Elkem segir tollfrelsi geta skilað 350 milljónum á ári Birgir Olgeirsson skrifar 24. ágúst 2026 16:19 Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir tollfrelsið geta bætt afkomuna um allt að 350 milljónir króna á ári en varar við óvissu vegna tíðra breytinga á tollastefnu Bandaríkjastjórnar. Elkem Elkem áætlar að núverandi tollakjör í Bandaríkjunum geti bætt afkomu verksmiðjunnar á Grundartanga um 300 til 350 milljónir króna á ári. Íslenskt kísiljárn, sjávarafurðir og eldisafurðir eru nú tollfrjálsar á Bandaríkjamarkaði á meðan vörur frá nokkrum helstu samkeppnisríkjum bera viðbótartolla.
Tímabundinn tíu prósenta viðbótartollur Bandaríkjanna rann út 24. júlí. Álfheiður Ágústsdóttir, forstjóri Elkem á Íslandi, segir verksmiðjuna nú aftur í sömu stöðu og áður en umfangsmiklar tollabreytingar hófust í Bandaríkjunum. Munurinn sé sá að vörur frá mörgum helstu samkeppnisríkjum beri áfram viðbótartolla. „Það sem er kannski ólíkt núna er að nú stöndum við með 0% tolla á meðan til að mynda Noregur er með 12,5% og Bretland og ESB með 10%,“ segir Álfheiður. Hún segir áhrifin á rekstur verksmiðjunnar veruleg. „Miðað við núverandi útflutning þá er þetta 300 til 350 milljónir,“ segir Álfheiður og segir upphæðina skila sér í bættri afkomu af sölu til Bandaríkjanna. Tollkjörin geti einnig skapað færi á aukinni sölu vestur um haf. „Þetta svo sannarlega opnar á tækifæri til þess,“ segir Álfheiður. Hún setur þó fyrirvara við hversu lengi núverandi staða haldist. Tollastefna Bandaríkjanna hafi breyst ört og pólitísk óvissa hafi áhrif á ákvarðanir fyrirtækja um sölu og markaði. Kvótar takmarka sölu til Evrópu Staðan er önnur gagnvart Evrópusambandinu. Þar tóku verndarráðstafanir á innflutningi kísiljárns gildi í nóvember og ná þær einnig til Íslands. Ákveðið magn má flytja tollfrjálst inn á hverju tímabili. Umfram það getur lagst breytilegur tollur á vöruna ef innflutningsverðið er undir viðmiði sambandsins. „Við í rauninni erum bara að selja upp að því hámarki sem okkur er leyft í hverjum ársfjórðungi og svo erum við að sækja inn á aðra markaði,“ segir Álfheiður. Sjávarafurðir einnig tollfrjálsar Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi staðfesta í svari við fyrirspurn Vísis að íslenskar sjávarafurðir og eldisafurðir séu nú fluttar tollfrjálst til Bandaríkjanna. Samtökin telja að staðan geti styrkt samkeppnisstöðu íslenskra afurða þar sem vörur frá Noregi, Bretlandi og Evrópusambandinu bera nú viðbótartolla. Utanríkisráðuneytið staðfestir einnig að núll prósenta tollur gildi áfram um íslenskar sjávarafurðir og kísiljárn. Álvörur sæta hins vegar áfram sérstökum þjóðaröryggistollum sem Bandaríkin leggja á slíkar vörur frá öllum ríkjum. Vara við örum breytingum Utanríkisráðuneytið segir Ísland nú standa betur að vígi á Bandaríkjamarkaði en mörg helstu nágrannaríki og samkeppnisríki. Staðan geti þó breyst hratt. „Þetta umhverfi er hins vegar síbreytilegt og tollastefna núverandi stjórnvalda í Bandaríkjunum óútreiknanleg,“ segir í svari ráðuneytisins. Þar er meðal annars vísað til nýjustu vendinga í samskiptum Bandaríkjanna og Kanada. Eins og Vísir greindi frá slitnaði nýlega upp úr tollaviðræðum ríkjanna. Bandaríkin lögðu í kjölfarið tolla á ýmsar kanadískar vörur og kanadísk stjórnvöld hafa boðað sambærileg viðbrögð. Ráðuneytið segir Ísland hafa verið ýmist í betri, sambærilegri eða verri stöðu en helstu samkeppnisríki frá því núverandi Bandaríkjastjórn tók við. Því sé fylgst náið með þróuninni og íslenskum hagsmunum komið á framfæri við bandarísk stjórnvöld þegar tilefni sé til.
Skattar, tollar og gjöld Stóriðja Evrópusambandið Bandaríkin Donald Trump Mest lesið „Ég stend hins vegar föst á mínu, enda sofna ég alltaf á mig“ Atvinnulíf Svipmyndir úr Hörpu: Framúrskarandi fyrirtækjum fagnað Framúrskarandi fyrirtæki Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Viðskipti innlent Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Viðskipti innlent Klakki, áður Exista, gjaldþrota Viðskipti innlent Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Viðskipti innlent Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Viðskipti innlent Náðu að halda kaupunum leyndum Viðskipti innlent Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Viðskipti innlent Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Viðskipti innlent Fleiri fréttir Nýttu hagnaðinn í styrki fyrir íþróttastarfsemi Mega kaupa Öryggismiðstöðina og Opin kerfi Bláa lónið á markað í nóvember Klakki, áður Exista, gjaldþrota Hótelævintýri lauk með gjaldþrotum upp á milljarð Getur ekki lengur orða bundist Hefja viðræður um sölu Blikastaðalandsins Bein útsending: Hátæknibrennsla á Íslandi Gangast í ábyrgð fyrir 3,4 milljarða króna láni Ráðin mannauðsstjóri Advania Tekjur Nova í hæstu hæðum Live verður Lifa Treble hlaut Nýsköpunarverðlaunin Hagnast um 33 milljarða en sjá viðvörunarljós Náðu að halda kaupunum leyndum Aukinn vaxtamunur og hagnaður upp á tæpa 22 milljarða Bein útsending: Nýsköpunarþing 2026 - Tækifæri og áskoranir á landsbyggðinni Eina landið í Vestur-Evrópu þar sem verðbólga eykst ekki „Ísland er demanturinn í kórónunni í okkar félagi“ Verðbólga stendur í stað Boðar samtök sendla eftir fýlufund með Wolt: „Og það verður stórt verkfall“ TAP flýgur milli Keflavíkur og Lissabon Birta gott uppgjör og hnýta í ríkisstjórnina Spænskt félag kaupir Samskip Sorpa lætur sautján róa Til skoðunar að ÁTVR bjóði upp á heimsendingu Guðný Helga tekur við af Haraldi Greiða hundruð milljóna króna sekt Bein útsending: Umhverfisdagur atvinnulífsins Ragnheiður tekur við af Páli hjá Keahótelum Sjá meira