Sport

Dag­skráin í dag: Ís­lands­meistararnir fara í Vestur­bæinn

Andri Broddason skrifar
Bæði Njarðvík og KR hafa byrjað vel í deildinni.
Bæði Njarðvík og KR hafa byrjað vel í deildinni. Anton/Vísir

Eftir viðburðarríka helgi er engin pása tekin á sportrásum Sýnar. Einn leikur fer fram í ensku úrvalsdeildinni í fótbolta og fjórir leikir fara fram í Bónus-deild kvenna í körfubolta.

Mikið var um að vera í ensku úrvalsdeildinni um helgina og er aðeins einn leikur eftir af umferðinni. Nýliðarnir í Coventry fá Newcastle í heimsókn í kvöld þar sem heimamennirnir náðu sínum fyrsta sigri rétt fyrir landsleikjahlé. Newcastle hefur ekki átt góða byrjun í deildinni eftir að hafa misst marga lykilleikmenn deildarinnar en getur þó tengt sigra saman í kvöld. Leikurinn hefst klukkan 18:40 á Sýn Sport.

Þriðja umferð Bónus-deildar kvenna hefst í dag þar sem deildin er gríðarlega spennandi til að byrja með. Allir leikirnir í kvöld byrja klukkan 19:05 og má búast við hörkuleikjum. Í Vesturbænum tekur KR á móti Íslandsmeisturum Njarðvíkur á Sýn Sport Íslands og þar má búast við miklum gæðum. Á Sýn Sport Ísland 2 taka Haukar á móti Stjörnunni, á Sýn Sport Ísland 3 tekur Keflavík á móti Fjölni og á Sýn Sport Ísland 4 tekur Tindastóll á móti Grindavík. 

Það verður nóg um að vera í kvöld fyrir sportþyrsta áhorfendur og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×