Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Samúel Karl Ólason skrifar 8. október 2026 17:55 Með þessum aðgerðum á að draga úr verðbólgu, svo hægt sé að lækka vexti en í senn halda markmiðum um hallalaus fjárlög á næsta ári. Vísir/Vilhelm Ríkið, sveitarfélög og atvinnulífið ætla að taka höndum saman til að ná niður verðbólgu svo vextir geti lækkað. Til þessa verður gripið til ýmissa aðgerða og reynt að halda aftur af hækkunum á opinberum gjöldum, vörum og þjónustu eins og auðið er. Krónutölugjöld sem hafa áhrif á vísitölu munu til að mynda ekki hækka um meira en 2,5 prósent, að kílómetragjaldi undanskildu, og á það sama við þær gjaldskrár ríkisstofnana sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs. Þetta er meðal þess sem kemur fram í tilkynningu frá ríkisstjórninni, Alþýðusambandi Íslands, Samtökum atvinnulífsins og Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í tilkynningu frá Stjórnarráðinu segir að til að ná markmiðum samningsins og tryggja að hann skili árangri muni þessir aðilar sem að honum koma leggjast sameiginlega á árarnar til þess að ná niður verðbólgu og skapa aðstæður fyrir lækkun vaxta. Nefndar eru sex aðgerðir sem fara á í: Sameiginlegar aðgerðir stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 um meira en 2,5%, að kílómetragjaldi undanskildu vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja. Gjaldskrár ríkisstofnana sem bein áhrif hafa á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Ríkið mun jafnframt beina þeim tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu að gæta að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl. hvetur sambandið sveitarfélög til að hækka ekki almennar gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á árinu 2027. Sérstaklega verði horft til gjaldskráa sem eru undir beinni stjórn sveitarstjórna. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum og gæta í því efni að markmiðum Stöðugleikasamningsins. Síðastliðið sumar var að störfum vinnuhópur um styrkingu launatölfræði sem skilaði niðurstöðum sínum til Þjóðhagsráðs 3. september sl. Aðilar að samkomulaginu eru sammála um að ráðast skuli í heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum. Stjórnvöld munu hefja undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga á íslenskum vinnumarkaði strax á árinu 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá og með 2027. Með þessu mun skapast mun heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað en með núverandi fyrirkomulagi. Á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sl. voru jafnframt kynntir valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Aðilar að samkomulaginu munu ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga, m.a. á grundvelli þeirra valkosta sem þar voru kynntir. Í áðurnefndri tilkynningu segir einnig að samhliða þessu muni ríkisstjórnin grípa til margvíslegra aðgerða sem eiga að stuðla að efnahagslegum og félagslegum stöðugleika, tryggja uppbyggingu hagkvæms húsnæðis, tryggja réttarbætur fyrir launafólk og leigjendur og létta byrðar á atvinnulífinu. Þetta á að gera á sama tíma og halda á því markmiði að skila hallalausum fjárlögum árið 2027. Enn fremur segir í tilkynningunni að ríkisstjórnin beini þeim tilmælum til stofnana og fyrirtækja ríkisins að gæta aðhalds í launaákvörðunum og hækka ekki laun umfram hækkanir í kjarasamningum. Þá eru sveitarfélög og fyrirtæki á almennum markaði hvött til að gæta samskonar aðhalds. Auk þeirra aðgerða sem fram koma í sameiginlegri yfirlýsingu ríkisstjórnar, ASÍ, SA og SÍS mun ríkisstjórnin ráðast í eftirfarandi aðgerðir án tafar. Meðal annars stendur til að heimila ríkissjóði að fjármagna tímabundið stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar á almennum íbúðum. Gera á breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga, bregðast við vaxandi atvinnuleysi og ýmislegt annað. Allar tillögurnar má sjá hér að neðan: Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að heimila ríkissjóði að fjármagna tímabundið stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar á almennum íbúðum. Gert er ráð fyrir að úrræðið taki strax gildi og vari út árið 2027. Markmiðið er að fjölga á skömmum tíma hagkvæmum íbúðum innan almenna íbúðakerfisins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu almenna íbúðakerfisins. Með þessu gerir ríkið það sem það getur til að standa við þau fyrirheit sem gefin voru við undirritun Stöðugleikasamningsins. Samhliða framlengist forgangsregla þess efnis að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjármagns sem til úthlutunar er hverju sinni renni til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignalágum leigjendum á vinnumarkaði og vari út árið 2027. Við lögbundna heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins mun ríkisstjórnin sérstaklega horfa til þess hvernig megi fjölga leiguíbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði fyrir tekjulægri hópa á vinnumarkaði og auka skilvirkni kerfisins þannig að staðinn verði vörður um þau meginmarkmið að tryggja húsnæðisöryggi og sjálfbærni almenna íbúðakerfisins til framtíðar. Í því skyni verður meðal annars farið yfir fyrirkomulag og úthlutun stofnframlaga. Þróun barnabóta verður komið í fastar skorður til að stuðningur við barnafólk haldist stöðugur milli ára, í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Í því skyni verður lagt fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2027 um að stuðningur við barnafjölskyldur með barnabótum þróist með sama hætti milli ára og gildir um þrepamörk í tekjuskattskerfinu. Miðað er við að þetta fyrirkomulag taki gildi frá og með árinu 2028. Fram að því verður framlag ríkisins til barnabóta í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði frá árinu 2024 sem kallar á hækkun á fjárhæðum og skerðingamörkum barnabótakerfisins með lagabreytingu á haustþingi 2026. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að settur verði skýrari rammi um heimildir aðila leigusamnings til að semja, við gerð leigusamnings, um reglubundnar breytingar leigufjárhæðar á samningstíma. Breytingarnar hafa það að markmiði að stuðla að stöðugleika og auknum fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða. Lagt er til að mánaðarleg vísitölutenging leigufjárhæðar, bæði vegna útleigu á íbúðarhúsnæði eða öðru húsnæði sem leigt er til íbúðar, verði óheimil og að áskilið verði að a.m.k. 12 mánuðir líði milli hækkana á leigufjárhæð. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga, að höfðu samráði við helstu hagaðila á leigumarkaði. Markmiðið er að styrkja réttarvernd leigjenda og leigusala, skýra reglur um meðferð tryggingarfjár, einfalda kröfu- og uppgjörsferla og auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu trygginga. Jafnframt er stefnt að því að fyrirbyggja ágreining og fækka málum sem berast kærunefnd húsamála. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geri greiningu á þróun húsnæðisstuðningskerfa fyrir eigendur húsnæðis. Niðurstöður liggi fyrir vorið 2027. Samtímis verður starfi starfshóps um nýtt húsnæðislánakerfi hraðað. Ráðist verður í sérstakt átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur verða mótaðar í sérstökum samráðshópi ríkis og aðila vinnumarkaðarins og liggi fyrir í janúar 2027. Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur verður jafnframt rædd á sama vettvangi og hugsanlega endurvakin í nýrri mynd. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks samkvæmt kjarasamningi. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags. Frumvarpið markar kaflaskil í baráttunni gegn félagslegum undirboðum hér á landi með því að kveða á um einstaklingsbundinn rétt til févítis á vangreidd lágmarkskjör. Breytingin muni sérstaklega styrkja stöðu viðkvæmra hópa á vinnumarkaði og um leið stuðla að heilbrigðara samkeppnisumhverfi fyrirtækja. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa undanfarið ár rætt og rýnt með hvaða hætti fyrirkomulagi örorkutrygginga verður best við komið með það að markmiði að jafna réttindaávinnslu til ellilífeyris milli lífeyrissjóða, koma í veg fyrir víxlverkun og núning milli kerfa og auka snemmbæran stuðning til að koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Niðurstaða þeirrar rýni er að greina áfram og útfæra hugmyndina um stofnun nýs örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins. Stjórnvöld styðja þá nálgun sem aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt til grundvallar við mótun ramma um örorkubótasjóð og skuldbinda sig til að styðja við áframhaldandi þróun á hugmyndum og útfærslu sjóðsins með það að markmiði að framtíðarlausn finnist eins fljótt og auðið er. Viðræðunefnd aðila sem starfandi hefur verið mun í því miði skipa sérfræðihóp sem hefja mun störf í október 2026 og skila niðurstöðum sínum eigi síðar en 1. mars 2027. Þar til viðunandi framtíðarlausn finnst verður viðhaldið núverandi fyrirkomulagi til að draga úr víxlverkun og framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða. Vinna við smíði frumvarps um innleiðingu keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum verður hafin haustið 2026. Starfshópur á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins verði settur á fót með fulltrúum frá ASÍ og SA sem skila mun ráðherra drögum að lagafrumvarpi eigi síðar en 1. mars 2027. Stefnt er að framlagningu frumvarps á Alþingi að hausti sama ár. Stjórnvöld, í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, vinni fyrir lok árs 2026 viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir sem miði að því að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Frumvarp um endurskoðun á lögum um Ábyrgðarsjóð launa verður unnið í samstafi við aðila vinnumarkaðsins. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, 2 milljarða króna mælist verðbólga yfir 4,0% eða 3 milljarða króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5% á þeim tímapunkti. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér að lágmarkskjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði falli ekki niður vegna tómlætis. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags. Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira
Sameiginlegar aðgerðir stjórnvalda og aðila vinnumarkaðarins. Ríkið mun ekki hækka krónutölugjöld sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs á árinu 2027 um meira en 2,5%, að kílómetragjaldi undanskildu vegna kerfisbreytingar á gjaldtöku ökutækja. Gjaldskrár ríkisstofnana sem bein áhrif hafa á vísitölu neysluverðs munu ekki hækka umfram 2,5% á árinu 2027. Ríkið mun jafnframt beina þeim tilmælum til fyrirtækja í sinni eigu að gæta að verðstöðugleika með því að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. Í samræmi við ályktun landsþings Sambands íslenskra sveitarfélaga 25. september sl. hvetur sambandið sveitarfélög til að hækka ekki almennar gjaldskrár sínar um meira en 2,5% á árinu 2027. Sérstaklega verði horft til gjaldskráa sem eru undir beinni stjórn sveitarstjórna. Sveitarfélög munu jafnframt hvetja fyrirtæki í sinni eigu til að leita allra leiða til að hækka ekki gjaldskrár opinberrar þjónustu sem hafa bein áhrif á vísitölu neysluverðs umfram 2,5% á árinu 2027. Samtök atvinnulífsins hvetja aðildarfyrirtæki sín til að leita allra leiða til að halda aftur af verðhækkunum og gæta í því efni að markmiðum Stöðugleikasamningsins. Síðastliðið sumar var að störfum vinnuhópur um styrkingu launatölfræði sem skilaði niðurstöðum sínum til Þjóðhagsráðs 3. september sl. Aðilar að samkomulaginu eru sammála um að ráðast skuli í heildarsöfnun launaupplýsinga frá launagreiðendum. Stjórnvöld munu hefja undirbúning að heildarsöfnun launaupplýsinga á íslenskum vinnumarkaði strax á árinu 2026 og tryggja fjármögnun verkefnisins frá og með 2027. Með þessu mun skapast mun heildstæðari upplýsingagrunnur um íslenskan vinnumarkað en með núverandi fyrirkomulagi. Á fundi Þjóðhagsráðs 3. september sl. voru jafnframt kynntir valkostir til að draga úr sjálfvirkum verðbreytingum. Aðilar að samkomulaginu munu ráðast í aðgerðir til að draga úr vægi sjálfvirkra verðbreytinga, m.a. á grundvelli þeirra valkosta sem þar voru kynntir.
Aðgerðir ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að heimila ríkissjóði að fjármagna tímabundið stofnframlög sveitarfélaga til uppbyggingar á almennum íbúðum. Gert er ráð fyrir að úrræðið taki strax gildi og vari út árið 2027. Markmiðið er að fjölga á skömmum tíma hagkvæmum íbúðum innan almenna íbúðakerfisins og tryggja áframhaldandi uppbyggingu almenna íbúðakerfisins. Með þessu gerir ríkið það sem það getur til að standa við þau fyrirheit sem gefin voru við undirritun Stöðugleikasamningsins. Samhliða framlengist forgangsregla þess efnis að a.m.k. tveir þriðju hlutar þess fjármagns sem til úthlutunar er hverju sinni renni til íbúða sem ætlaðar eru tekju- og eignalágum leigjendum á vinnumarkaði og vari út árið 2027. Við lögbundna heildarendurskoðun almenna íbúðakerfisins mun ríkisstjórnin sérstaklega horfa til þess hvernig megi fjölga leiguíbúðum með viðráðanlegum húsnæðiskostnaði fyrir tekjulægri hópa á vinnumarkaði og auka skilvirkni kerfisins þannig að staðinn verði vörður um þau meginmarkmið að tryggja húsnæðisöryggi og sjálfbærni almenna íbúðakerfisins til framtíðar. Í því skyni verður meðal annars farið yfir fyrirkomulag og úthlutun stofnframlaga. Þróun barnabóta verður komið í fastar skorður til að stuðningur við barnafólk haldist stöðugur milli ára, í samræmi við stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar. Í því skyni verður lagt fram frumvarp eigi síðar en á haustþingi 2027 um að stuðningur við barnafjölskyldur með barnabótum þróist með sama hætti milli ára og gildir um þrepamörk í tekjuskattskerfinu. Miðað er við að þetta fyrirkomulag taki gildi frá og með árinu 2028. Fram að því verður framlag ríkisins til barnabóta í samræmi við yfirlýsingu stjórnvalda í tengslum við kjarasamninga á almennum markaði frá árinu 2024 sem kallar á hækkun á fjárhæðum og skerðingamörkum barnabótakerfisins með lagabreytingu á haustþingi 2026. Lagt verður fram frumvarp á haustþingi 2026 sem felur í sér að settur verði skýrari rammi um heimildir aðila leigusamnings til að semja, við gerð leigusamnings, um reglubundnar breytingar leigufjárhæðar á samningstíma. Breytingarnar hafa það að markmiði að stuðla að stöðugleika og auknum fyrirsjáanleika um leiguverð milli mánaða. Lagt er til að mánaðarleg vísitölutenging leigufjárhæðar, bæði vegna útleigu á íbúðarhúsnæði eða öðru húsnæði sem leigt er til íbúðar, verði óheimil og að áskilið verði að a.m.k. 12 mánuðir líði milli hækkana á leigufjárhæð. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 um breytingar á fyrirkomulagi húsaleigutrygginga, að höfðu samráði við helstu hagaðila á leigumarkaði. Markmiðið er að styrkja réttarvernd leigjenda og leigusala, skýra reglur um meðferð tryggingarfjár, einfalda kröfu- og uppgjörsferla og auka fyrirsjáanleika um endurgreiðslu trygginga. Jafnframt er stefnt að því að fyrirbyggja ágreining og fækka málum sem berast kærunefnd húsamála. Stjórnvöld og aðilar vinnumarkaðarins geri greiningu á þróun húsnæðisstuðningskerfa fyrir eigendur húsnæðis. Niðurstöður liggi fyrir vorið 2027. Samtímis verður starfi starfshóps um nýtt húsnæðislánakerfi hraðað. Ráðist verður í sérstakt átak í einföldun regluverks til að létta byrðar í atvinnurekstri og draga úr kostnaðarþrýstingi. Tillögur verða mótaðar í sérstökum samráðshópi ríkis og aðila vinnumarkaðarins og liggi fyrir í janúar 2027. Ráðgjafarnefnd um opinberar eftirlitsreglur verður jafnframt rædd á sama vettvangi og hugsanlega endurvakin í nýrri mynd. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér viðurlög við brotum á lágmarkskjörum launafólks samkvæmt kjarasamningi. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags. Frumvarpið markar kaflaskil í baráttunni gegn félagslegum undirboðum hér á landi með því að kveða á um einstaklingsbundinn rétt til févítis á vangreidd lágmarkskjör. Breytingin muni sérstaklega styrkja stöðu viðkvæmra hópa á vinnumarkaði og um leið stuðla að heilbrigðara samkeppnisumhverfi fyrirtækja. Aðilar vinnumarkaðarins og stjórnvöld hafa undanfarið ár rætt og rýnt með hvaða hætti fyrirkomulagi örorkutrygginga verður best við komið með það að markmiði að jafna réttindaávinnslu til ellilífeyris milli lífeyrissjóða, koma í veg fyrir víxlverkun og núning milli kerfa og auka snemmbæran stuðning til að koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Niðurstaða þeirrar rýni er að greina áfram og útfæra hugmyndina um stofnun nýs örorkubótasjóðs vinnumarkaðarins. Stjórnvöld styðja þá nálgun sem aðilar vinnumarkaðarins hafa lagt til grundvallar við mótun ramma um örorkubótasjóð og skuldbinda sig til að styðja við áframhaldandi þróun á hugmyndum og útfærslu sjóðsins með það að markmiði að framtíðarlausn finnist eins fljótt og auðið er. Viðræðunefnd aðila sem starfandi hefur verið mun í því miði skipa sérfræðihóp sem hefja mun störf í október 2026 og skila niðurstöðum sínum eigi síðar en 1. mars 2027. Þar til viðunandi framtíðarlausn finnst verður viðhaldið núverandi fyrirkomulagi til að draga úr víxlverkun og framlagi ríkisins til að jafna örorkubyrði lífeyrissjóða. Vinna við smíði frumvarps um innleiðingu keðjuábyrgðar í stærri verklegum framkvæmdum verður hafin haustið 2026. Starfshópur á vegum félags- og húsnæðismálaráðuneytisins verði settur á fót með fulltrúum frá ASÍ og SA sem skila mun ráðherra drögum að lagafrumvarpi eigi síðar en 1. mars 2027. Stefnt er að framlagningu frumvarps á Alþingi að hausti sama ár. Stjórnvöld, í samstarfi við aðila vinnumarkaðarins, vinni fyrir lok árs 2026 viðbragðsáætlun gegn vaxandi atvinnuleysi með áherslu á aukinn stuðning og virkar vinnumarkaðsaðgerðir sem miði að því að draga úr langtímaatvinnuleysi og koma í veg fyrir brotthvarf af vinnumarkaði. Frumvarp um endurskoðun á lögum um Ábyrgðarsjóð launa verður unnið í samstafi við aðila vinnumarkaðsins. Mælist ársverðbólga í lok október 2027 yfir 3,8% verða greiddar einskiptisvaxtabætur til skuldsettra heimila í upphafi árs 2028 upp á 1,3 milljarða króna, 2 milljarða króna mælist verðbólga yfir 4,0% eða 3 milljarða króna ef ársverðbólgan mælist yfir 5% á þeim tímapunkti. Lagt verður fram frumvarp eigi síðar en á vorþingi 2027 sem felur í sér að lágmarkskjör launafólks á íslenskum vinnumarkaði falli ekki niður vegna tómlætis. Með lágmarkskjörum kjarasamninga er átt við öll þau laun og starfskjör sem hverjum starfsmanni ber samkvæmt þeim kjarasamningi sem um starf hans gildir, meðal annars á grundvelli starfs, starfsaldurs, starfsreynslu, vinnutíma og vinnufyrirkomulags.
Kjaramál Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Verðlag Skattar, tollar og gjöld Mest lesið Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Erlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Innlent Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Innlent Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur Innlent Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Erlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Innlent Fleiri fréttir Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Kryddsíldin fagnar fjörutíu ára afmæli Skoða tengsl milli gerenda og fórnarlambsins í Breiðholti Feðgar verið handteknir í tengslum við rannsókn á manndrápi Nálar í hrekkjavökunammi reyndust vera hrekkur „Það var engu bætt inn í samninginn sem sneri að tölulegum þáttum“ Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Andlát í Breiðholti til rannsóknar Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Einar og Sanna mæta á Sprengisand og ræða uppsagnir Spörkuðu, hræktu og létu öllum illum látum Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Eldur í fjölbýli í Norðlingaholti Nota allar leiðir til þess að smygla fíkniefnum Samþykkja tillögu Ástráðs Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Sjá meira