Viðskipti innlent

Á áttunda tug starfs­manna Netapp sagt upp

Smári Jökull Jónsson skrifar
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu.
NetApp er fjölþjóðlegt fyrirtæki sem sérhæfir sig í gagnageymslu og skýþjónustu. Vísir/Getty

Öllum starfsmönnum Netapp á Íslandi hefur verið sagt upp en Vísir greindi frá því upphafi mánaðarins að starfsemi fyrirtækisins hér á landi væri í uppnámi og óvissa um störf. Sjötíu og fimm starfsmenn störfuðu á skrifstofu Netapp á Íslandi.

Í samtali við Vísi staðfesti Hrönn Guðmundsdóttir, stjórnarformaður Netapp á Íslandi, að búið væri að segja starfsfólki upp en vísaði að öðru leyti á almannatengsladeild fyrirtækisins. Fréttastofa hefur sent fyrirspurn á fyrirtækið um málið.



NetApp á Íslandi er dótturfélag NetApp BV í Hollandi sem aftur er dótturfélag NetApp í Bandaríkjunum. Hagnaður NetApp á Íslandi nam rúmum 600 milljónum króna og eigið fé tæpum 1,9 milljörðum í lok apríl í fyrra.

Fá uppsagnarfrest greiddan auk sérstakrar greiðslu

Viðræður um starfslok hafa staðið yfir síðustu vikurnar eftir að tilkynnt var um að starfsemin hér á landi yrði lögð niður. Völdu starfsmenn sér fulltrúa í samninganefnd þar sem samið var um ákvæði starfslokasamninga.

Samkvæmt heimildum Vísis felur starfslokasamningurinn í sér þriggja mánaða uppsagnarfrest auk sérstakrar starfslokagreiðslu. Þá var samið við einhverja starfsmenn um að vinna áfram fyrir fyrirtækið í ákveðinn tíma við yfirfærslu verkefna.

Einnig stóð starfsmönnum til boða að flytjast til Írlands eða Bandaríkjanna og starfa áfram fyrir Netapp þar en voru fáir ef einhverjir sem þáðu það boð.

Starfsemi íslenska félagsins fólst í að rannsaka, þróa og markaðssetja hugbúnað fyrir NetApp eins og Azure NetApp Files og Google Cloud NetApp Volumes.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×