Grindavík var ekki svartur svanur Snorri Birgisson skrifar 23. september 2026 08:31 Í umræðunni um eldgosin við Grindavík hefur því verið haldið fram að atburðarásin sé dæmi um svartan svan. Það er skiljanlegt að slíkt hugtak komi upp þegar horft er til umfangs atburðanna, óvissunnar og þeirra afleiðinga sem fylgdu. En það þýðir ekki endilega að hugtakið eigi vel við. Færa má sterk rök fyrir því að Grindavík hafi ekki verið svartur svanur heldur þekkt áhætta sem varð að veruleika með mun alvarlegri og flóknari hætti en hægt var að sjá fyrir. Hugtakið „svartur svanur“ varð þekkt með bók Nassims Nicholas Taleb árið 2007. Hann notaði það um atburði sem falla utan þess sem eðlilegt er að búast við miðað við þá þekkingu sem liggur fyrir, hafa mjög miklar afleiðingar og eru síðan gjarnan skýrðir eftir á eins og þeir hafi alltaf verið augljósir. Það er fyrst og fremst þessi fyrsti þáttur sem veldur því að mér finnst Grindavík ekki falla vel að hugtakinu. Frá árinu 2020 höfðu jarðvísindamenn fylgst með kvikusöfnun, landrisi og jarðhræringum við Þorbjörn og víðar á Reykjanesskaga. Gos hófst í Fagradalsfjalli árið 2021 og fleiri gos fylgdu. Það var því löngu orðið ljóst að eldvirkni var hafin á ný á svæðinu og að frekari kvikuhreyfingar væru raunverulegur möguleiki. Þegar kvikugangur myndaðist undir Grindavík í nóvember 2023 var bærinn rýmdur áður en eldgos hófst. Sú ákvörðun byggðist einmitt á því að hættan var þekkt og fylgst var með þróun hennar. Enginn vissi auðvitað nákvæmlega hvernig atburðirnir myndu þróast. Ekki var hægt að segja fyrir um að kvikugangurinn myndi liggja undir bænum, hvenær gos myndi hefjast eða hversu miklar afleiðingarnar yrðu. Það er hins vegar annað en að hættan hafi verið óþekkt. Í náttúruvá er óvissan oft hluti af veruleikanum. Við getum vitað að eitthvað geti gerst án þess að vita hvenær það gerist, hvar nákvæmlega eða með hvaða afleiðingum. Ef sú óvissa nægir ein og sér til að gera atburð að svörtum svani verður hugtakið fljótt mjög vítt. Þá gætu flest stór eldgos, jarðskjálftar og snjóflóð fallið undir það, einfaldlega vegna þess að enginn getur sagt fyrir um alla framvinduna í smáatriðum. Áhættufræðingurinn Terje Aven hefur nálgast hugtakið með öðrum hætti en Taleb og lagt meiri áherslu á óvissu og styrk þeirrar þekkingar sem liggur að baki áhættumati. Samkvæmt þeirri nálgun getur hætta talist svartur svanur þótt hún sé þekkt, ef hún hefur ekki ratað nægilega inn í áhættumat eða ef henni hefur verið gefið svo lítið vægi að ekki hefur verið brugðist við henni. Þarna finnst mér hugtakið byrja að missa skýrleikann. Ef við köllum þekkta hættu svartan svan vegna þess að hún var vanmetin, eða vegna þess að undirbúningur reyndist ekki nægur, erum við í raun farin að lýsa veikleikum í áhættustjórnun frekar en eðli atburðarins sjálfs. Fukushima er oft nefnt í þessu samhengi. Þar var hættan af stórri flóðbylgju þekkt áður en slysið varð og síðar var komist að þeirri niðurstöðu að slysið hefði verið fyrirsjáanlegt. Það er gott dæmi um hversu alvarlegar afleiðingar geta orðið þegar þekking fær ekki nægilegt vægi í ákvörðunum. En ef atburður getur bæði verið fyrirsjáanlegur og svartur svanur á sama tíma vaknar eðlilega spurning um hvað hugtakið er þá í raun að segja okkur. Grindavík sýnir þetta vel. Það kom ekki á óvart að Reykjanesskagi gæti tekið að gjósa á ný. Það sem kom á óvart var hvernig atburðirnir röðuðust saman, hversu hratt staðan breyttist og hversu víðtækar afleiðingarnar urðu. Kvikugangur undir byggð, stórar sprungur í bænum, endurtekin eldgos og áhrif á mikilvæga innviði sköpuðu atburðarás sem fáir hefðu getað lýst fyrirfram í nákvæmum smáatriðum. En fordæmalaus atburðarás er ekki endilega það sama og óþekkt hætta. Mér finnst því áhugaverðara að spyrja hvort við höfum verið nógu góð í að búa okkur undir það sem við vissum að gæti gerst. Þar liggur miklu stærri umræða um Grindavík. Hvernig var tekið tillit til jarðvár í skipulagi? Hversu vel voru mikilvægir innviðir varðir? Hversu sterk voru viðbrögðin, samhæfingin og upplýsingagjöfin? Hvaða forsendur lágu að baki ákvörðunum og hvað gerðist þegar þær forsendur breyttust? Þetta eru mikilvægar spurningar og þar getur vel verið ástæða til gagnrýni. En vanmat á þekktri áhættu er ekki það sama og að standa skyndilega frammi fyrir einhverju sem enginn hafði séð fyrir að gæti gerst. Viðbrögðin í nóvember 2023 sýna raunar hversu mikill munur er þar á. Grindavík var rýmd áður en gos hófst og vísindamenn fylgdust stöðugt með þróuninni. Hættumat hefur síðan verið endurskoðað eftir því sem nýjar upplýsingar hafa komið fram og aðstæður breyst. Nú vitum við hvernig atburðarásin þróaðist. Við vitum að kvikugangurinn fór undir Grindavík, að hraun rann inn í bæinn, að hús brunnu og að níu eldgos urðu á Sundhnúksgígaröðinni. Sú vitneskja lá ekki fyrir árið 2021 og ekki heldur í byrjun nóvember 2023. Það væri því ósanngjarnt að horfa til baka og láta eins og öll atburðarásin hafi verið augljós. En það væri jafn rangt að draga þá ályktun að hættan hafi verið óþekkt vegna þess að enginn gat séð nákvæmlega fyrir hvernig hún myndi birtast. Þessi hugsun endurspeglast líka í nýju áhættumati fyrir Grindavík. Þar er unnið með lifandi áhættumat þar sem fylgst er með áhættuvísum, mótvægisaðgerðum og breytingum á þeim forsendum sem matið byggir á. Slík nálgun byggir ekki á þeirri hugmynd að hægt sé að útrýma allri óvissu. Hún gengur þvert á móti út frá því að óvissan sé alltaf til staðar og að bregðast þurfi við henni með því að fylgjast með breytingum og endurmeta stöðuna þegar þörf krefur. Þar finnst mér liggja mikilvægasti lærdómurinn. Áhættustjórnun snýst ekki um að geta séð framtíðina fyrir í smáatriðum. Hún snýst um að vita hvaða hættur eru til staðar, skilja hvar óvissan liggur og vera tilbúin að breyta ákvörðunum þegar þekkingin eða aðstæðurnar breytast. Grindavík markar án efa tímamót í íslenskri náttúruvárasögu og reynslan þaðan mun hafa áhrif á hvernig við hugsum um skipulag, innviði, rýmingar og almannavarnir um ókomin ár. En umfang atburðanna eitt og sér gerir þá ekki að svörtum svani. Grindavík var dæmi um eitthvað sem er að mörgu leyti erfiðara að takast á við. Hættan var þekkt, en enginn gat séð nákvæmlega fyrir hvernig hún myndi þróast. Og einmitt þess vegna skiptir svo miklu máli hvernig við vinnum með óvissuna áður en næsti atburður verður. Höfundur er öryggisstjóri og meðlimur í verkefnahóp um endurmat áhættumats í Grindavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Grindavík Mest lesið 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun America First – eða America Alone? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Þversögnin í menntamálum Helga María Pálsdóttir skrifar Skoðun Sátt um hvað? Ofbeldi er ekki ágreiningur Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Er samþykki skálkaskjól fyrir skepnuskap ? Magnea Marinósdóttir skrifar Skoðun Ósýnileg hamlandi einkenni – þegar baráttan sést ekki Sigrún Heimisdóttir skrifar Skoðun Íslendingar kusu fátækt og einangrun þann 29. ágúst 2026 Jón Frímann Jónsson skrifar Skoðun Innviðirnir verða að ráða hraðanum Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Falleinkunn fyrir Heima-dæmi Sigurður Sævarsson skrifar Skoðun 7 er ekki lengur 7 Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir,Álfhildur Leifsdóttir skrifar Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Margt smátt Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Lífeyrissjóðs tekjur og skerðing ellilífeyris Sigurður Tómas Garðarsson skrifar Skoðun Stígum inn, konur eiga ekki að þurfa að herða sig Jakob Tryggvason skrifar Skoðun Verkin fylgja, varla fé Magnús Magnússon skrifar Skoðun Þrjú lögregluembætti – á hvaða forsendum? Björn Bjarki Þorsteinsson skrifar Skoðun Ríkisútvarpið og hlutverk þess skrifar Skoðun Leyndinni loks aflétt Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Vaxtabætur hverfa þegar vextirnir bíta mest Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Hugrenningar í kjölfar sýknudóms í Landsrétti Helgi Gunnlaugsson skrifar Skoðun Þegar unga kynslóðin missir trúna á framtíðina Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Ættarnöfn í nýju ljósi: álit umboðsmanns Alþingis Marteinn Jónasson skrifar Skoðun Hvar var rannsóknarblaðamennskan? Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Er náttúrupassinn áhættunnar virði? Valdís María Smáradóttir skrifar Skoðun Keisarinn er ekki í fötum! Hjördís Guðný Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Gíraffaheilkennið þvert á flokka Bjarni Karlsson skrifar Skoðun Verstfirðir eða Bestfirðir? Erna Lea Bergsteinsdóttir skrifar Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar Skoðun Hversu marga dökka sérðu á myndinni? Óskar Steinn Ómarsson skrifar Skoðun Ritskoðun fjölmiðlanefndar? Hallmundur Albertsson skrifar Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar Sjá meira
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun
Skoðun Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Íslenskunám í starfi er sameiginleg ábyrgð Rebekka Levin,Heiða Björk Vignisdóttir skrifar
Skoðun Hefur eftirlitsstofnun ríkisins misst sjónar á velferð barna? Anna Margrét Hrólfsdóttir,Elsa Dögg Benjamínsdóttir,Fríður Pétursdóttir,Guðlaugur Kristmundsson,María Dröfn Egilsdóttir,Sigurgeir B. Þórisson skrifar
Þegar sátt er ekki lausnin – hvaða aðrar leiðir eru færar? Kristín Skjaldardóttir,Þóra Sigfríður Einarsdóttir Skoðun