Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2026 22:32 Körfuboltadómararnir og kylfingarnir Bjarki Þór Davíðsson, Kristinn Óskarsson og Davíð Kristján Hreiðarsson. Dómarar í Bónus-deildinni í körfubolta kunna ýmislegt annað en að blása í flautuna og dæma körfuboltaleiki. Það sést meðal annars á nýrri færslu eins allra reyndasta körfuboltadómara landsins.
Kristinn Óskarsson vakti athygli á skemmtilegri staðreynd í færslu sinni á samfélagsmiðlum. Kristinn var að hefja sitt fertugasta tímabil sem körfuboltadómari fyrir Körfuknattleikssambandið og á dögunum dæmdi hann stórleik Vals og Grindavíkur í Bónus deild karla. Meðdómarar voru þeir Bjarki Þór Davíðsson og Davíð Kristján Hreiðarsson. Kristinn er á því að þeir félagar hafi sett nýtt heimsmet í þessum leik. „Þrír körfuboltadómarar sem dæma saman í efstu deild í sínu heimalandi — allir virkir kylfingar — með samanlagða golfforgjöf upp á aðeins 13,6. Ég er tilbúinn að veðja á að hvergi í heiminum hafi dómaratríó stigið inn á völlinn með lægri samanlagða golfforgjöf,“ skrifaði Kristinn. Kristinn hefur keppt á Íslandsmótinu í golfi og varð klúbbmeistari Golfklúbbs Sandgerðis fyrir nokkrum árum. Bjarki Þór er í Golfklúbbnum Oddi en hefur margsinnis unnið meistaramót Golfklúbbs Úthlíðar (GÚ) og hampað titlinum klúbbmeistari karla. Davíð Kristján er í Golfklúbbnum Keili (GK) í Hafnarfirði.
Bónus-deild karla Körfubolti Golf Mest lesið Áfall fyrir landsliðið: „Hef verið ælandi í nítján tíma“ Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Löng bið eftir sigri lengist enn Enski boltinn Sjáðu mörkin í enska: Alvöru hetjudáð og fallegasta mark tímabilsins? Enski boltinn Fór 27 hringi tíu vikum eftir barnsburð: „Magnað hvað líkaminn getur“ Sport „Hann kvartar yfir öllu“ Enski boltinn Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Fundu ekki Ísland og töpuðu síðan Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Haltraði af æfingu nokkrum dögum fyrir fyrsta leik tímabilsins Sextán ára stjarna Vals heillar Gamlar KR kempur létu ÍR hafa fyrir hlutunum Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Kane brást illa við gríni Valsarans Sindri áfram í sextán liða úrslit Elvar öflugur í spennutrylli „Mikil framför en því miður ekki nóg“ „Margt sem við þurfum að laga“ Uppgjörið: Valur - Grindavík 81-74 | Valur setti díselvélina í gang undir lokin Uppgjörið: Stjarnan - Höttur 98-103| Höttur knúði fram sigur á lokamínútunni Kane lendir um helgina Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Rekinn frá Stjörnunni „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Heill eða hálfur völlur: „Ekki bara upp og niður“ „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Uppgjörið: ÍR - Álftanes 88-119 | Álftanes keyrði yfir ÍR í seinni hálfleik Uppgjörið: KR - Njarðvík 84-73 | Vængbrotnir gestir brotlentu Jamil hjálpar íslenska landsliðinu Tindastóll - Ármann 109-86 | Áfram sigurganga þrátt fyrir áfall Uppgjörið: Keflavík - Sindri 106-90| Nýliðarnir kaffærðir í seinni hálfleik Drungilas tvífótbrotinn Flautuþristar og frábær tilþrif: „Hún er eins og jarðýta“ Sjá meira