„Þetta er ekki að fara að brjóta Þórsliðið“ Þorsteinn Hjálmsson skrifar 19. september 2026 22:24 Sigurður Höskuldsson, þjálfari Þórs. Vísir/Pawel „Fyrstu viðbrögð eru bara svekkelsi. Við erum bara sárir eftir þetta,“ sagði Sigurður Heiðar Höskuldsson, þjálfari Þórs, hundsvekktur eftir 3-0 tap gegn erkióvininum í KA í kvöld í botnbaráttuslag.
Staðan var markalaus í hálfleik og hófst síðari hálfleikurinn nokkuð rólega. Sigurði fannst þó sínir menn koma vel út í síðari hálfleikinn þar til þeir fengu skell þegar fyrsta mark leiksins kom. „Mér fannst við koma frábærir inn í seinni hálfleikinn og vera gjörsamlega með yfirhöndina í leiknum þegar þeir skora þetta mark. Það klikkar eitt pressu móment hjá okkur og þeir komast í skotfæri fyrir utan teig, stöngin inn. Virkilega pirrandi, því allt móment var með okkur akkúrat á þeim tímapunkti. Svo fáum við annað mjög klaufalegt mark á okkur í kjölfarið og við bara náðum ekki að stíga upp eftir það. Stemningin þeirra megin og þannig fór sem fór.“ Þórsarar voru í vandræðum sóknarlega í leiknum en liðið náði aðeins einu skoti á markið, þrátt fyrir að hafa fengið heilar tólf hornspyrnur í leiknum. „Mér fannst margt vera að ganga upp hjá okkur. Við náðum ekki að búa til færin sem við þurftum, en það voru fullt af augnablikum inn í teignum þeirra og við fengum fullt af hornspyrnum og þrýstum á þá. Pressan okkar svínvirkaði, nánast fullkomlega þangað til að þeir skora þetta mark upp úr leiðinlegu upphlaupi sem að við náðum ekki að stoppa. Það er bara svekkjandi,“ sagði Sigurður, sem segir sína menn taka þessum kinnhest og halda áfram. „Við tökum þetta bara á kinnina og mætum klárir. Þetta er ekki að fara brjóta Þórs liðið.“ Nú er komið langt hlé vegna landsleikja. Sigurður segir þetta vera frábæran tímapunkt fyrir sitt lið að fá smá stopp og snúa bökum saman fyrir þá hörðu fallbaráttu sem framundan er eftir landsleikjahléið. „Frábær tímapunktur. Við förum bara særðir inn í þetta hlé. Særð dýr eru hættulegustu dýrin, við mætum bara klárir eftir hléið og hjólum á þessa þrjá síðustu leiki. Við eigum tvo heimaleiki sem við munum nýta okkur mjög vel og fá Þórsara með okkur í það dæmi, því við þurfum alla upp á dekk núna. Auðvitað særir þetta miklu meira en aðrir leikir og önnur úrslit, en við verðum bara að vera stórir og taka þetta á kinnina,“ sagði Sigurður að lokum.
Besta deild karla Þór Akureyri Tengdar fréttir Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ „Við vissum að við værum betra liðið og ákváðum að sýna það í dag,“ sagði Adam Ægir Pálsson, einn markaskorara KA, eftir 3-0 sigur á erkióvinunum í Þór í kvöld. 19. september 2026 22:11 Mest lesið Liverpool - Manchester City 0-3| Hristu kærurnar af sér og unnu stórsigur Enski boltinn Hvers vegna eru City-menn með banana í stúkunni? Enski boltinn „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Íslenski boltinn Íslenskir dómarar úti í kuldanum: „Þetta er auðvitað svekkjandi“ Fótbolti Pínleg mistök Neuer gáfu hraðasta mark í sögu deildarinnar Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Þurfti að gefa í þegar maginn sagði til sín Sport Bestu tilþrifin: Plakat á Höfn, ótrúleg karfa nýliðans og svakalegur þristur Körfubolti Manchester United - Tottenham 1-1 | Tíu menn Tottenham björguðu stigi Enski boltinn Sjáðu sigurmark Guimaraes og markaveislu Chelsea Enski boltinn Segir Barcola ekki í vandræðum Enski boltinn Fleiri fréttir Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjáðu fernu Niu og þrennu Ásu í ótrúlegum leik „Við erum alltaf að fara að taka þetta“ Breiðablik - Þróttur 5-4 | Ótrúleg endurkoma meistaranna FH - ÍBV 5-0 | Stórsigur FH sem lagaði markatöluna Sjáðu mörkin sem felldu Víking og Val Uppgjörið: Fram - Valur 1-2 | Valskonur fallnar í fyrsta sinn ,,Mikið í gangi í hausnum núna” „Sorglegt fyrir íslenskan fótbolta“ Sjá meira
Adam Ægir: „Ég skuldaði KA þetta“ „Við vissum að við værum betra liðið og ákváðum að sýna það í dag,“ sagði Adam Ægir Pálsson, einn markaskorara KA, eftir 3-0 sigur á erkióvinunum í Þór í kvöld. 19. september 2026 22:11