Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Magnús Jochum Pálsson skrifar 3. september 2026 15:13 Stavros Floros missti vinstri fót sinn fyrir ofan hné undan ströndum Dóminíkanska lýðveldisins og telur framleiðendur Survivor bera ábyrgð. Grikkinn Stavros Floros, keppandi í nýjustu þáttaröðinni af grísku útgáfu raunveruleikaþáttanna Survivor, hefur höfðað mál gegn framleiðendum þáttarins vegna alvarlegs slys sem hann lenti í undan ströndum Dóminíska lýðveldisins. Floros missti vinstri fótinn fyrir ofan hné og krefst meira en 100 milljóna Bandaríkjadala (um tólf milljarða króna) í skaðabætur.
Dægurmálamiðillinn TMZ greindi frá málinu. Samkvæmt dómsskjölum, sem TMZ hefur undir höndunum, þá átti slysið sér stað við strendur Saona-eyju í Dóminíska lýðveldinu. Hinn 22 ára Floros hafi þar verið að veiða fisk með spjóti um borð í bát en það fór ekki betur en svo að hann lenti í skrúfu ferðamannabáts á svæðinu. Floros heldur því fram að framleiðendur þáttanna hafi byggt þættina í kringum það að láta þátttakendur veiða fiska með spjóti fyrir opnu hafi þrátt fyrir mikla umferð ferðamannabáta á svæðinu. Jafnframt heldur hann því fram að engir öryggisbátar hafi verið á svæðinu eða aðrar varúðarráðstafanir þótt nýlega hafi þar orðið banasly. Floros segist hafa misst fót sinn niður á hafsbotn og að ókunnugur maður um borð í ferðamannabátnum hafi haldið honum á lífi með því að stöðva blóðflæði með æðaklemmu. Hann hafi síðan verið fluttur á spítala í Miami þar sem hann fór í fjölda skurðaðgeða á 61 dags spítalavist sinni. Frásögn Floros stangast hins vegar á við yfirlýsingu AcunMedya, framleiðslufyrirtæki þáttanna, frá því í maí en þar kom fram að hann hefði ekki verið við tökur á þáttunum þegar slysið átti sér stað. Málið hefur verið til rannsóknar hjá yfirvöldum í Dóminíska lýðveldinu og var skipstjóri ferðamannabátsins handtekinn eftir slysið.
Dóminíska lýðveldið Raunveruleikaþættir Grikkland Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Fleiri fréttir „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Sjá meira