Ekki sé verið að normalísera hraða: „Beina áhættuhegðun úr umferðinni“ Aron Guðmundsson skrifar 23. september 2026 09:30 Willum Þór Þórsson er forseti Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands. vísir / ÍVAR Willum Þór Þórsson, forseti ÍSÍ, vill taka á ofsaakstri í umferðinni með því að nýta akstursíþróttir sem forvörn gegn slíkri áhættuhegðun. Með því sé ekki verið að normalísera hraðakstur. „
Almennt gildir um íþróttir að þær eru besta forvörn sem völ er á og draga almennt úr áhættuhegðun,“ sagði Willum í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í gær. „Meiningin í þessu er að við snúum bökum saman hjá ÍSÍ og Akstursíþróttasambandinu og félögunum fyrst og fremst sem halda utan um þessar keppnir á þeim svæðum þar sem eru sérstakar brautir til þess. Öryggismenningin er til staðar og viðbúnaður og við viljum beina áhættuhegðuninni, áhættuakstrinum, úr umferðinni af vegunum og inn á brautir sérstaklega til þess ætlaðar. „Þetta eru sérútbúnir bílar og fyllsta öryggis er gætt. Það eru hjálmar, hlífðarbúnaður og hlífðarskór. Þú ert festur niður í sætið,“ segir Willum sem sótti nýverið bikarmót í rallýkrossi. „Þar fékk ég að stíga inn í bíl hjá Daníel Sigurðssyni, margföldum Íslandsmeistara. Hann var þar á sérútbúnum bíl. Ég ætla að segja ykkur það, drengir, að ég hef ekki fengið svona adrenalín í æð í langan tíma þannig að að einhverju marki skilur maður þessa áhættusækni. Þetta er alveg ofboðslegt en ég var öruggur allan tímann.“ Forvarnargildi íþrótta felist í grunninn í því að starfsemin sé skipulögð. „Þar er öryggið í fyrirrúmi. Það er aðstaða sem býður upp á það að fræða og þjálfa og ala á þessari öryggismenningu þegar unga fólkið okkar er að læra að virða hraðann og áhættuna sem í því felst og gæta fyllsta öryggis. Það eru sjálfboðaliðar og þjálfarar, þeir eru virkir þátttakendur.“ Hættuleg blanda? En þú ert að tala þarna um að fá útrás fyrir að keyra hratt og ætla svo að keyra heim eftir að hafa keyrt svona hratt. Við erum ekki að senda krakka í fótbolta til að spila minni fótbolta eftir æfingu. Þau spila bara meiri fótbolta eftir æfingu. Er þetta ekki hættuleg blanda sem við erum að búa til þarna? Er þarna verið að normalísera hraðann? „Alls ekki. Af því þú nefnir aðrar íþróttagreinar þá er lykilatriði í öllum rannsóknum sem draga þetta fram, sem ég var nú að þylja upp, skipulagða starfið. Hinn frjálsi leikur er auðvitað góður og gildur, en það á ekkert við um allar greinar. Eins og í bardagaíþróttum, þar sem öryggis- og hlífðarbúnaður er og keppnisreglur verja fólkið, að þú ferð og þar er lögð áhersla á að þú sért ekki að beita þeim brögðum bara úti á götu sko. Það sama gildir um þetta en þarna erum við að beina þessu inn í öryggið. Beina þessari áhættuhegðun inn í öryggið. Þetta gildir raunverulega um allar íþróttir, þetta skipulagða starf. Það er það sem skilur á milli.“ Viðtalið við Willum Þór Þórsson, forseta ÍSÍ, í Reykjavík síðdegis í gær má hlusta á í heild sinni í spilaranum hér ofar í fréttinni.
Akstursíþróttir Umferðaröryggi Umferð Slysavarnir ÍSÍ Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Sport „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Sport Kane brást illa við gríni Valsarans Körfubolti „Þetta var allt of mikið“ Fótbolti Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Enski boltinn Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sport Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Íslenski boltinn Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Fótbolti Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Enski boltinn Fleiri fréttir Elvar markahæstur en Donni fagnaði sigri Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum „Dómarinn var að gera sitt besta og þetta var hans besta“ Sjáðu lygilegt mark Brighton frá miðju Thelma skoraði í toppslag og titillinn blasir við Tryggvi stóð í ströngu gegn stórliði Real Madrid Leeds - Manchester United | Halda vandræði Manchester-manna áfram? Stefán Ingi skoraði af stysta mögulega færi „Þess vegna hafði ég mjög miklar áhyggjur fyrir þetta hlaup“ Fékk innilegt knús alla pásuna: „Höldum áfram þessari helvítis vitleysu“ Sjáðu skalla Manzambi og öll mörkin og rauðu spjöldin Sjáðu mark Sveindísar sem fer á kostum í Bandaríkjunum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu „Þetta var allt of mikið“ Dagskráin í dag: Veisla frá morgni fram á nótt FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Mögnuð Mari nýtti hverja einustu sekúndu Kane brást illa við gríni Valsarans Nokkuð viss um að Íslandsmetið verði slegið Reynir markahæstur í sigri Melsungen Kærkominn sigur KA/Þór Manzambi reyndist hetja Aston Villa Tár féllu í Bakgarðshlaupinu FH gekk frá Fram í seinni hálfleik Sindri áfram í sextán liða úrslit „Kyngjum þessum leik og klárum hann sem fyrst“ „Þetta er akkúrat staðan sem við vildum vera í“ Sandra með tíu í sætum sigri á Fram en Haukar halda flugi Ólafur hafði betur í Íslendingaslag Elvar öflugur í spennutrylli Sjá meira