Sport

Veltur ekki bara á Þor­leifi að bæta Ís­lands­met í bak­garðs­hlaupi

Aron Guðmundsson skrifar
Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum.
Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í bakgarðshlaupum. Vísir/Sigurjón

Þorleifur Þorleifsson, Íslandsmethafi í Bakgarðshlaupum, á sér draum um að bæta Íslandsmetið enn einu sinni en það er ekki bara undir honum einum sjálfum komið að gera það.

Þorleifur hljóp tíu hringi í nýafstöðnu Bakgarðshlaupi í Heiðmörk líkt og vel flestir í íslenska landsliðinu sem eiga fyrir höndum landsliðskeppni í næsta mánuði.

Mánuður er í stóru keppnina hjá ykkur í landsliðinu. Hvernig er staðan á þér sjálfum fyrir þá keppni og ertu með einhver markmið í huga?

„Ég er í toppstandi. Ég hef verið að einblína á þessa keppni svolítið lengi. Markmiðið er í rauninni bara að hlaupa þangað til ég má ekki hlaupa lengur. Það er enginn hringjafjöldi, það kemur bara í ljós hvað hinir fara langt. Hvað þeir leyfa mér að fara langt.“

Klippa: Óskar eftir félaga til að slá Íslandsmetið

Landsliðskeppnin fer fram í fjölmörgum löndum á sama tíma. Íslenska landsliðið mun hlaupa í Elliðaárdalnum.

Þorleifur er Íslandsmethafi í greininni en metið setti hann einmitt í landsliðskeppni í Elliðaárdalnum í október fyrir tveimur árum þegar hann hljóp 62 hringi, eða um 415 kílómetra.

Íslandsmethafi í greininni. Áttu þér draum um að bæta Íslandsmetið aftur?

„Já, það væri náttúrulega alveg frábært og frá minni hlið séð þá veltur það ekki bara á mér. Ef einhver er til í að koma og taka 62. hringinn með mér þá er ég tilbúinn að fara hring 63.“

Í Bakgarðshlaupum þarf nefnilega tvo til að dansa tangó. Hlaupinn er 6,7 kílómetra hringur sem þarf að klára innan klukkustundar. Ávallt er ræst út í nýjan hring á heila tímanum.

Ástæðan fyrir því að það er ekki bara undir Þorleifi einum komið að bæta Íslandsmetið er að hann myndi ekki aðeins sjálfur þurfa að klukka núverandi Íslandsmet, hann þyrfti annan keppanda með sér í þá vegferð.

Þegar aðeins einn keppandi er eftir í Bakgarðshlaupi þarf sá hinn sami að hlaupa einn hring til viðbótar til þess að tryggja sigurinn og fær svo ekki að hlaupa meira.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×