Sport

Óðinn heim í KR

Stefán Árni Pálsson skrifar
Óðinn er kominn aftur í KR-treyjuna
Óðinn er kominn aftur í KR-treyjuna Mynd/KR

Óðinn Bjarkason hefur skrifað undir þriggja ára samning við KR en þetta kemur fram í tilkynningu frá félaginu í morgun.

Óðinn, sem er uppalinn KR-ingur, spilaði með Aftureldingu í Lengjudeildinni á nýafstöðnu tímabili og skoraði 14 mörk. Óðinn hefur leikið 4 leiki fyrir KR og skorað í þeim þrjú mörk.

„Við bjóðum Óðin velkominn heim og hlökkum til að fylgjast með honum vaxa og dafna í KR-treyjunni á næstu árum,“ segir í tilkynningu KR en Óðinn er fæddur árið 2006 og er orðinn tvítugur.

KR-ingar festu kaup á Mattíasi Kjeld á dögunum frá Gróttu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×