Hætta að prenta Walliams eftir ásakanir um kynferðislegt áreiti Agnar Már Másson skrifar 19. september 2026 17:02 Walliams er meðal annars höfundur Ömmu glæpon, eða Gangsta Granny á frummálinu. Hún verður brátt ekki prentuð meir af HarperCollins. Samsett Mynd Bókaútgefandinn HarperCollins hyggst hætta alfarið að prenta bækur eftir barnabókahöfundinn og Íslandsvininn David Walliams en hann hefur verið sakaður um kynferðislegt áreiti í garð samstarfskvenna sinna.
Bókaútgáfan ákvað um áramótin að slíta útgáfusamningi við Walliams og gefa ekki út fleiri nýjar bækur eftir hann vegna „óviðeigandi hegðunar“, en hefur haldið áfram að gefa út eldri sögur eftir hann, sem hafa margar hverjar notið gríðarlegra vinsælda, svo sem sögurnar Amma Glæpon og Verstu skrímsli í heiminum. Nú hefur miðillinn The Bookseller eftir heimildum að HarperCollins hafi einnig ákveðið að hætta útgáfu á eldri bókum eftir höfundinn en útgefandinn, sem er í eigu auðjöfursins Ruperts Murdoch, hefur ekki tjáð sig um málið. Walliams hefur gefið út yfir fjörutíu bækur, þar af 23 undir HarperCollins, og þó nokkrar hafa verið gefnar út á íslensku. Hann er í hópi svokallaðra Íslandsvina en árið 2022 biðu nokkur hundruð manns í röð í Smáralind eftir því að fá áritun frá honum. Þegar HarperColluins ákvað í desember að slíta útgáfusamningi við hann var það í kjölfar þess að Kate Elton tók við sem forstjóri útgáfunnar en einnig eftir að rannsókn breska dagblaðsins Telegraph varpaði ljósi á að hann hefði verið sakaður um kynferðislegt áreiti í garð ungra kvenna sem unnu hjá bókaútgefandanum. Walliams hefur hafnað öllum ásökunum í sinn garð en samkvæmt umfjöllun Telegraph voru einni konu sem vakti athygli á meintri hegðun Walliams boðnir tugir þúsunda punda við starfslok. Starfsmenn hafi einnig verið beðnir um að vinna „í pörum“ þegar þeir áttu að hitta Walliams. Walliams er rithöfundur og grínisti sem gerði garðinn frægan í þáttunum Little Britain frá 2003–2006.
Bókmenntir Kynferðisofbeldi Kynbundið ofbeldi Bretland Mest lesið Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Lífið Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Lífið Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Lífið Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Lífið Siggi Chaplin allur Lífið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Lífið Ólétt 52 ára Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Fleiri fréttir Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Sjá meira