Aðeins samningaviðræður geti leyst deiluna Smári Jökull Jónsson skrifar 28. september 2026 06:40 Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran og Donald Trump Bandaríkjaforseti. Vísir/Getty Stjórnvöld í Íran segja að deilan við Bandaríkin og Ísrael verði aðeins leyst með diplómatískum leiðum. Þetta kom fram í máli Abbas Araghchi utanríkisráðherra Íran í gær, degi eftir að Donald Trump lýsti því yfir að hann hafi hafnað tillögu Írana um að opna Hormússund og binda enda á átökin.
Íranir kynntu tillöguna á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna í New York í síðustu viku en hún var send til Bandaríkjastjórnar í gegnum sáttasemjara frá Katar. Að sögn Araghchi hefði samkomulag hrundið af stað sjö daga niðurtalningu að opnun sundsins og hléi á átökum á svæðinu. Í kjölfarið hefðu stríðsaðilar getað hafið víðtækari viðræður um málefni sem allir samþykktu, þar á meðal hugsanlega kjarnorkuáætlun Írana. Araghchi sagði skilyrði Írana skýr og að öll skref í átt að opnun sundins væru háð því að þau yrðu uppfyllt. Trump tilkynnti hins vegar í gær að hann hefði hafnað tillögunni og sagði hana óásættanlega. Tók hann svo til orða að Írönsk stjórnvöld hafi viljað „gera samning þar sem þau opni sundið strax vegna þess að Íranir væru að tapa svo illa“ segir í umfjöllun Reuters. Trump hélt dyrunum þó opnum og sagði í símaviðtali við miðlinn Axios í gær að hann byggist við frekari viðræðum samningamanna Bandaríkjanna í vikunni. Mike Waltz, sendiherra Bandaríkjanna hjá Sameinuðu þjóðunum, sagði í viðtali við CNN að í tillögunni væri þess krafist að refsiaðgerðum yrði aflétt strax og frystar eignir Íranar leystar úr haldi. Íranir hefðu viljað fá allt fyrirfram gegn loforði um viðræður. Trump treysti því hins vegar ekki að þeir kæmi til leiks í góðri trú og myndu í raun vilja semja um endalok kjarnorkuáætlunarinnar. Stríðið á örlagaríku stigi Masoud Pezeshkian Íransforseti sagði í viðtali við CBS að Íranar væru tilbúnir að ræða kjarnorkuáætlunina og önnur mál, en myndu ekki sætta sig við þvinganir. Íran væri ekki að sækjast eftir stríði en muni verjast þrýstingi, hótunum og árásum. Bandaríkin hafa sett Íran í efnahagslega herkví til að þrýsta á stjórnvöld í Teheran að hætta árásum á skip í Hormússundi. Þær hafa dregið verulega úr skipaumferð um sundið, þótt Trump haldi því ítrekað fram að Bandaríkin hafi stjórn á því. Amir Hatam, yfirmaður íranska hersins, sagði stríðið á afgerandi og örlagaríku stigi. Íran myndi ekki sætta sig við að geta ekki átt í viðskiptum á meðan erlend ríki nýttu mikilvægar siglingaleiðir á svæðinu. Var haft eftir honum í ríkismiðli Íran að ef Íranir geti ekki átt í viðskiptum eða lifað, þá fái það enginn. Ræddu við Sáda í New York Stríðið hófst 28. febrúar með árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran. Síðan þá hefur skipst á með hléum og nýjum árásum og en þúsundir hafa fallið og herafli Írana veikst sem og efnahagur landsins. Þá hefur Írönum og bandamönnum þeirra tekist að dreifa árásunum um Persaflóa og hafa verið gerðar dróna- og eldflaugaárásir á bandamenn Bandaríkjanna við Persaflóa. Hútar í Jemen, sem nóta stuðnings frá Íran, hafa ráðist á Sádi-Araba. Hafa þær árásir haft áhrif á olíuútflutning Sáda um Rauðahaf. Sádar sendu út tilkynningu til foreldra barna í höfuðborginni Riyadh um að kennsla færi fram í fjarnámi alla vikuna. Íranir ræddu við Sáda um Hormússund í viðræðunum í New York í síðustu viku. Trump hefur sagt að eitt hans helsta markmið sé að koma í veg fyrir að Íran eignist kjarnorkuvopn sem og binda enda á getu landsins til að ráðast á nágranna sína. Vill Trump skapa aðstæður sem gætu leitt til þess að Íranar steypi eigin ráðamönnum af stóli.
Árásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran Bandaríkin Íran Sádi-Arabía Jemen Mest lesið Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Kapphlaupið hafið og hann hafi áhyggjur af öryggi þeirra minni Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent „Þetta er ákall“ Innlent „Þetta er algjörlega óviðunandi“ Innlent Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Innlent Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Sjá meira