Stefnir í aflýsingar á öllu morgunflugi frá Keflavík og Reykjavík Birgir Olgeirsson skrifar 22. september 2026 13:54 Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair. Félagið undirbýr aflýsingar á öllum brottförum frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Vísir/Einar Öllum brottförum Icelandair frá Keflavík og Reykjavík í fyrramálið verður að óbreyttu aflýst vegna yfirvofandi verkfalls flugvirkja. Félagið segir ákvörðun verða tekna í kvöld, í síðasta lagi um það leyti sem verkfallið hefst eftir miðnætti.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair um viðbrögð félagsins við boðuðu ótímabundnu verkfalli Flugvirkjafélags Íslands. Að jafnaði eru um 110 flug félagsins á sólarhring á þessu tímabili og farþegar um 15 þúsund. Þar af eru um 20 innanlandsflug með um 750 farþega. Þrjú þúsund hafa breytt flugi Um þrjú þúsund farþegar hafa þegar nýtt sér boð Icelandair um að breyta flugi sem þeir áttu bókað á morgun eða hinn. Eftir hádegi í dag hyggst félagið hefja endurbókun fyrir hátt í þúsund farþega sem eiga flug frá Norður-Ameríku í kvöld til Evrópu með millilendingu á Íslandi. Þeir verða bókaðir með öðrum flugfélögum á áfangastað, eftir því sem sæti fást. Aflýsingar tilkynntar með fyrirvara Eftir ákvörðun um morgunflugið verða frekari ákvarðanir um aflýsingar teknar skref fyrir skref. Icelandair boðar að minnsta kosti fjögurra til sex klukkustunda fyrirvara, „þannig að farþegum sé ekki stefnt út á flugvöll að tilefnislausu“. Tímabilið sem boð um sveigjanlegar endurbætur nær til verður jafnframt uppfært eftir því sem staðan þróast. Félagið segir rétt farþega til endurbókunar eða endurgreiðslu virkjast um leið og flug er fellt niður. Farþegar verði upplýstir um rétt sinn og eru hvattir til að ganga úr skugga um að réttar samskiptaupplýsingar séu skráðar í bókunum þeirra. Segja áhrif þegar komin fram í fraktflutningum Icelandair segir verkfallsboðunina eina og sér þegar hafa valdið félaginu, farþegum og ferðaþjónustunni miklu tjóni. Þá hafi staðan þegar haft mikil áhrif á fraktflutninga, bæði innflutning á ferskvöru og lífsnauðsynlegum lyfjum og útflutning á ferskum fiski. Félagið flutti 38 þúsund tonn af frakt í fyrra, þar af um 22 þúsund tonn af ferskum fiski frá Íslandi.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Kjaramál Samgöngumál Flug Keflavíkurflugvöllur Mest lesið Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Innlent Skuldar ekkert Innlent Fleiri fréttir „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Hringvegurinn lokaður og viðvaranir í gildi Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Sjá meira