Neytendur

Inn­kalla Euro Market brauð vegna málmhlutar

Lovísa Arnardóttir skrifar
Brauðið er aðeins selt í einni verslun.
Brauðið er aðeins selt í einni verslun. Aðsend

Lindabakarí ehf. innkallar í samráði við Heilbrigðiseftirlit Garðabæjar, Hafnarfjarðar, Kópavogs, Mosfellsbæjar og Seltjarnarness, (HEF) Euro Market brauð en aðskotahlutur úr málmi fannst í einu brauði af umræddri framleiðslu.

Matvælastofnun varar við neyslu brauðsins en það er aðeins selt í verslunum Euro Market. Þeir sem eiga umrædda vöru ennþá til eru beðnir um að neyta hennar ekki, og farga eða skila í næstu verslun Euro Market gegn endurgreiðslu.

Eingöngu er verið að innkalla eftirfarna framleiðslulotu:

  • Framleiðandi: Lindabakarí ehf.
  • Framleitt fyrir: Verslanir Euro Market
  • Vöruheiti: Euro Market brauð
  • Stirkanúmer: 5906681555776
  • Geymsluþol: S.N. 14.08. 2026
  • Dreifing: Verslanir Euro Market





Fleiri fréttir

Sjá meira


×