Körfubolti

Losa Leonard eftir refsinguna

Valur Páll Eiríksson skrifar
Leonard þénaði vel í Los Angeles en árangurinn var af skornum skammti.
Leonard þénaði vel í Los Angeles en árangurinn var af skornum skammti. EPA

Los Angeles Clippers og Toronto Raptors eru að ganga frá skiptum Kawhi Leonard til kanadíska liðsins. Klára þurfti dómsmál innan NBA-deildarinnar áður en skiptin gátu gengið í gegn.

Heljarinnar mál gegn Clippers vegna Leonard kláraðist með þungum dómum fyrr í sumar. Clippers greiddi Leonard laun með krókaleiðum til að komast hjá reglum um launaþak.

Það mál kláraðist í byrjun september en skiptin höfðu legið fyrir frá því í júní. Það virðist nú loks vera hægt að klára þau.

Í staðinn fyrir Leonard fær Clippers Brandon Ingram og Gradey Dick frá Toronto Raptors. Þá fær Clippers einhverja valrétti að auki.

Leonard var frábær hjá Clippers sóknarlega á síðustu leiktíð þar sem hann skoraði tæplega 28 stig að meðaltali í leik, hans mesta á einni leiktíð í NBA. Ingram skora'i 21,5 stig að meðaltali með Raptors og var valinn í stjörnuliðið í annað sinn á síðustu leiktíð.

Leonard snýr aftur til Raptors eftir að hafa leitt liðið til NBA-meistaratitils á hans eina ári með liðinu 2018-19. Hann var valinn besti leikmaður úrslitaeinvígisins það árið.

Hver var refsing Clippers?

Vegna málsins fór Clippers í bann frá nýliðavalinu í fimm ár, frá 2029 til 2033, og þá var eigandinn Steve Ballmer dæmdur í ársbann frá körfubolta.

Rekstrarstjórinn Gillian Zucker var dæmdur í launalaust árs bann og yfirmaður körfuboltamála hjá liðinu, Lawrence Frank, í samskonar bann í hálft ár.

Hinn 35 ára gamli Leonard hefur verið leikmaður Clippers frá árinu 2019. Hann fékk ekki leikbann vegna málsins en var dæmdur til að greiða 700 þúsund dala sekt.

Frændi Leonards og umboðsmaður hans, Dennis Robertson hefur þá verið dæmdur í fimm ára bann frá því að vinna með leikmönnum eða liðum í NBA-deildinni.

NBA



Fleiri fréttir

Sjá meira


×