Hemma Gunn-stytta og heitur pottur í 192 milljóna króna raðhúsi Magnús Jochum Pálsson skrifar 18. ágúst 2026 10:59 Húsið er sérlega smart og vel hannað. Snorri Birgir Snorrason matreiðslumeistari og Petra Dís Magnúsdóttir, stofnandi vefhönnunarfyrirtækisins Split Web Design, hafa sett 215 fermetra raðhús sitt að Kjalarlandi 33 í Fossvoginum á sölu. Ýmissa grasa kennir í húsinu og er ásett verð þess 192,5 milljónir.
Um er að ræða 215,4 fermetra pallaraðhús, þar af 20,2 fermetra bílskúr, með fimm svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum auk gestasnyrtingar, stórum suðurgarði og bílastæðum við húsið. Húsið skiptist á fjóra palla. Á efsta palli er stór stofa með arni. Á miðpalli er forstofa, snyrting, opið eldhús og borðstofa. Á neðri palli er gangur, hjónaherbergi, þrjú barnaherbergi og baðherbergi. Á neðsta palli er herbergi, þvottahús, nýlegt baðherbergi og sérinngangur. Stofan er björt og rúmgóð. Eldhúsið er rúmgott með vönduðum tækjum, innbyggðri uppþvottavél og nýlegri marmaraeyju. Stofan er meðfram suðurhlið hússins, björt og með góðri lofthæð og arni. Svalir eru til suðurs og gott útsýni. Húsið hefur verið mikið endurnýjað á síðustu árum. Farið hefur verið í þak, þakrennur og múrviðgerðir á öllu húsinu, auk þess sem ný handrið hafa verið sett upp á svölum og fyrir framan hús. Allir gluggar hafa verið endurnýjaðir auk raflagna og rafmagnstaflna að stórum hluta. Í eldhúsinu er marmaraeyja. Lóðin hefur verið mikið endurbætt. Stór timburverönd hefur verið byggð til suðurs ásamt rúmgóðum geymsluskúr. Á pallinum er heitur pottur, kaldur pottur og útisturta. Skólp- og frárennslislagnir í garði hafa verið endurnýjaðir og svæðið fyrir framan húsið verið endurhannað og snyrt. Athygli vekur að við stigann á leið upp í stofuna er lítil stytta af manni í rykfrakka með hatt og sólgleraugu. Þessi stytta er sambærileg þeirri sem var hluti af leikmyndinni í skemmtiþáttunum á Tali hjá Hemma Gunn sem voru sýndir á Rúv frá 1987 til 1995. Hún fylgir þó sennilega ekki með eigninni. Nánar má lesa um eignina á fasteignavef Vísis og sjá myndir hér að neðan: Húsið er í raðhúsalengju í Löndunum. Garðurinn er sólríkur. Heitur og kaldur pottur og útisturta. Útgengt á pall frá svefnherberginu. Frá stofunni er gengið út á svalir. Stofan er björt. Styttan úr Á tali hjá Hemma Gunn smellpassar við stigann. Víkingur Reykjavík og Michael Jackson. Húsið er vel staðsett í Fossvoginum.
Fasteignamarkaður Hús og heimili Reykjavík Styttur og útilistaverk Mest lesið Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Lífið Diljá Mist á lausu Lífið Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Lífið Hvað veistu um… Nylon? Lífið Sahara Ray látin Lífið Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Lífið Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Lífið Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Lífið Stal senunni í sex milljarða króna brjóstahaldara Tíska og hönnun Richard Riehle látinn Lífið Fleiri fréttir Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Fluttur í annað fangelsi eftir fréttir af lúxuslífi og slagsmálum Sveitadraumurinn breyttist í martröð Drukku brjóstamjólk á brúðkaupsdaginn Fréttatía vikunnar: Mistök, oflæti og vélmenni Þrengt að sjoppum og skemmtistöðum á meðan borgin breytist í eitt stórt hótel Getur ekki lengur troðið upp eða keyrt vegna vatnshöfuðs Saga og Jón bætast í hóp Taskmaster-keppenda „Tárin streymdu niður vangana á mér“ Sjá meira