Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Árni Sæberg skrifar 2. október 2026 11:37 Frá vinstri: Helgi Magnús Hermannsson, Elís Árnason og Jóhannes Birgir Skúlason. Þeir Helgi Magnús og Jóhannes Birgir keyptu veitingarekstur af Elísi árið 2024 og myndin var tekin af því tilefni. Elís segist aldrei hafa fengið greitt. Aðsend Skiptum er lokið á þrotabúi Veislunnar ehf., sem rak samnefnda veisluþjónustu á Seltjarnarnesi um árabil. Ekki ein einasta króna fékkst upp í kröfur, sem námu tæpum 216 milljónum króna. Ekki er langt síðan greint var frá mörg hundruð milljóna króna gjaldþrotum félaga í eigu Helga Magnúsar Hermannssonar, sem einnig átti Veisluna.
Í auglýsingu þess efnis í Lögbirtingablaðinu segir að með úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur, uppkveðnum 14. maí 2025, hafi þrotabú Veislunnar verið tekið til gjaldþrotaskipta. Skiptum hafi verið lokið þann 30. september 2026, án þess að greiðslur fengjust upp í lýstar kröfur, sem hafi verið að fjárhæð 215.786.494 króna. Slóð gjaldþrota Eigandi Veislunnar, Helgi Magnús Hermannsson, hefur komið að rekstri fjölda veitingastaða í gegnum tíðina, oftast í félagi við Jóhannes Birgi Skúlason. Vísir fjallaði um gjaldþrot tveggja félaga sem voru í eigu þeirra í ágúst síðastliðnum. Annars vegar var um félagið OL Restaurant & Sportbar ehf. að ræða en lýstar kröfur í þrotabú þess námu 167 milljónum króna. Félagið rak kaffihúsið Adesso til fjölda ára í Smáralind og Sport & Grill um nokkurra ára skeið í sömu verslunarmiðstöð. Eigandi þeirra staða seldi þeim Helga og Jóhannesi félagið árið 2024 og þeir opnuðu TGI Fridays þar sem Sport & Grill hafði verið. Tvö í tengslum við Grillhúsið Hitt félag þeirra Helga og Jóhannesar sem skiptum lauk á nýverið var Búsendi ehf. Það hét áður Grillhúsið ehf. en þeir keyptu Grillhúsið árið 2024. Félagið rak þá samnefnda staði á Laugavegi og Sprengisandi í Reykjavík. Samkvæmt auglýsingu í Lögbirtingablaðinu námu kröfur í búið alls 208 milljónum króna, án þess að nokkuð fengist upp í þær. Framangreind gjaldþrot eru ekki þau einu sem tengjast viðskiptafélögunum. Skiptum á þrotabúi Tanksins ehf., sem hélt um tíma utan um eignarhald þeirra á TGI Fridays og Grillhúsinu, lauk í júní í fyrra. Þá fékkst ekkert upp í 277 milljóna kröfur.
Gjaldþrot Seltjarnarnes Mest lesið Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Viðskipti innlent Fréttamaður missti af strætónum til baka Neytendur Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Viðskipti innlent Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag Viðskipti innlent „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Viðskipti innlent Þegar svona sprengja springur vill allur vinnustaðurinn „fá allt á hreint“ Atvinnulíf Gapti þegar hún sá heimilisbókhaldið hjá Röggu nagla Neytendur Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Viðskipti innlent Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Viðskipti innlent Man varla fundinn í gær: Starfsfólk heldur jafnvel að það sé að fá Alzheimer Atvinnulíf Fleiri fréttir 181 starfsmanni sagt upp í sex hópuppsögnum Enn eitt gjaldþrot Helga: Ekkert í boði í Veislunni Kaupir Malbiksstöðina á fimm milljarða Tuttugu sagt upp í fiskvinnslu í Reykjanesbæ Borga hálfan milljarð í viðbót fyrir indverskt félag „Hlutir sem við vorum ekki sammála um“ Hörður hættir sem forstjóri Landsvirkjunar Bein útsending: Ársfundur Samtaka atvinnulífsins Enn lækkar Ísland í nýsköpunarvísitölunni Boðaði til starfsmannafundar og mætti í stjórnarráðið Helgi í Góu greiðir sér 130 milljónir Opna fljótlega fyrir umsóknir vegna ráðstöfunar séreignar Magnús er nýr sviðsstjóri ráðgjafarsviðs KPMG Spá óbreyttum vöxtum Minnsta hlutabréfavelta frá faraldursárinu 2020 Magnús leiðir Stofnun atvinnuveganna Samherji selur Margréti til Færeyja Afgreiðsla launakrafna Play fyrirhuguð 16 mánuðum eftir fallið Vaxtahækkunarferli lokið en langt í lækkun Ekki sjái fyrir endann á uppsögnum Þrotabú Play krefur Einar um skaðabætur Verðbólga í tveggja ára hámarki eftir að skattalækkun rann út Telja gagnaver skila litlum ávinningi í Noregi Á áttunda tug starfsmanna Netapp sagt upp Verðbólga ekki meiri í tvö ár Högnuðust um milljarð Rúmlega tuttugu sagt upp hjá ÍAV Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð Uppsagnir í Arion banka Loka Krambúðinni á Húsavík Sjá meira