Íslenski boltinn

„Hversu mikil pressa var á honum?“

Sindri Sverrisson skrifar
Dagur Orri Garðarsson gæti elt Bjarka bróður sinn út í atvinnumennsku áður en langt um líður. Pabbi þeirrra er Garðar Jóhannsson, fyrrverandi atvinnumaður.
Dagur Orri Garðarsson gæti elt Bjarka bróður sinn út í atvinnumennsku áður en langt um líður. Pabbi þeirrra er Garðar Jóhannsson, fyrrverandi atvinnumaður. Vísir/Anton Brink

Framherjinn Dagur Orri Garðarsson spilar líklega ekki mikið lengur hér á landi þó að ekkert hafi orðið af því að hann yrði seldur frá Val til Slóveníu í síðustu viku. Sérfræðingar Stúkunnar segja hann verðskulda að komast út í atvinnumennsku.

Dagur Orri, sem er 21 árs, kom til Vals frá Stjörnunni síðasta vetur og hefur skorað fimm mörk í Bestu deildinni á tímabilinu, eftir sextán mörk sem lánsmaður hjá HK í fyrrasumar.

Hjá Val þurfti hann að leysa af hólmi Danann Patrick Pedersen sem missti af stórum hluta tímabilsins í ár vegna hásinarslits.

„Hversu mikil pressa var á honum í byrjun móts, að þurfa að vera arftaki Patrick Pedersen? Þetta er versta hlutskipti sem maður getur ímyndað sér: „Heyrðu já, þú átt að halda uppi markaskoruninni í staðinn fyrir besta framherja í sögu efstu deildar.“ En hann hefur aldrei misst dampinn, hægt og rólega lært á deildina, er byrjaður að skora mörk og verðskuldað að fá þessa athygli,“ sagði Baldur Sigurðsson í Stúkunni á þriðjudagskvöld.

Klippa: Stúkan - Dagur Orri góð söluvara

Dagur Orri var eins og fyrr segir í sigti slóvenska félagsins Zilina en samkvæmt Fótbolta.net hafnaði hann tilboði félagins sem hafði þá samið við Val um kaupverð. Áður hafði Hjörvar Hafliðason rætt um það í Dr. Football að Dagur Orri væri mjög ósáttur við að Valur hefði hafnað 30 milljóna króna tilboði frá danska B-deildarliðinu Fredericia.

Fjórar umferðir eru eftir af Bestu deildinni en sérfræðingar Stúkunnar voru sammála um að líklegt væri að Dagur Orri myndi svo kveðja Val í vetur.

„Skandinavía er þægilegri í vetrarglugganum, að fara út til Noregs eða Svíþjóðar, og það þarf ekki að koma neinum á óvart ef hann fengi tækifæri til að fara þangað í janúar,“ sagði Bjarni Guðjónsson.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×