Fyrstu viðbrögð við tölum úr nýjustu könnun Maskínu Freyja Þórisdóttir skrifar 25. ágúst 2026 15:11 Greint var frá niðurstöðum úr glænýrri könnun Maskínu í Pallborðinu sem fór fram klukkan 14:00 í dag. Þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá, Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson forstjóri Fenris Creations. Vísir/Vilhelm Í nýjustu könnun Maskínu í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið dregur saman milli fylkinga en fulltrúar já og nei-hreyfinga sammælast um það í Pallborði að það verði mjótt á munum. Forsætisráðherra sagði ómögulegt að segja til um það hvernig niðurstaðan verði á laugardag en ríkisstjórnin muni virða hana hvernig sem fari.
Þriðja Pallborð fréttastofu Vísis og Sýnar í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslu fór fram í dag en þar mættu þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra og Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já, til að sjá sem fulltrúar já-ara en Guðrún Hafsteinsdóttir formaður Sjálfstæðisflokksins og Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, mættu fyrir hönd nei-ara. Vonar að fólk mæti á kjörstað Niðurstöður nýrrar könnunar Maskínu voru frumsýndar í upphafi Pallborðsins en samkvæmt henni hyggjast 51,3 prósent þeirra sem taka afstöðu segja já en 48,7 prósent segja nei. Í síðustu könnun Maskínu var bilið meira en þrátt fyrir að breytingar séu innan skekkjumarka er hlutfall þeirra sem hyggjast segja nei að aukast. „Þetta er hnífjafnt og það er ómögulegt að ráða í það hvernig þetta fer á laugardaginn,“ sagði Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra í Pallborðinu. Hún hafði einnig orð á því að það væri einmitt meðal annars vegna þessa sem ákvörðunin hafi verið „sett í fangið á þjóðinni“. Hún bindi vonir við að fólk mæti á kjörstað enda hafi það gríðarlega mikil áhrif á niðurstöður atkvæðagreiðslunnar en hver svo sem niðurstaðan verði muni hún virða hana og vinna með hana. Í spilaranum hér fyrir neðan er hægt að horfa á upptöku af Pallborðinu. Verði alltaf mjög mjótt á munum Því næst tók Jónas Hagan Guðmundsson, fjárfestir og einn stofnenda Já til að sjá, til máls en hann sagði gott að sjá að forskotið væri enn já-urum í vil þrátt fyrir að vera minna en áður. Sagan sýni þó að kosningar sem þessar geti oft spilast út á annan hátt en kannanir sýni, svo sem í þjóðaratkvæðagreiðslum í Noregi og Svíþjóð. Það verði alltaf ansi mjótt á munum. Hilmar Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations, áður CCP, gat sammælst Jónasi hvað það varðar. Hins vegar þætti honum að það sjái ekki fyrir endann á rifrildi hreyfinganna að lokinni þjóðaratkvæðagreiðslu. Þetta sé spurning um „fólk sem vill ekki fara í ferðalag og svo fólk sem vill kíkja í pakkann“ en það verði alltaf „voða óskýrt“ sama hvernig fari á laugardaginn. Sé vongóð fyrir laugardeginum „Augljóslega hvorn veginn sem þetta fer í þessu ferðalagi þá held ég að við verðum að þræta um þetta allan tímann,“ sagði hann og ítrekaði að ef munurinn verði ekki gríðarlegur já-urum í vil muni nei-arar halda áfram að berjast fyrir sínu. Fyrstu viðbrögð Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns Sjálfstæðisflokksins voru svipuð og hinna en hún sagði niðurstöður könnunarinnar „í anda þess sem við höfum séð, þær hafa allar sýnt voða lítinn mun.“ Hún nefndi því næst sem dæmi að hér á árum áður hafi kannanir fram að atkvæðagreiðslu tengt Icesave sýnt niðurstöður öfugt við það sem svo kom upp úr kjörkössunum. Hún sagðist svo vera mjög vongóð fyrir niðurstöðum laugardagsins.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Samfylkingin Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Sjálfstæðisflokkurinn Pallborðið Skoðanakannanir Tengdar fréttir Hnífjafnt í nýrri könnun Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei. 5. ágúst 2026 22:10 Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. 15. ágúst 2026 12:01 Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar. 14. ágúst 2026 18:33 Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka. 13. ágúst 2026 18:31 Mest lesið Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Erlent Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Innlent Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Innlent Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Innlent Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Innlent Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Innlent Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Innlent Munda fallbyssurnar við landamærin Erlent Fleiri fréttir Íslendingar losa meira en Evrópubúar í langflestu Sýna sögulega þingfestingu í öðrum sal Braut kynferðislega á fatlaðri stjúpdóttur sinni Golfarar reynt að borga sig fram fyrir biðlistana Rannsaka komu mögulegra launmorðingja hingað til lands Breytir verkefnastofu í ráðuneytisstofnun Google gerir athugasemdir við frumvarp Ingu Saslauskas og Sodys stálu 100 milljónum: Gucci-taska, dýrar dúnúlpur og 68 vitorðsmenn Heimsending sögð ógn við lýðheilsu en þjónusta þegar ríkið á í hlut Gefa út öryggisviðvörun vegna mótmæla Grunuðum ofbeldismönnum vísað frá landinu og lestarslys á Spáni Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Löggæsluáætlun næstu fimm ára kynnt á löggæsluþingi Bein útsending: Loftslagsdagurinn 2026 - Loftslagsbreytingar og öryggi Telur starfsmenn hæfa til að meta stjórnsýslu yfirmanns síns Kattahland og skítur á gólfum og upp eftir veggjum Afkomendur síðasta böðuls á Íslandi búa enn á Illugastöðum Haft áhrif með því að „standa í lappirnar gagnvart tæknirisunum“ Hildi og Inga Þór sagt upp „Skorið niður til þess eins að skera niður“ Engar vísbendingar fundist en formlegri leit lokið Sveinn R. Eyjólfsson er látinn Féll úr stiga í vinnunni og hlaut höfuðhögg „Ég geri ekki athugasemd við það að þetta símtal hafi átt sér stað“ Ekkert bendi til þess að eldgosahrinunni sé að ljúka „Galin vinnubrögð“ Þyrlan kölluð til: Maðurinn fannst heill á húfi „Hrikalegt högg“ Engin ástæða til að hamla för Portúgalsfarans lengur „Fyrst og fremst erfitt“ Sjá meira
Hnífjafnt í nýrri könnun Ný könnun Gallup sem gerð er fyrir Áfram Ísland-hreyfinguna leiðir í ljós að kjósendur skiptast í tvær jafnar fylkingar þegar spurt er um afstöðu þeirra í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu. Átta prósent segjast óákveðin en 46 prósent eru síðan á sitt hvorri hliðinni, já og nei. 5. ágúst 2026 22:10
Velti allt á því hverjir mæti á kjörstað Miðað við nýjustu kannanir bendir allt til þess að þátttakan sjálf muni skipta mestu máli í komandi þjóðaratkvæðagreiðslum að mati prófessors í stjórnmálafræði. Yngra fólk hallist meira að já-inu en sé sömuleiðis talið ólíklegra til að mæta á kjörstað. 15. ágúst 2026 12:01
Enginn marktækur munur á jáurum og neiurum Ekki er marktæktur munur á jáurum og neiurum samkvæmt nýjum þjóðarpúlsi Gallup sem gefinn var út nú í dag. Ögn fleiri eru hlynnt áframhaldandi viðræðum en munurinn er tölfræðilega minniháttar. 14. ágúst 2026 18:33
Forskot Já-hliðarinnar mælist minna Forskot Já-hliðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslunni um aðildarviðræður við Evrópusambandið mælist 4,4 prósentustig í nýrri könnun Maskínu. Það mældist 6,2 prósentustig í júní. Breytingin er þó innan skekkjumarka. 13. ágúst 2026 18:31