Körfubolti

Svali hættur sem for­maður en stutt í val á arf­taka

Sindri Sverrisson skrifar
Svali Björgvinsson afhenti Guðbjörgu Sverrisdóttur viðurkenningu þegar hún varð fyrsta konan til að spila 400 deildarleiki í efstu deild hér á landi.
Svali Björgvinsson afhenti Guðbjörgu Sverrisdóttur viðurkenningu þegar hún varð fyrsta konan til að spila 400 deildarleiki í efstu deild hér á landi. Vísir/Anton

Eftir að hafa verið formaður körfuknattleiksdeildar Vals í fjölmörg ár ákvað Svali Björgvinsson að stíga til hliðar í vor. Unnið er að því að skipa arftaka hans.

Svali hefur leitt körfuboltastarf Vals í fjölmörg ár og með hann sem formann hefur félagið átt sitt mesta gullaldarskeið þar sem karlaliðið varð til að mynda Íslandsmeistari árið 2022, eftir 39 ára bið, og aftur árið 2024, og kvennaliðið varð Íslandsmeistari árin 2019, 2021 og 2023.

Svali tók við nýju starfi í sumar sem mannauðsstjóri hjá Íslandsbanka, eftir að hafa verið hjá Sjóvá, og annir sem fylgja því að breyta um starfsvettvang spila eflaust inn í ákvörðunina um að hætta sem formaður eftir síðustu leiktíð.

Svali fer þó ekki langt því hann mun áfram sitja í stjórn körfuknattleiksdeildar Vals. Með honum í stjórn eru Gunnar Zoega, Lárus Blöndal, Sveinn Zoega, Hallveig Jónsdóttir, Svanur Valdimarsson og Benóný Svanur Sigurðsson.

Ljóst er að nýr formaður verður skipaður úr þessum hópi og samkvæmt upplýsingum Vísis ætti sú ákvörðun að liggja fyrir í nánustu framtíð.

Þrátt fyrir að staða formanns sé laus hafa Valsmenn verið virkir á leikmannamarkaðnum í sumar. Pablo Bertone er snúinn aftur í karlaliðið, frá Stjörnunni, og stigakóngur síðustu leiktíðar í Bónus-deildnn, Dwayne Lautier-Ogunleye, kom frá Njarðvík.

Kvennaliðið hefur sömuleiðis fengið nýja leikmenn og kom Dzana Crnac frá Ármanni, Bergdís Anna Magnúsdóttir frá Hamri/Þór og Aníta Kristín Jónsdóttir heim frá ÍR. Þá munu fyrirliðinn Dagbjört Dögg Karlsdóttir og lykilmennirnir Þóranna Kika Hodge-Carr, Reshawna Stone og Alyssa Cerino halda kyrru fyrir á Hlíðarenda.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×