Þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn Agnar Már Másson skrifar 17. september 2026 15:11 Árásin var framin í húsnæði við Vatnagarða í Reykjavík. Samsett Mynd Davíð Bjarni Chiarolanzio hefur verið dæmdur í þriggja ára fangelsi fyrir að frelsissvipta æskuvin sinn og beita grófu ofbeldi í Vatnagörðum í Reykjavík árið 2023.
Landsréttur kvað upp dóm þess efnis upp úr klukkan 15 í dag en dómurinn hefur ekki verið birtur og því liggja forsendur hans ekki fyrir. Þrír karlmenn voru í apríl 2025 sakfelldir í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir frelsissviptingu, sem stóð yfir í tvær og hálfa klukkustund, og ofbeldi henni tengdri. Í héraðsdómi hlaut einn þeirra þriggja ára fangelsisdóm, annar tveggja og hálfs árs dóm og sá þriðji sextán mánaða fangelsisdóm. Fjallað var um dóm héraðsdóms hér. Varað er við myndefni hér að neðan. Davíð Bjarni, sem var dæmdur í tveggja og hálfs árs fangelsi í héraði, var sá eini sem áfrýjaði dómnum til Landsréttar. Atvikin sem málið varðar áttu sér stað í og við húsnæði í Vatnagörðum í Reykjavík aðfaranótt sunnudagsins 29. janúar 2023. Maðurinn sem var frelsissviptur og beittur gríðarlegu ofbeldi var vinur árásarmannanna tveggja sem tóku mestan þátt. Davíð Bjarni var æskuvinur hans og tengdur honum fjölskylduböndum. Í ákæru sagði að annar þeirra hefðu mælt sér mót við fórnarlambið, og þegar þeir hittust hafi hann leitt hann inn í herbergi þar sem hann hafði skömmu áður komið upp myndavél í því skyni að taka frelsissviptinguna upp. Mikið blæddi úr handlegg mannsins.Aðsend Þegar fórnarlambið gekk inn í herbergið hafi hinn árásarmaðurinn verið búinn að fela sig bak við hurðina sem lá inn í rýmið með límbandsrúllu við hönd. Þegar fórnarlambið áttaði sig á því að árásarmaðurinn biði hans reyndi hann að komast úr herberginu en var meinuð útganga, samkvæmt ákærunni. Fórnarlambið sagði mennina hafa krafið sig um tvær milljónir króna. Eftir að hafa verið beittur þessu mikla ofbeldi sagðist hann hafa sloppið undan þeim og náð að fara í næsta hús. Þar hafi hann brotið rúðu til þess að fá öryggiskerfið í gang svo hann fengi aðstoð. Skömmu síðar barst lögreglu tilkynning um fáklæddan mann sem hafði verið laminn og dreginn inn í bíl. Þegar lögregla mætti á vettvang var hann með stungusár á upphandleggnum sem blæddi mikið úr.
Dómsmál Kynferðisofbeldi Reykjavík Lögreglumál Mest lesið Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Innlent Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Innlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Ekki rétt sem Halla segir Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Sjá meira