Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Kjartan Kjartansson skrifar 18. ágúst 2026 11:33 Anne Sibert sem sat í peningastefnunefnd á árunum eftir bankahrunið segir ekkert vit fyrir Íslendinga að halda úti eigin gjaldmiðli. Vísir Breskur hagfræðiprófessor sem sat í peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands eftir hrun segir Ísland eiga heima í evrusvæðinu. Upptaka evru geti aukið stöðugleika og gerði það afar ólíklegt að hrun eins og það sem varð árið 2008 endurtæki sig.
Þetta skrifar Anne C. Sibert, heiðursprófessor í hagfræði við Birkbeck College í London í grein á vefsíðunni Project Syndicate ásamt eiginmanni sínum, Willem H. Buiter, fyrrverandi aðaðhagfræðingi Citibank og fulltrúa í peningastefnunefnd enska seðlabankans. Sibert var skipuð í peningastefnunefnd Seðlabankans árið 2009, rúmu hálfu ári eftir hrun íslensku bankanna, og sat í henni til 2012. Helsti kosturinn við að skipta yfir í evru er að mati Sibert og Buiter aukinn fjármálastöðugleiki. Það sé lykilatriði fyrir seðlabanka því áföll og óvissa geri þeim ómögulegt að ná markmiðum í peningastefnu sinni. Sibert og Buiter segja efnahagssveiflur og óvissu gera seðlabanka með eigin gjaldmiðil nær ómögulegt að ná markmiðum peningastefnu sinnar.Vísir/Vilhelm Seðlabanki Íslands hafi getað verið lánveitandi til þrautavara en aðeins í íslenskum krónum. Þannig hafi hann verið máttlaus þegar bankarnir hrundu árið 2008 en langstærsti hluti eigna þeirra og skulda voru í erlendri mynt. Vandamálið sé ekki horfið þó að íslenska bankakerfið hafi skroppið saman eftir hrunið. Eignir þess séu nú um 127 prósent af vergri landsframleiðslu Íslands. Engin gjaldeyrishöft séu við lýði og bankarnir hafi verulegar skuldbindingar í erlendri mynt. „Ef Ísland gengur í evrusvæðið getu evrukerfið virkað sem lánveitandi til þrautavara og komið í veg fyrir aðra kreppu. Fyrir land sem er með bankakerfið með alþjóðlega starfsemi gæti þetta eitt verið næg ástæða til þess að ganga í ESB,“ skrifa hagfræðingarnir. Peningastefna evrusvæðisins henti ekki endilega en Ísland gæti aðlagast Á meðal ókosta við evruna fyrir Íslendinga segja þau Sibert og Buiter að þeir gætu ekki lengur mótað eigin peningastefnu eða notað gengissveiflur til sveiflujöfnunar. Ekki sé víst að almenn peningastefna evrusvæðiðsins henti Íslandi ef þau vandamál sem landið stendur frammi eru ekki þau sömu og á evrusvæðinu í heild. Greinarhöfundarnir benda aftur á móti á að efnahagsáföll séu þó ekki óháð gengi gjaldmiðilsins. Evruaðild gæti dregið úr áföllum vegna efnahagslegs óstöðugleika. Þannig gæti kostnaður við aðild að evrusvæðinu verið minni en áður hefur verið reiknað með. Kostnaður við evruaðild gæti orðið minni fyrir Ísland en áður var talið, að mati hagfræðinganna tveggja.Vísir/EPA Vísa þau í skýrslu íslenska fjármálaráðuneytisins þar sem sagði að þó að krónan gagnaðist vel til þess að jafna efnahagssveiflur eins og eftir hrunið þó hefði evran mögulega komið í veg fyrir að það ætti sér stað til þess að byrja með. „Ef Ísland tekur upp evru gæti hagkerfi þess smám saman orðið sveigjanlegra og líkara evrusvæðinu og hægt yrði að milda áhrif framtíðarsveiflna,“ skrifa þau Sibert og Buiter. Ekkert vit í eigin gjaldmiðli Sjálfstæður gjaldmiðill gæti frekar verið orsök efnahagsáfalla og magnað þau upp en sveiflujöfnunartæki. Lítil hagkerfi geti lítið gert til þess að verja sig fyrir bólum og spákaupmennsku. Höfundarnir benda á að Danmörk og Svíþjóð, sem héldu í eigin gjaldmiðil eftir að þau gengu í ESB, séu mun fjölmennari og með margfalda þjóðarframleiðslu Íslands. „Hvað sem öðrum kostum sem Evrópusambandsaðild gæti haft í för með sér líður ættu Íslendingar að sætta sig við að það sé ekkert vit í því efnahagslega fyrir smáríki eins og þeirra að halda úti í eigin gjaldmiðli“.
Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Evrópusambandið Íslenska krónan Hrunið Mest lesið Ástandið minni á 2007 Neytendur Árni skattakóngur annað árið í röð Viðskipti innlent Íslendingar aldrei eytt eins miklu erlendis Neytendur Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Viðskipti innlent Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Viðskipti innlent Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Viðskipti innlent María Klara til Athygli Viðskipti innlent Strætó fjölgar ferðum vegna haustumferðar Neytendur Tryggðu þér betri sýnileika í gervigreindarleit og hefðbundinni leit Samstarf Sex lausnir sem geta lokað stærstu öryggisgötum fyrirtækisins Samstarf Fleiri fréttir Forstjórarnir sem möluðu gull í fyrra Árni skattakóngur annað árið í röð Sigurður Arnar nýr framkvæmdastjóri hjá Íslandsbanka Upptaka evru gæti dregið úr efnahagssveiflum á Íslandi Bryndís Ósk nýr framkvæmdastjóri Landssambands smábátaeigenda María Klara til Athygli Guðmundur Fertram í nýtt hlutverk hjá Coloplast Flestum líst illa á boðaða hækkun bankaskatts Þorvaldur ráðinn framkvæmdastjóri Matreiðslumeistarar frá Hilton Nordica til Matarstundar Hildur og Jóhann Valur ný í framkvæmdastjórn Bláa lónsins Reynslan sýnt að neytendur séu ekki tilbúnir Auglýsingar FM95BLÖ kostuðu Sýn tvær milljónir Seðlabankinn ætti að halda stýrivöxtum óbreyttum „Hversu langt eiga þau að keyra til að sækja póstinn sinn?“ „Biðin er dýrust“ Fjórðungi minni hagnaður hjá Kviku Spá mestu verðbólgu síðustu tveggja ára Blæs á fullyrðingar um forsendubrest og segir kaupmátt hafa aukist Auglýsa grimmt en vörurnar berast ekki: Myndir þekktra Íslendinga notaðar Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum Ísfélagið eykur verulega við sig í fiskeldinu Íslandsbanki spáir 0,25 prósent hækkun stýrivaxta Gæti gjörbreytt því hvernig fólk kaupir inn Skordýr í dillinu Ekki mótfallin aðildarviðræðum væru samningsmarkmið skýrari Ráðin framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Ísland Duty Free Hvenær á ég að greiða inn á lánið? Paellu-gerðarmenn kveðja Templarasund Sólmyrkvagleraugun víða uppseld Sjá meira