Körfubolti

Hæsta stigaskorun í ellefu mánuði

Andri Broddason skrifar
Sigtryggur Arnar var stigahæstur í liði Tindastóls.
Sigtryggur Arnar var stigahæstur í liði Tindastóls. Vísir/Jón Gautur

Sigtryggur Arnar Björnsson, leikmaður Tindastóls, hefur byrjað frábærlega í Bónus-deild karla í körfubolta. Þegar tvær umferðir eru búnar er Sigtryggur Arnar með 17,5 stig að meðaltali í leik.

Sérfræðingar Sýnar Sport ræddu um byrjun Sigtryggs Arnars í Körfuboltakvöldi þar sem farið var yfir gengi Sigtryggs Arnars. Hann náði ekki að standa undir væntingum á síðasta tímabili en virðist ætla að bæta upp fyrir það.

Klippa: Körfuboltakvöld: Sigtryggur Arnar

„Menn töluðu um að hann væri ekki búinn að vera jafn góður og hann er búinn að vera í mörg, mörg ár. Við vitum samt hvað strákurinn getur og það er fínt að fá Ármann í heimsókn og koma sér í gang,“ sagði Benedikt Guðmundsson þegar hann var spurður út í gengi Sigtryggs Arnars.

Tindastóll vann leikinn örugglega þar sem hann endaði 109-86. Ármann hefur tapað báðum fyrstu leikjum liðsins á tímabilinu. Benedikt fannst frekar auðvelt fyrir Sigtrygg Arnar að skora stig gegn vörn Ármanns sem hjálpaði stiganýtingu hans.

Sigtryggur Arnar var stigahæsti leikmaður Tindastóls í leiknum með 21 stig og var þetta stigahæsti leikurinn hans í 11 mánuði. Það kom sérfræðingum virkilega á óvart þar sem 21 stig er ekkert sérlega hátt fyrir leikmenn í Bónus-deildinni.

Næsti leikur Tindastóls er gegn nýliðum Sindra og er því gullið tækifæri fyrir Sigtrygg Arnar að halda áfram stigaskorun sinni.

Umræðuna má sjá í heild sinni í spilaranum hér að ofan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×