Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar 20. október 2026 19:01 Í Silfri mánudagsins var farið víða um stöðu heilbrigðismála, en ekki einu orði vikið að heimsins lengstu biðlistum barna og fullorðinna þegar kemur að ADHD greiningum. Tölur umboðsmanns barna um biðlista staðfesta að staðan heldur áfram að versna. Í nýlegri samantekt embættisins kom fram að hjá Geðheilsumiðstöð barna bíða 2705 börn eftir greiningu og hafa 2591 þeirra beðið lengur en þrjá mánuði. Frá því í febrúar hafa 252 börn bæst á listann. Börnum sem beðið hafa lengur en þrjá mánuði hefur fjölgað um 691. Hjá Ráðgjafar- og greiningarstöð eru 744 börn á biðlista, 697 þeirra hafa verið á lista í yfir þrjá mánuði. ADHD samtökin hafa lengi bent á aukna ásókn í greiningar vegna aukinnar meðvitundar og þekkingar á snemmtækri greiningu og íhlutun. Þá hafi samtökin einnig bent á að afkastageta stjórnvalda sé eins og lítil trilla, en í raun það þurfi til verksins skuttogara. Jafnvel þó hluti vandans kunni að snúast um manneklu, þá kjarnast hann á endanum um að aukið fjármagn þurfi til að auka afkastagetu. Þessi staða er fjarri séð ný af nálinni, heldur verið leyft að drabbast í áratugi. Löngu tímabært er að stjórnvöld stígi inn með öflugum hætti og geri skurk til úrbóta. Ekkert hálfkák, heldur markvissar aðgerðir sem skili árangri. Hvað varðar Geðheilsumiðstöð barna [GMB] er löngu vitað að mörg börn á biðlista þarfnist ítarlegri og tímafrekri greiningarvinnu, en um leið stór hluti sem að öllum líkindum glímir eingöngu við ADHD. Af og til hefur einskiptis fjármagni verið veitt til að starfsmenn GMB geti vísað hluta þess hóps til sjálfstætt starfandi barnalækna, sem hafi menntun og reynslu til að leysa hratt úr vanda þeirra barna. Lausn sem hefur reynst vel og mætti að ósekju auka stuðning við. Jafnvel mætti íhuga að útvíkka þá lausn til að dekka sjálfstætt starfandi aðila á borð við sálfræðistofuna Sól, sem er ekki í ósvipaðri stöðu og GMB. Til að mæta þörf fullorðinna einstaklinga, sem að óbreyttu mörg hver horfa upp á áratug ef ekki lengri bið, þarf einfaldlega að setja aukið fjármagn í rekstur ADHD teymis Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins. Kostnaðarmatið liggur að mestu fyrir og ráðamenn einungis eftir að bretta upp ermar. Eins þarf framkvæmdavaldið að fylgja eftir ákvörðun Alþingis varðandi niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu fyrir fullorðna, sem m.a. myndi auðvelda fólki að nýta sér þjónustu einkarekinna aðila á borð við geðlækningastofuna Per mentis. ADHD samtökin skora á stjórnvöld að leita allra leiða til að skera á þennan óásættanlega hnút, sem að lang mestu leyti megi rekja til vanfjármögnunar heilbrigiðskerfisins. Október er alþjóðlegur ADHD vitundarmánuður og sem slíkur kjörið tækifæri til að benda á hvað betur megi fara. Af því tilefni standa ADHD samtökin fyrir ýmsum viðburðum og öðru til að vekja athygli á málefnum tengdum ADHD. Hér heima lýkur átakinu með árlegu málþingi ADHD samtakanna undir yfirskriftinni „Þegar ADHD fylgir þér,“ sem haldið verður 30. Október í Veislusmáranum - Sporhamrar 3, 112 Reykjavík og í beinu streymi. 30. október. Höfundur er formaður ADHD samtakanna. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Vilhjálmur Hjálmarsson Heilbrigðismál Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun Skoðun Skoðun Af morðingjum og mannkostum Svala Magnea Ásdísardóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvar er karlmannadagurinn? Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Ekki orð um heimsins lengstu biðlista… Vilhjálmur Hjálmarsson skrifar Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar Skoðun Virkari eigandi og ný nálgun í stjórn Norðurorku Berglind Ósk Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hækkun matarverðs lífeyrisþega á undan innri úttekt Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun
Skoðun 75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson skrifar
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
75 milljóna rangfærsla í samþykktum ársreikningi Krabbameinsfélags Íslands Einar Páll Svavarsson Skoðun