Innlent

Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið

Agnar Már Másson skrifar
Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu.
Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu.

Maðurinn sem lést í jeppaslysi á Gæsavatnaleið á föstudag hét Arnþór Örlygsson. Hann var fæddur 16. júní 1979. Hann lætur eftir sig eiginkonu, fjögur börn, stjúpson og barnabörn.

Lögreglan greinir frá þessu í færslu á Facebook.

Hinn 47 ára fjölskyldufaðir lést í slysi á Gæsavatnaleið norðan Vatnajökuls á föstudagskvöld. Hann var í tíu manna hópi en um var að ræða jeppaferð með starfsmönnum Kraftbíla. 

Slysið varð þegar hópurinn var að reyna að losa jeppa sem hafði fests í krapa.

Lögreglan sagði í tilkynningu í gær að ljóst hefði verið strax í upphafi að um alvarlegt slys væri að ræða og voru viðbragðsaðilar sendir á hæsta forgangi á vettvang. Björgunarsveitir hefðu flutt samferðafólk mannsins til Akureyrar þar sem áfallateymi Rauða krossins hefði veitt því áfallahjálp.

Framkvæmdastjóri Kraftbíla, sem var með í ferðinni, sagði við Vísi í dag að starfsmenn væru slegnir eftir harmleikinn. Minningu mannsins yrði haldið á lofti. 

„Við tökum einn dag í einu,“ sagði framkvæmdastjórinn við Vísi fyrr í kvöld. „Þetta er mjög sorglegt og það ríkti mikil gleði og eftirvænting fyrir þessari ferð,“ segir hann um starfsmannaferðina.

Lögregla fer með rannsókn málsins en hefur sömuleiðis upplýst rannsóknarnefnd samgönguslysa um slysið, að því er fram kom í tilkynningu lögreglu í gær.

Fréttin hefur verið uppfærð.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×