Kominn tími til að tengja Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar 10. september 2026 08:16 Lög um samþættingu þjónustu í þágu farsældar barna tóku gildi árið 2022. Markmið laganna voru að ýmis kerfi sem þjóna börnum tali betur saman. Að börn og fjölskyldur fái aðstoð fyrr og þurfi ekki sjálf að bera ábyrgð á því að tengja saman skóla, heilbrigðisþjónustu, félagsþjónustu og barnavernd. Í júní birti Ríkisendurskoðun gagnrýna skýrslu um innleiðinguna. Þar kemur meðal annars fram að hún hafi gengið hægar en áætlað var og verði ekki lokið innan þeirra fimm ára tímamarka sem upphaflega var gert ráð fyrir. Þessa gagnrýni þarf að taka alvarlega. Hún segir hins vegar ekki alla söguna. Tengiliðir hafa skipt sköpum Í umræðunni um Farsæld barna mætti stundum halda að hér væri um að ræða kerfi sem enn væri að mestu á teikniborðinu. Svo er alls ekki. Öll sveitarfélög landsins eru komin með tengiliði og málstjóra. Þá hafa farsældarráð verið stofnuð í öllum landshlutum. Landshlutasamtök sveitarfélaga hafa sjálf greint frá töluverðum breytingum. Samstarf sveitarfélaga, ríkisstofnana og annarra þjónustuveitenda hefur aukist, tengsl milli kerfa styrkst og yfirsýn yfir þjónustu við börn og fjölskyldur orðin meiri. Þetta skiptir máli. Eitt stærsta vandamálið í þjónustu við börn hefur lengi verið að fólk innan einstakra kerfa vinnur hvert í sínu horni. Farsældin á einmitt að brjóta niður þessa múra. Í samtölum mínum við fólk sem vinnur á vettvangi Farsældarinnar hefur eitt komið mjög skýrt fram. Tengiliðahlutverkið hefur víða gjörbreytt stöðu mála og er af mörgum sagt vera ein stærsta framförin. Börn og foreldrar geta leitað til tengiliðar þegar þörf er á stuðningi og hann hjálpar til við að tengja þjónustuna saman. Fólk þarf síður að ganga sjálft á milli kerfa og endurtaka sömu söguna aftur og aftur. Tölurnar segja líka sína sögu. Í lok apríl á þessu ári voru 6.112 mál í samþættri þjónustu samanborið við 4.669 á sama tíma árið áður. Ég heyri jafnframt að samþættingin sjálf sé víða orðin raunveruleg. Skólar, félagsþjónusta, heilbrigðisþjónusta og aðrir sem koma að málum barna vinna meira saman. Það er einmitt kjarninn í Farsældinni. Gagnrýninni þegar mætt Annar þáttur málsins hefur sömuleiðis farið nokkuð undir radarinn. Áður en skýrsla Ríkisendurskoðunar kom út var lögð fram á Alþingi tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna til ársins 2030. Í stefnunni var tekið á ýmsu sem Ríkisendurskoðun gagnrýndi síðar í sinni skýrslu. Þar má nefna árangursmælingar, meiri yfirsýn yfir þjónustu og biðlista, upplýsingamiðlun milli kerfa og heildstæðari þjónustu við börn með fjölþættar þarfir. Rétt er þó að benda á að þá þegar hafði verið brugðist við stórum hluta þeirra atriða sem Ríkisendurskoðun benti á. Vinna við frekari umbætur var hafin áður en skýrslan kom út. Sú staðreynd hefur að mínu mati fengið allt of litla athygli í umræðunni. Ekki komið á leiðarenda Farsældin er viðamikil kerfisbreyting. Slíkar breytingar gerast ekki með einu pennastriki. Það eru enn veikleikar í framkvæmdinni. Fötluð börn og börn með flóknar þjónustuþarfir mega ekki falla á milli kerfa. Þjónustan þarf að vera sambærileg óháð búsetu og við þurfum að geta mælt hvort breytingarnar skili börnum raunverulega betri þjónustu. Umsagnir um stefnu- og framkvæmdaáætlunina sýna líka hvar þarf að gera betur. Þar er meðal annars bent á stöðu fatlaðra barna, mikilvægi þess að stuðningur falli ekki niður þegar börn færast milli kerfa og að fjölskyldur eigi ekki sjálfar að þurfa að bera ábyrgð á samhæfingu þjónustunnar. Farsældin er því hvorki fullkláruð né misheppnuð. Hún er komin í virkni að verulegu leyti en uppbyggingunni er ekki lokið og verður áfram í þróun næstu misseri. Aftur fyrir þingið Tillaga til þingsályktunar um stefnu og framkvæmdaáætlun um farsæld barna dagaði uppi á síðasta þingi þrátt fyrir mikla vinnu í velferðarnefnd. Tekið hafði verið tillit til fjölmargra ábendinga umsagnaraðila og málið var komið langt í þinglegri meðferð. Á sama tíma dagaði uppi annað mikilvægt og nátengt mál, frumvarp um endurskoðun barnaverndarlaga. Málið hafði verið afgreitt úr nefnd en hlaut ekki náð fyrir augum stjórnarandstöðunnar þegar kom að þinglokasamningum. Bæði málin koma aftur fyrir Alþingi nú á haustþingi. Tafir hafa afleiðingar. Umbótum sem búið er að undirbúa seinkar og þar með réttarbótum fyrir börn. Það er ekki ásættanlegt að vel unnin mál sem eiga að bæta stöðu barna nái ekki fram að ganga eða tefjist von úr viti. Í barnaverndarfrumvarpinu er meðal annars verið að skýra ábyrgð þegar barn þarf þjónustu fleiri en eins kerfis. Þar er umgjörð sérhæfðra úrræða fyrir börn með miklar og flóknar þarfir styrkt. Þetta tengist Farsældinni beint. Barn á ekki að sitja fast á milli kerfa á meðan deilt er um hver á að veita því þjónustu. Nú er brýnt að við ljúkum þessari vinnu og komum þeim umbótum sem þegar hafa verið undirbúnar til framkvæmda. Farsældin er ekki á byrjunarreit. Hún er byrjuð. Verkefnið núna er að styrkja hana og klára það sem enn vantar. Á endanum snýst Farsældin ekki um lög, stofnanir eða skýrslur. Hún snýst um að kerfin vinni saman þannig að börn og foreldrar þurfi ekki að ganga á milli Pontíusar og Pílatusar í leit að hjálp. Höfundur er þingkona Flokks fólksins. Greinin var uppfærð að morgni 10. september þar sem höfundur sendi fréttastofu ranga útgáfu af greininni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir Börn og uppeldi Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Ríkið vill minnst tvö og hálft ár milli barnanna þinna Karítas Ólafsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun