Hafa miklar áhyggjur af verkfalli flugvirkja Bjarki Sigurðsson skrifar 19. september 2026 12:25 Jóhannes Þór Skúlason er framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar. Vísir/Arnar Stjórn Samtaka ferðaþjónustunnar (SAF) lýsir þungum áhyggjum af áhrifum boðaðs verkfalls á flugvirkja. Ferðaþjónustufyrirtæki hafi þegar fengið fjölda afbókana vegna verkfallsins.
Miðvikudaginn 23. september hefst verkfall flugvirkja Icelandair vegna kjaradeilu þeirra við flugfélagið. Samningar hafa verið lausir frá áramótum og lauk fundi deiluaðila án árangurs í gær. Milljarða tekjutap Í yfirlýsingu frá stjórn SAF segir að alvarleg röskun verði á allri virðiskeðju atvinnugreinarinnar verði verkfallið að veruleika. Nú þegar hafi fyrirtæki um allt land fengið fjölda afbókana og fyrirspurna um niðurfellingu, endurgreiðslu og frestun ferða. „Íslensk ferðaþjónusta og verðmætasköpun greinarinnar fyrir samfélagið byggir á öruggum og fyrirsjáanlegum flugsamgöngum. Þegar þeim er ógnað með verkfallsaðgerðum af þessu tagi eru afleiðingarnar ekki bundnar við deiluaðila heldur lenda þær á þúsundum ferðamanna og hundruðum fyrirtækja um allt land sem eiga enga aðkomu að deilunni. Tekjutapið getur hlaupið á milljörðum á örfáum dögum og tjónið á orðspori Íslands sem áreiðanlegs áfangastaðar getur varað mun lengur,“ segir í yfirlýsingunni. Efnahagslegt tjón fyrir allt samfélagið Verkfallið valdi öllu samfélaginu alvarlegu efnahagslegu tjóni. Það hafi ekki eingöngu áhrif á fyrirtæki og starfsfólk í greininni heldur einnig á tekjur ríkissjóðs og svigrúm samfélagsins til að standa undir opinberri þjónustu og öðrum sameiginlegum verkefnum. „Stjórn SAF leggur ríka áherslu á mikilvægi þess að boðað verkfall verði ekki að veruleika og að samningsaðilar leggi allt kapp á að ná samkomulagi áður en til þess kemur. Takist ekki samkomulag krefjast almannahagsmunir þess að stjórnvöld grípi inn í til að afstýra stórtjóni fyrir ferðaþjónustuna, atvinnulífið og íslenskt samfélag í heild,“ segir í yfirlýsingunni.
Kjaradeila Icelandair og flugvirkja 2026 Icelandair Flug Ferðaþjónusta Kjaramál Vinnumarkaður Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Innlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Fleiri fréttir Vill auka aðgengi að verkjalyfjum „Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Sjá meira