Innlent

Krist­rún og Þor­gerður sækja ekki Hring­borð norðurslóða

Birgir Olgeirsson skrifar
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra.
Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. Vísir/Viktor Freyr

Hvorki Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra né Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra sækir þing Hringborðs norðurslóða sem haldið er í Hörpu dagana 8. til 10. október. Fréttastofa hefur fengið staðfest að hvorug þeirra verði viðstödd.

Kristrún tók þátt á ráðstefnunni í fyrra en hefur ekki tök á því vegna annarra skuldbindinga, að sögn aðstoðarmanns hennar. Þá áttu bæði Kristrún og Þorgerður fund með Marco Rubio utanríkisráðherra Bandaríkjanna í vikunni. Varnarsamstarf og öryggi á Norðurslóðum voru meðal umræðuefna heimsóknarinnar. Á blaðamannafundi þeirra lagði Rubio áherslu á mikilvægi Íslands fyrir öryggi svæðisins.

Halla Tómasdóttir forseti Íslands og Jóhann Páll Jóhannsson umhverfisráðherra verða meðal þátttakenda á aðalsviði þingsins.

Meðal erlendra ráðherra á dagskránni eru Anita Anand, utanríkisráðherra Kanada, Múte Bourup Egede, utanríkisráðherra Grænlands, og Bjørnar Selnes Skjæran, sveitarstjórnar- og byggðamálaráðherra Noregs.

Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, er formaður Hringborðs norðurslóða. Þingið fer fram í Hörpu dagana 8. til 10. október.Vísir/Vilhelm

Musadik Masood Malik, loftslagsráðherra Pakistans, er einnig á dagskrá, auk Beinis Johannesen, lögmanns Færeyja, og Jozefs Síkela, sem fer með alþjóðlegt samstarf í framkvæmdastjórn Evrópusambandsins.

Á þinginu verður meðal annars fjallað um öryggismál á Norðurslóðum, loftslagsbreytingar, orkumál og siglingar. Jóhann Páll tekur þátt í umræðum með loftslagsvísindamanninum Johan Rockström um mögulegt hrun hafstraumahringrásarinnar í Atlantshafi og áhrif þess á þjóðaröryggi. Katrín Jakobsdóttir, fyrrverandi forsætisráðherra, stýrir umræðunum.

Halla mun ræða gervigreind og áhrif hennar á samfélagið við Tristan Harris, sem hefur fjallað um samfélagsáhrif tækninnar.

Samkvæmt Ásdísi Ólafsdóttur, framkvæmdastjóra Hringborðsins, er búist við rúmlega tvö þúsund þátttakendum frá yfir sjötíu löndum. Um sjö hundruð ræðumenn taka þátt í yfir tvö hundruð málstofum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×