Nýtt flóð í Nepal hreif með sér brýr og hús Smári Jökull Jónsson skrifar 11. október 2026 14:33 Flóðið í dag er annað hamfaraflóðið í Nepal á innan við tveimur mánuðum. Vísir/Getty Fimm er saknað og um fimmtíu var bjargað eftir skyndiflóð í ánni Budhi Gandaki í Nepal. Á myndbandi sést þar sem flóðið ryður niður húsum og brú úr vegi sínum en um fimmtán hundruð létust í flóðum í landinu í síðasta mánuði.
Flóðið hreif með sér hús og brýr auk þess að valda skemmdum á hluta vatnsaflsvirkjunar að sögn yfirvalda. Um fimmtíu manns hefur verið bjargað af bökkum Budhi Gandaki-árinnar í Gorkha-héraði í miðhluta landsins og er fimm saknað. Á myndbandi af flóðinu sést þegar vatnsflaumurinn æðir niður dal og hrífur með sér heila húsaþyrpingu. MORE FOOTAGE OF THE debris-laden flood has surged through the Budhi Gandaki River at Salleri in Gorkha, carrying mud, sediment and rocks downstream. The sudden flood has affected parts of the Manaslu region, Nepal, while authorities continue assessing the situation and possible damage.— Rahul Shivshankar (@RShivshankar) October 11, 2026 Flóðið skall á þegar fjölskyldur bjuggu sig undir fyrsta dag Dashain-hátíðarinnar sem er ein mikilvægasta hátíð ársins í Nepal. Hafa fjölskyldur neyðst til að flýja heimili sín og margir vita ekki hvar þær geta fengið öruggt skjól eða nauðsynjar. Að sögn almannavarnarstofnunar Nepal hreif flóðið með sér tólf hús og nokkrar hengibrýr. Á einum stað hækkaði vatnsborð árinnar á örfáum klukkustundum úr tveimur metrum í tæplega átta og hálfan metra að sögn yfirvalda. Terrifying scenes from Gorkha, Nepal! 🇳🇵 The Budhi Gandaki River surged with such force that the Soti Khola bridge near Arughat was swept away today. 😱 When a river turns this powerful, even solid infrastructure can stand no chance. Prayers for everyone affected. 🙌🏼 https://t.co/fd0Oh2buuN— The Modern Himachal (@themodernhp) October 11, 2026 Í ágúst varð gríðarlegt jökulhrun í Nepal sem olli fordæmalausum skyndiflóðum. Um 150 þúsund manns létust í þeim flóðum og er þúsunda enn saknað. Sérfræðingar telja þó að flóðið nú sé mun minna og hafi farið hægar fram en hamfaraflóðin í ágúst. Orsök flóðsins eru enn óljós en sumir telja að skriða hafi um tíma stíflað ána eða þverá hennar með þeim afleiðingum að uppsafnað vatn braust fram. Hjálparsamtökin Save the children hafa sent neyðarteymi á vettvang og segja að samfélög á svæðinu hafi ekki haft tækifæri til að standa á fætur á nýjan leik eftir flóðin í ágúst.
Nepal Náttúruhamfarir Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Innlent Fleiri fréttir Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sjá meira