Körfubolti

Elvar öflugur í spennutrylli

Aron Guðmundsson skrifar
Elvar Már Friðriksson átti flottan leik.
Elvar Már Friðriksson átti flottan leik. Getty/Jón Gautur

Íslenski landsliðsmaðurinn í körfubolta, Elvar Már Friðriksson, skoraði fimmtán stig er lið hans Neptunas vann eins stigs sigur gegn Jonava í algjörum spennutrylli í litáensku deildinni í dag.

Liðin skiptust á að vera með forystuna í leik dagsins en þegar líða tók á fjórða og síðasta leikhlutann virtist lið Jonava ætla að fara með sigur úr býtum.

Elvar Már og hans liðsfélagar neituðu hins vegar að gefast upp. Eftir að hafa verið átta stigum undir með rétt tæpar sjö mínútur eftir af leiknum, sneru þeir honum sér í vil og unnu að lokum dramatískan eins stigs sigur, 84-83 með sigurkörfu sem kom fjórum sekúndum fyrir leikslok. 

Elvar var með stigahæstu leikmönnum Neptunas með fimmtán stig í leik dagsins. Þá gaf hann einnig tvær stoðsendingar. 

Með sigrinum færist liðð upp í 3.sæti litáensku deildarinnar. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×