducnost í Svartfjallalandi og tapaði með fimmtán stiga mun, 104-89.

Elvar Már var í byrjunarliði Neptunas og stoðsendingahæstur á vellinum með ellefu stoðsendingar á aðeins 26 mínútum. Elvar var einnig með átta stig og sex fráköst en hann hitti úr tveimur af fimm skotum sínum í leiknum.

Neptunas var komið níu stigum undir eftir fyrsta leikhluta, 31-22, og var komið fjórtán stigum undir í hálfleik, 56-42.

Neptunas hefur tapað þremur af fyrstu fjórum leikjum sínum í keppninni og er í sjöunda og næstsíðasta sæti í sínum riðli.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×