Galliano slaufað og óvissa með Met Gala næsta árs Magnús Jochum Pálsson skrifar 31. ágúst 2026 16:05 John Galliano, fyrrverandi listrænn stjórnandi tískuhúsana Dior, Givenchy og Maison Margiela, átti að vera heiðraður á Met Gala á næsta ári en ekkert verður af því. Getty Forsvarsmenn Metropolitan-listasafnsins og Met Gala-kvöldsins hafa hætt við að heiðra breska hönnuðinn John Galliano. Met Gala næsta árs átti að vera tileinkað ævistarfi hönnuðarins en hann hefur í gegnum tíðina valdið hneykslan vegna rasískra og andgyðinglegra yfirlýsinga. Ekki liggur fyrir hvert þema kvöldsins verður í staðinn.
Galakvöld Metropolitan-safnsins, Met Gala, er einn stærsti tískuviðburður í heimi, hefur verið haldinn árlega síðan 1973 og fer jafnan fram fyrsta mánudaginn í maí. Þar koma saman stærstu stjörnurnar í tískuheiminum, auk fjölmargra þekktra nafna úr hinum ýmsu brönsum, til að safna pening fyrir tískuhluta Metropolitan-safnsins (e. Metropolitan Musesum Costume Institute) í New York. Fyrr í sumar var tilkynnt að þemað fyrir galakvöld næsta árs bæri yfirskriftina John Galliano: Horizons (eða John Galliano: Sjóndeildarhringir á íslensku). Samhliða því myndi safnið setja upp sýningu sem spannaði allan feril Galliano en hann stofnaði tískumerkið John Galliano og var síðar listrænn stjórnandi merkjanna Dior, Givenchy og Maison Margiela. Sýningin hefði því verið aðeins þriðja skiptið sem lifandi hönnuður hlýtur slíkan heiður; Yves Saint Laurent var heiðraður árið 1983 og Rei Kawkubo hjá Comme des Garçons árið 2017. Ekki verður þó af því eftir að safnið tilkynnti í dag, ásamt Galliano sjálfum, að þau hefðu hætt við að heiðra hann. Afdrifaríkt kvöld í París „Eftir miklar vangaveltur og samræður við Met-safnið og alla þá sem viðriðnir eru, hef ég ákveðið, með sorg í hjarta, að það sé best að sýningin fari ekki fram á þessum tímapunkti. Ég tek fulla ábyrgð á skaðanum sem orð mín ollu í fortíðinni, sérstaklega skaðanum sem ég vann samfélagi gyðinga og Asíubúa, og ég er enn miður minn yfir því,“ sagði Galliano í yfirlýsingunni. Galliano var eitt heitasta nafnið í tískubransanum á tíunda áratugnum og upp úr aldamótum en beið mikla álitshnekki í kjölfar atvika árið 2011 þar sem hann gerðist sekur um andsemitísk og rasísk ummæli. Frægast þessara atvika átti sér stað á bar í París þar sem hann náðist á myndband segja að hann elskaði Hitler og að allir gyðingar hefðu átt að deyja í Helförinni. Sjálfur sagðist hann ekki muna eftir atvikinu og bar fyrir sig áfengis- og verkjalyfjafíkn. Galliano var í kjölfarið dæmdur í tveimur ákæruliðum fyrir hatursglæpi og var gert að greiða sex þúsund evrur. „Ég geri mér grein fyrir að almennileg yfirbót fæst ekki með sýningu, stofnanaviðurkenningu eða opinberri yfirlýsingu. Hún fæst með því að axla áfram ábyrgð með hlustun, lærdómi og hegðun yfir ákveðinn tíma,“ sagði Galliano í yfirlýsingunni í dag. Galliano á leið í dómsal árið 2011.EPA „Ég vil ekki að umræðan í kringum mig setji Met-safnið í slæma aðstöðu eða taki athygli frá magnaðri vinnu tískusafnsins. Ég geri mér einnig grein fyrir því og virði að sýning sem heiðrar verk mín gæti verið sársaukafull fyrir einhverja,“ sagði hann jafnframt. Þá þakkaði hann þeim sem hafa hjálpað honum síðustu fimmtán ár af edrúmennsku og sagðist standa í þakkarskuld við Metropolitan-safnið og Önnu Wintour, fyrrverandi ritstjóra Vogue, sem hefur skipulagt Met Gala-kvöldið síðustu áratugi. Wintour tjáði sig sjálf um málið og sagði ákvörðun Galliano um að fresta sýningunni til marks um hugrekki hans og karakter. Ákvörðunin væri rétt fyrir bæði hann og safnið. Þá kom fram í tilkynningu Vogue að sýning næsta árs og þemað fyrir Meta Gala-kvöldið yrði tilkynnt síðar. Samkvæmt heimildum New York Times hafði ákvörðun safnsins um að heiðra Galliano mætt mikilli gagnrýni hjá stjórn safnsins og styrktaraðilar hefðu sömuleiðis hótað að hætta við að styðja við safnið ef af sýningunni yrði.
Tíska og hönnun Bandaríkin Mest lesið Sveitadraumurinn breyttist í martröð Lífið Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Lífið Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Lífið Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Lífið Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Lífið Hætta við sýningu á The Social Reckoning á Íslandi Bíó og sjónvarp Cage og Banderas í næstu seríu True Detective Bíó og sjónvarp „Þvílík gleði með þennan tíma“ Lífið Útilegumaðurinn býður nú meira en ferðavagna og útivistarbúnað Lífið samstarf Árlega greinast 2.146 einstaklingar: Svona nýtist þinn stuðningur Lífið samstarf Fleiri fréttir „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Missti dóttur sína og tvö fóstur í kjölfarið Hvað veistu um… þjóðveginn frá Reykjavík til Akureyrar? Spurði um úrsögn Jóns fyrir hálfu ári Siggi Chaplin allur Sigga Beinteins í suðrænni sveiflu með kæró Berglind Alda og Auddi keppa í Taskmaster Patrekur og Binni tilheyra fimm minnihlutahópum Gylfi seldi sumarbústaðinn á 85 milljónir Ólétt 52 ára Sjóðheit hjúkka selur skvísuíbúð Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Sjá meira