Viðskipti innlent

Vilja setja 25 ára þak á verð­tryggð lán frá ára­mótum

Birgir Olgeirsson skrifar
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneytið áformar að setja 25 ára þak á lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána frá næstu áramótum.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra. Ráðuneytið áformar að setja 25 ára þak á lánstíma nýrra verðtryggðra húsnæðislána frá næstu áramótum. Vísir/Anton Brink

Verðtryggð húsnæðislán verða almennt ekki veitt til lengri tíma en 25 ára frá næstu áramótum. Áformin taka til nýrra lánveitinga og gera ekki ráð fyrir að eldri lán verði stytt.

Þetta kemur fram í áformum fjármála- og efnahagsráðuneytisins og frummati á áhrifum þeirra. Markmiðið er að minnka vægi verðtryggingar og gera vaxtabreytingar Seðlabankans áhrifaríkari.

Breytingin myndi einkum ná til lánveitinga lífeyrissjóða. Þeir veittu 96 prósent af heildarfjárhæð nýrra verðtryggðra lána til 30–40 ára á fyrri helmingi ársins.

Undanþágur enn óútfærðar

Engin sérstök undanþága vegna endurfjármögnunar eldri lána er tilgreind í gögnunum. Heimila á undanþágur frá 25 ára þakinu fyrir hluta lánveitinga, en stærð þess hlutfalls og skilyrðin eru ótilgreind.

Seðlabankinn á að hafa eftirlit með reglunum. Einnig á að takmarka önnur lán þar sem vextir eða kostnaður safnast reglulega á höfuðstólinn.

Greiðslurnar geta hækkað

Ráðuneytið telur 25 ára þakið eitt og sér ekki breyta því hvort fólk standist greiðslumat. Þar er þegar reiknað með að hámarki 25 ára lánstíma verðtryggðra lána, þótt samið sé um lengra lán.

Mánaðarlegar greiðslur geta samt hækkað þegar lánið þarf að greiðast hraðar niður.

Í einföldu reiknidæmi væri mánaðargreiðsla af 30 milljóna króna jafngreiðsluláni með 3,5 prósenta vöxtum um 116 þúsund krónur til 40 ára en um 150 þúsund til 25 ára. Verðbætur og gjöld eru undanskilin.

Vanskilahætta ekki reiknuð

Frummatið viðurkennir að verðtryggð lán geti jafnað greiðslubyrði og dregið úr greiðsluerfiðleikum þegar vextir hækka. Ráðuneytið telur þó að minna vægi verðtryggingar geti dregið úr vaxtasveiflum og leitt til lægra húsnæðisverðs en ella.

Matinu fylgir engin töluleg greining á því hversu mörg heimili þurfi að greiða meira eða hvaða áhrif það hafi á vanskilahættu.

Þá getur höfuðstóll verðtryggðra lána áfram hækkað. Fullyrðing ráðuneytisins um að 25 ára lán vaxi ekki yfir tólf mánaða tímabil byggir á 3,5 prósenta vöxtum og 2,5 prósenta verðbólgu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×