Handbolti

Reynir marka­hæstur í sigri Melsungen

Aron Guðmundsson skrifar
Reynir Þór Stefánsson í leik með Melsungen.
Reynir Þór Stefánsson í leik með Melsungen. Getty/Andrzej Iwanczuk

Íslenski landsliðsmaðurinn í handbolta, Reynir Þór Stefánsson var markahæsti leikmaður Melsungen í sigri liðsins gegn Bergischer í Íslendingaslag í þýsku úrvalsdeildinni í kvöld. Lokatölur urðu 33-26, Melsungen í vil .

Melsungen stjórnaði ferðinni í leik kvöldsins frá upphafi til enda og var Reynir Þór þar fremstur á meðal jafningja. 

Hann skoraði sex mörk, var markahæstur í liði Melsungen, og gaf tvær stoðsendingar. 

Sigur Melsungen sér til þess að liðið lyftir sér upp í fjórða sæti þýsku úrvalsdeildarinnar og er þar með ellefu stig.

Bergischer, sem spilar undir stjórn Arnórs Þórs Gunnarssonar er í fallsæti með aðeins tvö stig eftir átta leiki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×