Erlent

Hvetur til stillingar og boðar að­gerðir

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Frakklandsforseti hét stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni í óeirðum mótmæla í Frakklandi um helgina. Myndin er úr safni.
Frakklandsforseti hét stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni í óeirðum mótmæla í Frakklandi um helgina. Myndin er úr safni. Getty/Tacca

Emmanuel Macron Frakklandsforseti hefur hvatt mótmælendur til stillingar og róar vegna óeirða víða um Frakkland um helgina. Ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað.

Stúdentamótmæli hafa staðið yfir undanfarnar þrjár vikur þar sem námsmenn hafa krafist úrbóta í menntakerfinu og betri aðstæðna í skólum. Stjórnvöld segja stigmögnun hafa orðið í mótmælunum og þau orðið ofbeldisfull.

Hátt í sjötta hundrað þúsund mótmælenda tóku þátt í gær og hafa 2.400 verið handteknir. Í París hefur komið til harðra átaka milli mótmælenda og lögreglu sem hefur beitt táragasi á mannfjöldann. Sömuleiðis var kveikt í byggingum í París og brotist inn í verslanir. 

Samkvæmt frönskum stjórnvöldum hafa um þúsund lögreglumenn slasast, þar af sjö alvarlega.

Skýr greinarmunum á þeim sem krefjast breytinga og þeirra sem eyðileggja

Macron ávarpaði frönsku þjóðina í Élysée-höll í París og sagði að gera þyrfti skýran greinarmun á „réttmætum kröfum“ mótmælenda og þeirra sem “eyðilögðu, rústuðu og rændu.“ Hann ítrekaði að þeir sem ættu í hlut yrðu dregnir til ábyrgðar og að ekkert réttlæti það ofbeldi sem hafi átt sér stað. 

Fyrr í dag hélt Macron neyðarfund með háttsettum embættismönnum og sagðist hafa falið þeim, í samráði við héraðs-og borgarstjóra, að vernda borgir Frakklands, opinberar byggingar og fyrirtæki, segir í umfjöllun Le Monde. Óbærilegt væri að sjá götur borga Frakklands lagðar í rúst og hét hann stuðningi við fyrirtæki sem urðu fyrir tjóni. 

Greint hefur verið frá umfangsmiklum skemmdarverkum víða um Frakkland. EPA

Laurent Nuñez, innanríkisráðherra Frakklands, lagði einnig orð í belg og sagði mótmæli vera grundvallarrétt en að valda óreiðu með ofbeldi sé það ekki. 

„Að ráðast á lögreglu okkar og löggæslulið, beina spjótum sínum að stofnunum okkar, vinna skemmdir á opinberum byggingum, ryðjast inn í héraðsstjórnarskrifstofur eða ráðhús, ræna verslanir: ekkert getur réttlætt slíkt,“ skrifaði Nuñez á X fyrr í dag. 


Tengdar fréttir

Flúði táragas lögreglu í Nice

Einar Baldvin Brimar flúði táragas lögreglunnar í Nice í Frakklandi í gær á heimleið sinni af ströndinni. Hann sá fyrr um daginn mótmælendur safnast saman, friðsamlega, en á heimleið hafi mótmælin verið búin að harðna. 

Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille

Meira en 160 manns hafa verið handteknir víðs vegar um Frakkland á mótmælum sem fara fram víða um land. Hópur mótmælenda braust um stundarsakir inn í ráðhúsið í Marseille og kveiktu í ferðaskrifstofu í Lyon. Búist er við því að tugir þúsunda taki þátt í mótmælum gegn versnandi gæðum menntunar og háum framfærslukostnaði.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×