Skipuleggur eigin jarðarför Sunna Sæmundsdóttir skrifar 20. september 2026 07:30 Dagný Ósk ásamt eiginmanni sínum Kristni og börnunum Kristófer og Emilíu. Hún hefur barist við krabbamein í nokkur ár en allri meðferð hefur verið hætt. Dagný Ósk „Mig langar bara að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum,“ segir Dagný Ósk Vestmann aðspurð hvað henni sé ofarlega í huga á átakanlegum tímamótum. Hún er þrjátíu og átta ára gömul tveggja barna móðir og stendur frammi fyrir því að eiga einungis nokkrar vikur ólifaðar. Í stað þess að skipuleggja næsta barna- eða brúðkaupsafmæli er hún að skipuleggja og safna fyrir eigin kistulagningu og útför.
Dagný ólst upp í Mosfellsbæ og Vestmannaeyjum og lýsir því að fjölskyldulífið hafi tekið nokkuð snemma við. Hún var rétt skriðin yfir tvítugt þegar hún eignaðist sitt fyrsta barn, dótturina Emilíu sem í dag er að verða átján ára gömul. Maðurinn hennar Kristinn Bjarki, eða Kiddi eins og hann er kallaður, kom síðar inn í myndina og þau eiga saman soninn Kristófer sem verður sex ára í janúar. Árið 2017, eða þegar Dagný var nýorðin þrítug, fékk hún greiningu sem breytti öllu en aðdragandinn hafði verið nokkuð langur. „Því svona ungt fólk virðist ekki fá krabbamein,“ segir Dagný með vott af kaldhæðni. Það hafi einungis verið eftir að móðir hennar hringdi í Krabbameinsfélagið og þrýsti á um skoðun sem boltinn fór að rúlla en almennt er einungis skimað fyrir brjóstakrabbameini hjá konum yfir fertugt. Dagný var send í myndatöku, lóðbeint í sýnatöku og fékk tíma hjá skurðlækni. „Þegar ég hitti svo loksins skurðlækninn fæ ég að vita að um er að ræða þriðja stigs krabbamein sem hafði dreift sér í mjög marga eitla.“ Dagný fór í brjóstnám og við tók lyfja- og geislameðferð. Dagný greindist fyrst með krabbamein árið 2017.Dagný Ósk „Það erfiðasta á þessum tímapunkti var ógleðin og allir sterarnir sem fóru mjög illa í skapið á mér. Hármissir var auðveldastur en það var hræðilegt að þurfa að setjast niður með átta ára gömlu barninu mínu og útskýra krabbameinið, dauðann og hvað væri að fara gerast fyrir mömmu,“ rifjar Dagný upp. Eftir meðferðirnar, eða árið 2018, fékk Dagný þær gleðifréttir að hún væri laus við meinið og sú var staðan í fimm ár. Þá hófst hins vegar annar kafli, eða sorgarsagan eins og hún lýsir því. „Við vorum þá búsett í Danmörku, nýgift og eins hamingjusöm og hægt var í rauninni.“ Í aðdragandanum fyrir seinni greininguna segist hún hafa gengið á milli lækna vegna mikilla verkja. „Eftir að hafa verið svakalega kvalin í líkamanum, bringubeini, niður allan hrygginn og í rifbeinum. Átt erfitt með að lyfta tveggja ára gömlum syni mínum, hvort sem það var við matarborðið eða upp í bílinn, þurft aðstoð við að setjast sjálf upp úr rúminu eða leggjast niður. Ég gekk á milli lækna en niðurstaðan var alltaf sú sama: vöðvabólga.“ Dagný gekk á milli lækna en fékk ávallt þá skýringu að hún væri með vöðvabólgu.Dagný Ósk Að lokum hafi hún náð að þrýsta á um blóðprufu sem sýndi að krabbameinið hafði tekið sig upp á ný. „Sem ég í raun vissi sjálf, þekkjandi líkama minn mjög vel.“ Í fyrsta viðtali við krabbameinslækni hafi komið í ljós að staðan væri alvarleg. „Ég væri með ólæknandi krabbamein sem hafði byrjað sem brjóstakrabbamein í sama brjósti og árið 2017, sem hafði samt verið fjarlægt. Það hafði haft góðan tíma til að dreifast og var búið að koma sér niður hrygginn, bringubeinið, í vinstri lærlegg og svo strax á þessum byrjunartíma voru þau allnokkur komin í lifrina.“ Dagný segist aldrei hafa upplifað aðra eins hræðslu. Henni var tjáð að einungis fjórðungur kvenna í svipaðri stöðu lifði lengur en í fjögur ár og síðan hefur hún farið í gegnum nokkrar lyfjameðferðir til þess að halda krabbameininu í skefjum. „En því miður er ég ekki að ná þremur árum í baráttu. Það er verulega farið að halla á baráttuna og orðið stutt eftir.“ Í ágúst var ákveðið að hætta allri meðferð. „Eins og staðan er núna eru þetta bara örfáar vikur.“ Dagný ásamt fjölskyldu sinni.Dagný Ósk Eftir að hafa barist eins og ljón sé erfitt að sætta sig við stöðuna. „Mér líður alveg hreint hræðilega, ég viðurkenni það fúslega. Ég græt yfir minnstu hlutum, ég næ ekki eigin afmæli, ekki brúðkaupsafmælinu okkar, missi af syni mínum verða sex ára og byrja í skóla. Ég er að fara að skilja börnin eftir móðurlaus, manninn minn fjörutíu og fjögurra ára ekkil. Mamma og pabbi þurfa að jarðsetja barnið sitt.“ Baráttan hafi reynst þung bæði andlega og fjárhagslega. Maðurinn hennar sem hefur starfað sem verktaki hafi verið launalaus síðan í ágúst og sjálf hefur Dagný ekki getað unnið á síðustu árum. Þá sé mikill falinn kostnaður í kringum meðferðirnar. „Okkur grunaði ekki hve mikill aukakostnaður myndi fylgja svona veikindum. Endalaus komugjöld, blóðprufur og annar peningur sem safnast upp í háar upphæðir.“ Súrrealískt en fallegt Fjölskyldan stendur því fyrir söfnun fyrir bæði kistulagningu og útför Dagnýjar. Hún segist sjálf koma að skipulagningunni. „Þetta er mjög súrrealísk staða en samt svo falleg finnst mér. Ég er komin langleiðina með skipulagið. Ég fer samt ekki í gegnum eitt símtal án þess að brotna niður, en það er klárlega partur af því að skipuleggja eigin jarðarför og öllu sem því fylgir.“ Dagný segist verja síðustu vikunum í ró. „Ég hef verið að taka á móti mínum bestu vinkonum í kveðjuhittinga, sem mér finnst alveg einstakt að geta gert. Spjalla um gamla tíma og kveðjast á meðan heilsan leyfir. Annars fer tíminn óskiptur til barnanna minna og mannsins míns.“ Mikilvægt að staldra við Aðspurð hvað henni sé efst í huga á þessum tímapunkti nefnir hún þakklæti. „Þeir sem hafa nú þegar lagt söfnuninni okkar lið eiga mikið þakklæti og gott karma skilið. Annars langar mig að minna fólk á að finna það fallega í litlu hlutunum. Lífið getur ekki snúist endalaust um hraða þannig að maður gleymi að njóta þess. Það er svo mikilvægt að staldra aðeins við.“ Söfnunarreikningurinn er á nafni Kristins Bjarka Hjaltasonar, eiginmanns Dagnýjar: Kennitala: 160183-5439 Bankanúmer: 0702-15-835439
Krabbamein Helgarviðtal Ástin og lífið Mest lesið Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Innlent Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Innlent Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Innlent Skaut konu sína, börn og barnabörn Erlent Hóta að stöðva vopnakaup fyrir Úkraínu Erlent Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Innlent Vonast til að leysa ráðgátuna um hvarf Ameliu Earhart Erlent Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Innlent Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Innlent Appelsínugular og gular viðvaranir gefnar út Veður Fleiri fréttir Dæmdur fyrir skattsvik vegna B Segir að þegar 13 þúsund skrifa undir verði stjórnvöld að hlusta Engin óbirt loforð eða leynilegt samkomulag Óveður í aðsigi: Líklegt að flug raskist Ekkert leynimakk í kjarasamningsgerð og óvenju djúp lægð er á leið til landsins Áminnti starfsmann spítalans fyrir að fletta upp sjúkraskrá konu Hlaut fyrstu verðlaun fyrir rannsókn í sjúkraþjálfun Dýpsta októberlægð í rúm sextíu ár í uppsiglingu Segir Bjarna hafa valið klæki og ófrið við Eflingu Bein útsending: Árleg friðarráðstefna Höfða friðarseturs Steinunn kjörin næsti forseti Alþjóðasamtaka lækna Þrettán þúsund hafa skrifað undir Alls ekki á móti því að fólk hafi það gott Réðust á dreng og tóku af honum hlaupahjól Myndir frá Austurvelli: „Fokkið ykkur úr firðinum“ Nýr meirihluti í Suðurnesjabæ „Við erum ekkert að biðja um einhverja sérmeðferð“ Brotist inn í tvö fyrirtæki Akranes og Akureyri dæmi þar sem hættan sé raunveruleg Of snemmt að segja til um hvernig eldurinn kom upp Hafi verið beggja vegna borðsins „Þetta var algjörlega magnað“ Rispur á bílum út um allan bæ og tjón upp á hundruð þúsunda Bein útsending: Niðurstöður Samtalsins kynntar Uppbyggilegra samtal en í athugasemdum „Sólveig Anna virðist vera með mig algjörlega á heilanum“ Mótmæla sjókvíaeldi í tveimur landshlutum „Ég hef áhyggjur af Alþýðusambandinu“ Spenna fyrir þingi ASÍ og framlög til sjóvarna ekki næg Halla Gunnars svarar fyrir sig á Sprengisandi Sjá meira