Biður Loga afsökunar „á dónaskapnum“ Silja Rún Sigurbjörnsdóttir skrifar 9. september 2026 06:48 Gunnar birti færsluna á Facebook í gærkvöldi. Vísir/Samsett Gunnar Helgason rithöfundur biður Loga Einarsson menningarmálaráðherra afsökunar eftir að hafa farið ófögrum orðum um hann. Ástæðan var niðurskurður Bókasafnssjóðsins um tugi milljóna. „
Í gær skrifaði ég reiðipóst um framgöngu ríkisstjórnarinnar í málefnum Bókasafnssjóðs. Ég sagði hæstvirtum menningarmálaráðherra að hoppa upp í ... Ég sagði forsætis- og utanríkisráðherrum að skammast sín,“ skrifaði Gunnar í Facebook-færslu í gærkvöldi. Í fyrradag kynnti Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra, fjárlagafrumvarpið fyrir árið 2027. Breytingarnar á Bókasafnssjóðnum féllu ekki í kramið hjá Gunnari en til stendur að skera sjóðinn niður úr 224,5 milljónum í 142,3. Þessi niðurskurður komi sér í lagi niður á barnabókahöfundum sem fái jafnt greitt úr sjóðnum á meðan annars staðar fái hann greitt fyrir lengd bókanna. Barnabækur séu almennt styttri. Hann mætti í Bítið á Bylgjunni í gær til að útskýra sitt mál. Nú hefur Gunnar hins vegar beðist afsökunar eftir tilkynningu frá menningarráðuneytinu. Í henni segir að Bókasafnssjóður sé vissulega 142,3 milljónir en einnig sé gert ráð fyrir auknum fjármunum upp á 150 milljónir króna til að efla íslenska tungu. Áhersla verði lögð á börn og ungmenni. „Unnið er að útfærslu þeirra fjármuna, þar á meðal aðgerð sem snýr sérstaklega að höfundum barna- og ungmennabóka,“ segir í tilkynningunni. Stöðugt að berjast „Það má segja að þetta sé friðarpípa frá ríkisstjórninni. Kannski var hún kokkuð upp í flýti í morgun eða þá að hún var í pípunum en átti bara eftir að fá kynninguna. Hvort heldur sem er þá er komin útrétt hendi og ég ætla mér ekki að slá í hana,“ skrifar Gunnar. „Því vil ég biðjast afsökunar á dónaskapnum í mér. Sérstaklega bið ég Loga afsökunar. Logi Einarsson, afsakið.“ Hann segir að viðbrögð sín hafi verið vegna þess að barnabókahöfundar hafi stöðugt þurft að berjast fyrir umræddum sjóði en einnig fyrir höfundarrétti þeirra og eignarrétti. Haft er eftir Loga í tilkynningu ráðuneytisins að hluti fjármagnsins verði nýttur í að styrkja Bókasafnssjóðinn og séu sömuleiðis fleiri leiðir til skoðunar til að efla lestraráhuga barna og ungmenna. „Við stöndum frammi fyrir áskorunum þegar kemur að lestri barna og ungmenna og við þeim er hvorki til ein töfralausn né ein augljós aðgerð. Vanda þarf vel til verka og tryggja að fjármagnið nýtist sem best,“ er haft eftir Loga en í nýbirtum niðurstöðum úr PISA-könnuninni kemur fram að tæplega helmingur íslenskra nemenda nái ekki grunnfærni í lesskilningi. „Nú er unnið að tillögum um hvernig fjármunum í málaflokknum verði varið með sem árangursríkustum hætti. Tillögurnar verða mótaðar í samráði við hagaðila og kynntar þegar líður á haustið.“
Bókasöfn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Börn og uppeldi Læsi Bókmenntir Fjárlagafrumvarp 2027 Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Fleiri fréttir Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjálfstæðisflokkur tapar fylgi á meðan fylgi hinna haggast ekki Ný fylgiskönnun Maskínu og lítið þokast í viðræðum Icelandair Föst krónutala í stað hlutfalls Lítill hluti af milljörðunum þrjátíu sem fari í fangaklefa Lögregla fái að hirða bílana af „skussunum“ Líðan mannsins stöðug en slysið alvarlegt Hendurnar vilji ekkert með þennan „krabbameinsgaur“ hafa Ekkert um að fjalla Áverkar í 55 atvikum í grunnskólum borgarinnar Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Sjá meira