Fimm ríki fordæma nýjar landtökubyggðir á Vesturbakkanum Sigurgeir Þorkelsson skrifar 21. ágúst 2026 00:09 Palestínsk kona snýr hér til baka á heimili sitt eftir eftir að ísraelskt landtökufólk hafði kveikt í því. Myndin var tekin í gær á Vesturbakkanum sunnanverðum, nærri Hebron. Getty/Wisam Hashlamoun Ríkisstjórnir Bretlands, Frakklands, Þýskalands, Ítalíu og Kanada fordæma fyrirhugaðar landtökubyggðir Ísraelsmanna á hernumdum svæðum á Vesturbakkanum svokallaða, svæði sem tilheyrir Palestínu. Húsnæðismálaráðuneyti Ísraels gaf í fyrradag út útboðsgögn fyrir 1200 ný heimili á hernumdu svæði.
Í yfirlýsingu ríkjanna fimm eru áætlanir Ísraelsríkis sagðar óásættanlegar og þess krafist að ákvörðunin verði dregin til baka hið snarasta. Segja þau að fyrirætlanirnar grafi undan öllum áætlunum um frið og grafi undan stöðu Ísraels á alþjóðavettvangi. Aðalritari Sameinuðu þjóðanna, Antonio Guterres, gaf einnig út yfirlýsingu þar sem hann sagði fyrirætlanirnar ógn við samfellt, samhangandi Palestínuríki. Þá gaf utanríkisráðherra Belgíu einnig út yfirlýsingu vegna málsins. Landtaka Ísraelsmanna á palestínskum landsvæðum er ólögleg samkvæmt alþjóðalögum. Ísraelsk stjórnvöld höfðu, sökum þrýstings alþjóðasamfélagsins, haldið sig frá landtöku á hinu svokallaða E1-svæði áratugum saman. Kortið sýnir legu E1-svæðisins. OCHA Lykilstaðsetning svæðisins, milli Austur-Jerúsalem og Vesturbakkans, mun gera ísraelskum stjórnvöldum kleift að reka fleyg í yfirráðasvæði Palestínumanna og aðskilja byggðir þeirra í norðri og suðri á Vesturbakkanum. Vilja gera úti um tveggja ríkja lausnina Fyrirætlanir ríkisstjórnar Ísraels um landtökubyggðir á svæðinu voru fyrst kynntar í ágúst 2025. Við tilefnið sagði einn leiðtoga ríkisstjórnarinnar, fjármálaráðherrann Bezalel Smotrich, að með þessum aðgerðum mætti „grafa“ allar fyrirætlanir um tveggja ríkja lausn á deilu Ísraels og Palestínu. Í sérstakri athöfn mánuðinn eftir, þar sem áætlunin var kynnt og undirrituð, sagði Benjamín Netanyahu forsætisráðherra: „Það verður ekkert palestínskt ríki! Svæðið er okkar.“ Prime Minister Benjamin Netanyahu, this evening, at the signing ceremony for the roof agreement in Maale Adumim:"There will be no Palestinian state! This place is ours."https://t.co/U3T7t1TTax pic.twitter.com/OwnTi2eADb— Prime Minister of Israel (@IsraeliPM) September 11, 2025 Áætlunin hljóðaði upp á 3400 íbúðir og hafa nú verið gefin út útboðsgögn fyrir 1200 þeirra. Útboðsfrestur rennur út 19. október, átta dögum áður en gengið verður til þingkosninga í Ísrael. Mannréttindasamtök fordæma Mannréttindasamtökin Human Rights Watch hafa fordæmt ákvörðunina og segja hana áfram ýta undir aðskilnaðarstefnu (e. Apartheid) ísraelskra stjórnvalda. Þau fyrirtæki sem taki þátt í útborðsferlinu geri sig þar með samsek mannréttindabrotum, stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni, segir í yfirlýsingu samtakanna en uppbygging á svæðinu felur meðal annars í sér uppbyggingu vega, verslana og iðnaðarsvæðis auk húsnæðisuppbyggingarinnar. Ofbeldi landtökufólks hefur farið vaxandi síðustu ár, segir Human Rights Watch. Getty/Wisam Hashlamoun Samtökin segjast hafa orðið vör við aukið ofbeldi ísraelsks landtökufólks á hendur Palestínumönnum frá því að núverandi ríkisstjórn tók við völdum árið 2022. Þá sýni skráning samtakanna aukinn hraða í útbreiðslu landtökubyggðanna og slíkt hið sama geri skýrsla á vegum Sameinuðu þjóðanna sem kom út í upphafi árs.
Ísrael Palestína Átök í Ísrael og Palestínu Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Fleiri fréttir Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Sjá meira