Viðskipti innlent

Hannes Þór, Hannes Þór og Allan greiða sér 100 milljónir í arð

Áróra L Davíðsdóttir skrifar
Hannes Þór Arason, Allan Sigurðsson og Hannes Þór Halldórsson eru stofnendur og eigendur framleiðslufyrirtækisins Atlavík. Í maí 2026 bættist Ingimar Guðbjartsson í eigendahóp fyrirtækisins.
Hannes Þór Arason, Allan Sigurðsson og Hannes Þór Halldórsson eru stofnendur og eigendur framleiðslufyrirtækisins Atlavík. Í maí 2026 bættist Ingimar Guðbjartsson í eigendahóp fyrirtækisins. KAZUMA TAKIGAWA

Framleiðslufyrirtækið Atlavík hagnaðist um 98,4 milljónir árið 2025. Lagt er til að arðgreiðslur nemi hundrað milljónum í ár. Kemur þetta fram í ársreikningi félagsins Atlavík ehf.

Árið 2025 greiddi félagið sér 20 milljónir í arð og árið þar áður 10 milljónir.

Rekstrartekjur félagsins námu 355 milljónum og rekstrargjöld 233 milljónum árið 2025. Eftir skatta og önnur gjöld var hagnaðurinn rúmar 98 milljónir samanborið við rúmar 23 milljónir árið 2024.

Stofnendur og hluthafar Atlavíkur eru þeir Hannes Þór Halldórsson, leikstjóri og fyrrverandi markaður íslenska landsliðsins í knattspyrnu, og Allan Sigurðsson, einnig leikstjórar og framleiðendur.

Eigið fé félagsins hækkaði um 78 milljónir milli ára og er nú 102 milljónir samanborið við rúmar 24 milljónir árið áður.

Fjöldi starfsmanna miðað við heilsársstörf var þrír og félagið greiddi rúmar 33 milljónir í laun samanborið við 26 milljónir árið 2024.

Fyrirtækið hefur á undanförnum árum komið að framleiðslu og leikstjórn einhverju vinsælasta sjónvarpsefni landsins. Þar má nefna Áramótaskaupið 2025 og stendur til að fyrirtækið sjái aftur um framleiðslu Skaupsins í ár. Þar að auki hefur Atlavík framleitt sjónvarpsefni á borð við IceGuys, Bannað að hlæja og Boltamömmur.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×