Viðskipti innlent

Eggert ráðinn til Litla spítalans

Agnar Már Másson skrifar
Eggert Eyjólfsson er yfirmaður bráðalækniga hjá HSS.
Eggert Eyjólfsson er yfirmaður bráðalækniga hjá HSS. Samsett Mynd

Litli spítalinn ehf. hefur ráðið Eggert Eyjólfsson, yfirmann bráðalækninga á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja (HSS), til starfa. 

Eggert segir í samtali við Vísi að hann vonist þó til að vinna áfram sem læknir á HSS, þó í minna hlutfalli, samhliða störfum sínum sem læknir hjá Litla spítalanum.

Guðrún Ása Björnsdóttir, stofnandi fyrirtækisins, segir einnig við Vísi að Hilmar Kjartansson, fyrrverandi yfirlæknir bráðadeildar Landspítalans, muni stýra heilbrigðisstofnuninni en hann er í hópi þeirra sem hafa komið að stofnun Litla spítalans. 

Enn er uppi mikil óvissa um fjármögnun verkefnisins þar sem Alma D. Möller heilbrigðisráðherra hefur sagt að ekkert fjárhagslegt svigrúm sé hjá Sjúkratryggingum Íslands til að kaupa smáslysaþjónustu af Litla spítalanum. Ráðherrann sagði við Vísi á dögunum að hvorki hefði verið gerður samningur um kaup ríkisins á þjónustunni né gefið vilyrði um greiðsluþátttöku.

Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta í undirbúningi við Háaleitisbraut 68 í Reykjavík en honum er ætlað að brúa bil milli heilsugæslu og sjúkrahúsþjónustu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×