Erlent

Segja hálfa milljón hafa tekið þátt

Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar
Táragasi hefur verið beitt og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu.
Táragasi hefur verið beitt og til átaka hefur komið milli mótmælenda og lögreglu. Getty

Franskir menntaskólanemendur héldu áfram mótmælum í dag og kalla nú eftir stuðningi háskólanema og gulvestunga þar sem haustfrí skólanna nálgast. Innanríkisráðuneytið telur 161.500 hafa mótmælt á landsvísu en samtök nemenda segja þátttakendur hafa verið 480 þúsund.

Le Monde greinir frá því að hvatt sé til þátttöku í víðtækari mótmælum laugardaginn 17. október. Ólíkt mati yfirvalda segja nemendasamtökin þátttöku hafa aukist lítillega frá þriðjudeginum í síðustu viku.

Eins og Vísir fjallaði um fyrir helgi beinast mótmælin meðal annars að kennaraskorti, yfirfullum kennslustofum og skólahúsnæði í niðurníðslu. Þá höfðu stjórnvöld boðað þrjú þúsund afleysingakennara til að bregðast við ástandinu en mótmælendur töldu þær aðgerðir ekki nægja.

Greta mætti til stuðnings

Greta Thunberg heimsótti í morgun Paul-Éluard-menntaskólann í Saint-Denis, norðan Parísar, til að sýna nemendum stuðning. Skólinn var í fremstu röð í upphafi mótmælaöldunnar.

Innanríkisráðuneytið gerir ráð fyrir 160 þúsund mótmælendum.Getty

Samkvæmt umfjöllun Reuters fóru mótmælin að mestu friðsamlega fram en til átaka kom meðal annars í París, Lyon, Strasbourg og Nantes. Lögregla beitti táragasi og hluti mótmælenda grýtti lögreglu og vann skemmdarverk. Í Lyon var mótmælaganga stöðvuð eftir að hópur fólks fyrir framan meginkröfugönguna réðst á verslanir og bensínstöð og lenti í áflogi við lögreglu.

Langir skóladagar ofarlega á blaði

Stjórnvöld hafa jafnframt leitað eftir ábendingum nemenda á sérstökum samráðsvef. Í samantekt Le Monde á rúmlega sextíu þúsund ábendingum frá 6. til 8. október kemur fram að skipulag skóladagsins sé algengasta umkvörtunarefnið.

Um sjötíu prósent ábendinganna vörðuðu meðal annars langa skóladaga, eyður í stundatöflum, mikla heimavinnu og stutt matarhlé. Ástand skólabygginga og hitastig í þeim komu næst, en einnig var kvartað undan kennaraskorti og fjölmennum bekkjum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×