Snúum vörn í sókn Bjarni Fritzson, Hafrún Kristjánsdóttir, Magnea Gná Jóhannsdóttir og Þorvaldur Davíð Kristjánsson skrifa 10. september 2026 07:45 Niðurstöður PISA voru birtar í vikunni og þar er ýmislegt sem við getum glaðst yfir. Ísland er meðal efstu þjóða í þrautseigju nemenda, félagslegum tengslum í skóla, sjálfstjórn í námi og stuðningi kennara að mati nemenda og hér mælist einelti lítið. En niðurstöðurnar eru engu að síður áhyggjuefni fyrir Ísland og kalla á skýr viðbrögð. Námsárangur íslenskra nemenda heldur áfram að versna. Á aðeins tíu árum hefur Ísland fallið um 64 PISA-stig í lestri og ekkert ríki hefur fallið meira samanlagt á sama tímabili. Við í meirihlutanum tökum niðurstöðunum alvarlega. Við getum þó ekki sagt að þær komi okkur mikið á óvart. Ekki vegna þess að íslensk börn geti ekki lært eða vegna þess að kennararnir okkar séu ekki nógu góðir. Þvert á móti. Þegar þróun árangurs íslenskra nemenda í PISA-könnunum OECD frá aldamótum er skoðuð er rauði þráðurinn sá að PISA fallið er ekki hægt að rekja til einnar afmarkaðrar orsakar eða eins ákveðins atburðar. Gögnin benda fremur til þess að um samverkandi og langvarandi þróun sé að ræða sem hófst löngu áður en hægt var að benda á þætti á borð við nýja aðalnámskrá, aukna skjánotkun eða heimsfaraldurinn. Við þurfum því að hætta að leita að einni einfaldri skýringu og horfa frekar á heildarmyndina. Við þurfum að skoða kröfur í námi, námsefni, námsmat, kennsluhætti, starfsumhverfi kennara og þann stuðning sem nemendur fá. Jafnframt þurfum við að læra af þeim löndum sem hafa náð betri árangri og skoða hvað þau hafa gert öðruvísi ásamt því að horfa til úrbóta tillagna OECD og sérfræðinga á sviði menntamála. Frá upphafi kjörtímabilsins höfum við lagt ríka áherslu á þessi mál, meðvituð um þá þróun sem verið hefur í námsárangri og þörfina fyrir skýrar úrbætur. Við ýttum því strax úr vör aðgerðum til úrbóta og á síðustu 100 dögum höfum við þegar komið ýmsu í verk. Við gerðum samræmdan Matsferil að skyldu í öllum þeim árgöngum þar sem hann stendur til boða. Markmiðið er að tryggja kennurum, skólum og foreldrum reglulegar upplýsingar um stöðu og framfarir nemenda í lesskilningi og stærðfræði. Með Matsferli er í fyrsta sinn hægt að fylgjast með námsárangri nemenda með markvissum og samræmdum hætti á landsvísu. Þær upplýsingar gera okkur kleift að grípa fyrr inn í, veita markvissari stuðning og koma í veg fyrir að börn dragist aftur úr árum saman án viðeigandi aðstoðar. Til lengri tíma ætti þessi nálgun að stuðla að bættum námsárangri, meðal annars í þeim þáttum sem PISA mælir. Skóla- og frístundaráð Reykjavíkurborgar hefur skorað á ríkið að tryggja vandað námsefni fyrir öll fög og alla bekki og að nægt fjármagn fylgi til kaupa á því. Þrátt fyrir skýra ábyrgð ríkisins hefur framboð námsgagna lengi verið takmarkað og fjármögnun ófullnægjandi, með þeim afleiðingum að kennarar þurfa oft sjálfir að útbúa námsefni. Það eykur álag, tekur tíma frá kennslu og getur aukið ójöfnuð milli nemenda. Vönduð námsgögn eru eitt af grunnverkfærum góðs skólastarfs. Við verðum því að tryggja kennurum þau verkfæri sem þeir þurfa til kennslu og börnum fjölbreytt og áhugavert námsefni. Við samþykktum símafrí í öllum grunnskólum Reykjavíkur. Rannsóknir benda til þess að notkun stafrænna tækja í skóla sem tengist ekki námi geti dregið úr einbeitingu, haft neikvæð áhrif á námsárangur og minnkað lestraráhuga. Við ætlum að auka gagnsæi námsárangurs og birta niðurstöður samræmdra mælinga með þeim hætti sem gagnast framþróun skólakerfisins best. Aðalatriðið er að nýta niðurstöðurnar markvisst til að greina stöðu hvers skóla, sjá hvar þörf er á úrbótum og auknum stuðningi og fylgjast með framförum yfir tíma. Ekki síður er mikilvægt að læra af þeim skólum sem ná góðum árangri og þar sem nemendur sýna jákvæða framvindu. Sem dæmi má nefna glæsilegan árangur Fellaskóla í Lesmáli. Af þeim árangri þurfum við að læra, greina hvað hefur skilað þessum árangri og miðla þeirri þekkingu til annarra skóla. Við höfum stigið skref til að jafna aðstöðu barna til náms með því að koma á sérstakri heimanámsaðstoð fyrir grunnskólabörn. Markmiðið með heimanámsaðstoðinni er að auka aðgengi að stuðningi við heimanám og auðvelda þannig börnum og fjölskyldum þeirra að takast á við námið, óháð aðstæðum heima fyrir. Við ætlum að kortleggja öll skólabókasöfn í borginni og að auka við fjárframlög til bókakaupa. Reykjavíkurborg er samstarfsaðili í Svakalegu lestrarkeppninni sem fer af stað 15. september en sú lestrarkeppnin heppnaðist frábærlega í fyrra og tæplega 17 þúsund krakkar lásu 9,7 milljón mínútur á einum mánuði! Í Melaskóla las hver nemandi til dæmis að meðaltali í um eina klukkustund á dag allan mánuðinn. Lestraráhuga barna hefur dvínað og mikilvægt er að vekja upp áhuga krakka á bókum og lestri með öflugum skólabókasöfnum, skemmtilegum lestrarkeppnum, rithöfundaheimsóknum og fleiri verkefnum sem auka áhuga á lestri. Sókn í menntamálum Betur má ef duga skal. Nú þarf að draga skýra línu, snúa vörn í sókn og ráðast markvisst í þau verkefni sem blasa við. Næsta skref er því gerð sóknaráætlunar um bættan námsárangur í grunnskólum Reykjavíkurborgar. Markmið okkar er skýrt. Við viljum gera skólakerfið okkar betra fyrir öll börn. Við viljum bæta námsárangur allra nemenda án þess að það komi niður á líðan þeirra. Fleiri stig í PISA er ekki markmið í sjálfu sér. Það á að vera afleiðing af góðu skólakerfi, kerfi þar sem börn læra og ná árangri, en líður jafnframt vel og fá tækifæri til að blómstra. Höfundar skipa meirihluta Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Framsóknar í skóla- og frístundaráði Reykjavíkurborgar Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Bjarni Fritzson Magnea Gná Jóhannsdóttir Þorvaldur Davíð Kristjánsson Borgarstjórn Skóla- og menntamál PISA-könnun Mest lesið Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson Skoðun Eftir Kveiksþátt Anna Björg Jónsdóttir,Hjördís Halldóra Sigurðardóttir Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir Skoðun Cornell og klefamenning Olga Björt Þórðardóttir Skoðun Skoðun Skoðun VSK á baðlón: Vandinn er ekki skatturinn heldur fyrirvarinn Guðmundur Björnsson skrifar Skoðun Tækifærið í Stofnun atvinnuveganna Karl Steinar Óskarsson skrifar Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Heggur sá er hlífa skyldi Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Sporin í snjónum Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Stórefla þarf kjarnahlutverk ASÍ Arnaldur Grétarsson skrifar Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar Skoðun Við í Ölfusi höfum ekki beðið eftir öðrum, við erum leiðandi Grétar Ingi Erlendsson skrifar Skoðun Hvernig get ég fundið ró þegar barnið mitt er í uppnámi? Sigrún Þóra Sveinsdóttir skrifar Skoðun Vill ráðherra veikja lífeyriskerfið? Finnbjörn A Hermannsson skrifar Skoðun Iceland Is Better Off than Switzerland Carl Baudenbacher skrifar Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar Skoðun Góð þjónusta kostar, slök þjónusta kostar meira Laufey E. Gissurardóttir skrifar Skoðun Kostnaðurinn við nei Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Hver stal kökunni úr krúsinni? Gunnar Valur Sveinsson skrifar Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sjónvarpið 60 ára: Þögnin segir líka sögu Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Takk Hörður Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Firrur um aflareglu fyrir þorsk Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun EES málið, ESA og fullveldi Íslands og tími komin til varna Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Sýnum viljann í verki Aðalbjörg Stefanía Helgadóttir skrifar Skoðun Bókun 35 – þegar molnar undan stjórnkerfinu Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Pínu sársauki á unga fólkið? Helgi Bárðarson skrifar Skoðun Austurland margborgar sig Ragnar Sigurðsson skrifar Skoðun Þorum við að tala um sorgina? Stefán Már Gunnlaugsson skrifar Skoðun Verklokafælni stjórnvalda Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Við getum gert betur Hulda Brá Magnadóttir skrifar Skoðun Hverjum er frelsið ætlað? Guðný S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Bakslag fyrir barnafjölskyldur í Hafnarfirði Valdimar Víðisson skrifar Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar Sjá meira
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun
Skoðun Áskorun til dómsmálaráðherra, nú ert þú í dauðafæri Þorbjörg Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar
Skoðun Fullorðið fatlað fólk á rétt á áframhaldandi ráðgjöf og greiningu Atli Már Haraldsson Zebitz skrifar
Skoðun Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Stríð Rússlands gegn utanríkisviðskiptum Úkraínu er stríð gegn fæðuöryggi heimsins Clara Ganslandt skrifar
Skoðun Þorum við að banna Airbnb eða erum við líka siðferðislegir hugleysingjar? Helen Ólafsdóttir skrifar
Nýr meirihluti tók við leikskólakerfi í stórsókn Steinunn Gyðu- og Guðjónsdóttir,Bjarnveig Birta Bjarnadóttir Skoðun