Bankaskattar séu fimm sinnum hærri en í samanburðarlöndum Árni Sæberg skrifar 3. september 2026 10:47 Heiðrún Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu. Vísir/Ívar Fannar Samkvæmt nýrri greiningu KPMG fyrir Samtök fyrirtækja í fjármálaþjónustu eru sértækir skattar sem lagðir eru á íslenska viðskiptabanka rúmlega fimmfalt hærri en sértækir skattar sem lagðir eru á bankar í öðrum löndum Vestur-Evrópu og þrefalt hærri en þar sem skattarnir eru næst hæstir. Verði af fyrirhugaðri skattahækkun á íslensk fjármálafyrirtæki hækki hlutfallið enn frekar og Ísland fjarlægist Evrópu í vaxandi mæli.
Í fréttatilkynningu þess efnis frá SFF segir að í greiningunni komi fram að Ísland sé eina ríki Vestur-Evrópu sem leggi í senn sérstaka viðbótarskatta á skuldir, hagnað og laun fjármálafyrirtækja umfram aðrar atvinnugreinar. Hér að neðan má sjá graf sem sýnir sértæka bankaskatta í löndum Vestur-Evrópu. Rétt er að nefna að á súlunni sem sýnir Ísland er einnig áætlun miðað við hækkun bankaskatta upp á tvo, fjóra og sex milljarða króna. Hækkun bankaskatta hefur verið boðuð en ekkert liggur fyrir um hversu mikil hún verður. Greiningin dragi fram að í öðrum löndum í Vestur-Evrópu, sem yfir höfuð leggja sértæka skatta á banka, séu skattstofnarnir einn eða tveir. Ísland sé því eina ríkið úr þeim hópi þar sem sértækir skattstofnar eru þrír. Full þörf sé á að endurskoða boðaða hækkun Haft er eftir Heiðrúnu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra SFF, að greiningin sýni að full þörf sé á að áform stjórnvalda um fyrirhugaða skattahækkun verði endurhugsuð. „Þrátt fyrir smæð landsins erum við búin að búa okkur til mjög íþyngjandi og óþarflega flókna umgjörð í alþjóðlegu samhengi. Þá voru skattarnir upphaflega að verulegu leyti hugsaðir sem tímabundnir. Í Hvítbók um framtíðarsýn fyrir fjármálakerfið sem stjórnvöld gáfu út árið 2018 voru hinir háu sértæku skattar sagðir hluti af svokölluðu Íslandsálagi. Þá myndaðist breið samstaða um að það fyrirkomulag væri þjóðhagslega óheppilegt. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn og Seðlabanki Evrópu hafa einnig varað samanburðarlönd okkar við hugmyndum um aukna sértæka skattheimtu á banka sem þó hafa verið tímabundnar og mun lægri en íslensku bankarnir greiða árlega.“ Hún hafi skilning á því markmiði stjórnvalda að skila af sér hallalausum fjárlögum. „Það skiptir hins vegar máli að valin leið að því markmiði valdi sem minnstum þjóðhagslegum skaða. Stjórnvöld hafa enn ekki útskýrt hvernig þessi aðgerð uppfylli það markmið miðað við aðra valkosti þegar kemur að tekjum eða útgjöldum.“ Muni skekkja samkeppnishæfni Þetta eigi sérlega við þegar horft er til annarra markmið stjórnvalda um bætt lífskjör, aukna atvinnuvegafjárfestingu, umbætur á húsnæðismarkaði og að laða að erlenda fjárfesta. „Með þessari skattlagningu eru þau í raun að vinna gegn öllum ofangreindum markmiðum. Þá mun aukin skattbyrði skekkja samkeppnishæfni Íslands enn frekar og hætt við að ófyrirsjánleiki við breytingar á skattaumhverfi muni fæla frá erlenda fjárfesta. Afar mikilvægt er að efla samkeppnishæfni Íslands og hin mikla skattlagning á íslenska banka vinnur einnig gegn því. Það er kominn tími til að endurskoða þessa þrjá skattstofna í heild sinni, hvaða fyrirkomulag á skattheimtu er best til þess fallið að valda minnstum skaða og styðja við önnur markmið stjórnvalda.“ 57 krónur af hverjum hundrað renni til ríkisins Loks er haft eftir Heiðrúnu að einnig þurfi að horfa til þess að ríkið sé stærsti hluthafinn í bankakerfinu. „Ríkið á þegar um 40% af viðskiptabönkunum í gegnum Landsbankann og leggur þar að auki 6% viðbótartekjuskatt á fjármálafyrirtæki ofan á hefðbundinn 20% tekjuskatt. Af hverjum 100 krónum sem viðskiptabankarnir hagnast um eftir skatta aukast tekjur ríkissjóðs að jafnaði um 57 krónur vegna greiðslu bankanna á tekjuskatti, viðbótartekjuskatti og arðgreiðslna frá Landsbankanum. Þetta hlutfall er langt umfram það sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Við þetta bætast ótekjutengdir skattar og gjöld sem bankarnir greiða til ríkisins, þar á meðal hinir tveir sértæku bankaskattarnir.“
Skattar, tollar og gjöld Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Fjármálafyrirtæki Efnahagsmál Tengdar fréttir Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð. 17. ágúst 2026 11:52 Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag. 9. júní 2026 19:01 Mest lesið Julebryg verði mun ódýrari Viðskipti innlent Starfsfólk orðið svo þreytt á endalausum breytingum – ekki endilega vinnunni sjálfri Atvinnulíf Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Viðskipti innlent Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Viðskipti innlent Hafa gott fólk í vinnu og borga reikningana á réttum tíma Framúrskarandi fyrirtæki Karl Wernersson opnar sig Viðskipti innlent Bjarni Benediktsson: „Eftirsóknarvert að vera í þessum hópi“ Framúrskarandi fyrirtæki Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Viðskipti innlent Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Viðskipti innlent Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Forstjóri og stjórnarformaður kveðja ÍAV Bein útsending: Sjávarútvegsdagurinn 2026 Julebryg verði mun ódýrari Uppbygging umdeilds hótels í uppnámi Segja Adomat reyna að koma höggi á Borealis Borealis stefnt vegna hundruða milljóna króna leiguskuldar Karl Wernersson opnar sig Hvar á sonur minn að geyma húsnæðissparnaðinn sinn? Sektað fyrir að láta gesti skanna QR-kóða til að sjá verðið Bláa lónið má kaupa annan ferðaþjónusturisa 281 sagt upp í fimm hópuppsögnum Ráðinn forstjóri Elkem á Íslandi Róar áhyggjufulla Hafnfirðinga Orð Andra Snæs um apaheila dæmi sig sjálf Samkaup kaupir Fjarðarkaup Loka kaffihúsinu Örnu á Eiðistorgi Nýtt gjald hefur áhrif á íslenska seljendur Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Sjá meira
Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Meirihluti landsmanna telur að boðuð skattahækkun stjórnvalda á íslenska banka muni hafa neikvæð áhrif á almenning, íslensk fyrirtæki, viðskiptavini bankanna og hluthafa þeirra. Landsmenn telja aftur á móti flestir að boðuð hækkun hefði jákvæð áhrif á ríkissjóð. 17. ágúst 2026 11:52
Hvikar ekki frá bankaskatti þrátt fyrir viðvaranir um hærri kostnað lántaka Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segist ekki hafa skipt um skoðun á boðuðum bankaskatti þrátt fyrir harða gagnrýni fjármálafyrirtækja á opnum fundi Samtaka fyrirtækja í fjármálaþjónustu í dag. 9. júní 2026 19:01