Evrópa eða Bandaríkin? Snorri Ásmundsson skrifar 13. ágúst 2026 12:02 Sem stjórnmálaleiðtogi þriggja íslenskra stjórnmálaflokka, Vinstri Hægri Snú, Engla- og Indjánaflokksins og Kattaflokksins, auk þess að vera formannskandídat Sjálfstæðisflokksins, tel ég mér bæði ljúft og skylt að leggja nokkur orð í púkkið um Evrópusambandið. Af hverju ætti ég, ábyrgðarlaus myndlistarmaður sem býr að hálfu leyti í öðru hagkerfi en þjóðin, að vera marktækur í þessari umræðu? Ég veit það ekki. En það hefur sjaldan stöðvað stjórnmálamenn. Ég sé kosti við bæði já og nei. Sjálfstæði smáríkis er verðmætt. Við eigum auðlindir sem við viljum ráða yfir og það er fullkomlega eðlilegt að spyrja hversu mikið vald við viljum færa frá Reykjavík til Brussel. En Ísland er líka evrópskt ríki sem tekur nú þegar upp stóran hluta evrópsks regluverks. Við erum svolítið eins og maður sem neitar að ganga í húsfélagið en fylgir samt húsreglunum. Þá vaknar stóra spurningin: Eigum við að halla okkur að Evrópu eða eigum við að halla okkur að Bandaríkjunum? Bandaríkin eru mikilvægur bandamaður. Evrópa er okkar efnahagslega og menningarlega nærumhverfi. Atlantshafið hverfur ekki þótt við kjósum um það. Aðildarviðræður eru heldur ekki aðild. Við getum komist að því hvaða samningur stendur Íslandi til boða, skoðað sjávarútveginn, landbúnaðinn, gjaldmiðilinn, fullveldið og viðskiptin og síðan tekið ákvörðun. Ef pakkinn er góður, segjum já. Ef hann er vondur, segjum nei. Ef við vitum ekki hvað er í pakkanum væri kannski ráð að opna hann áður en við byrjum að öskra á hvort annað. En svo er auðvitað eitt atriði sem hagfræðingar, stjórnmálafræðingar og aðrir svokallaðir sérfræðingar virðast kerfisbundið hafa útilokað úr umræðunni: Konurnar. Evrópskar konur eru einfaldlega fallegri og meira sexý en bandarískar kellingar. Franskar konur! Guð minn góður. Og íslenskar stelpur? Margar hverjar geðveikislega sætar, sexý og þokkafullar. Mér finnst íslenskar konur miklu evrópskari en bandarískar beljur, meiri stíll, meiri þokki, meiri losti og miklu æstari þegar rétt er farið að þeim. Ég geri mér grein fyrir því að þetta telst líklega ekki fullnægjandi þjóðhagsleg greining. En maður verður einhvers staðar að taka afstöðu. Ég hallast að Evrópu. Höfundur er myndlistarmaður, stjórnmálaleiðtogi Vinstri Hægri Snú, Engla- og Indjánaflokksins og Kattaflokksins og formannskandídat Sjálfstæðisflokksins. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Snorri Ásmundsson Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Skoðun Skoðun Í hvaða vitleysu erum við stödd? Ragnheiður Stephensen skrifar Skoðun Skattlagning til velsældar Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Baráttan er ekki búin Mordekaí Elí Esrason skrifar Skoðun Hver á arfinn? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Að tala um dauðann er að tala um lífið Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Til hamingju Reykjanesbær með leikskólana okkar Guðný Birna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skuggamansal á Íslandi Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Grateful Dead á Sæbrautinni Júlíus Valsson skrifar Skoðun Þjóðarsjúkrahúsið seinkar Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Sjá meira
Sem stjórnmálaleiðtogi þriggja íslenskra stjórnmálaflokka, Vinstri Hægri Snú, Engla- og Indjánaflokksins og Kattaflokksins, auk þess að vera formannskandídat Sjálfstæðisflokksins, tel ég mér bæði ljúft og skylt að leggja nokkur orð í púkkið um Evrópusambandið. Af hverju ætti ég, ábyrgðarlaus myndlistarmaður sem býr að hálfu leyti í öðru hagkerfi en þjóðin, að vera marktækur í þessari umræðu? Ég veit það ekki. En það hefur sjaldan stöðvað stjórnmálamenn. Ég sé kosti við bæði já og nei. Sjálfstæði smáríkis er verðmætt. Við eigum auðlindir sem við viljum ráða yfir og það er fullkomlega eðlilegt að spyrja hversu mikið vald við viljum færa frá Reykjavík til Brussel. En Ísland er líka evrópskt ríki sem tekur nú þegar upp stóran hluta evrópsks regluverks. Við erum svolítið eins og maður sem neitar að ganga í húsfélagið en fylgir samt húsreglunum. Þá vaknar stóra spurningin: Eigum við að halla okkur að Evrópu eða eigum við að halla okkur að Bandaríkjunum? Bandaríkin eru mikilvægur bandamaður. Evrópa er okkar efnahagslega og menningarlega nærumhverfi. Atlantshafið hverfur ekki þótt við kjósum um það. Aðildarviðræður eru heldur ekki aðild. Við getum komist að því hvaða samningur stendur Íslandi til boða, skoðað sjávarútveginn, landbúnaðinn, gjaldmiðilinn, fullveldið og viðskiptin og síðan tekið ákvörðun. Ef pakkinn er góður, segjum já. Ef hann er vondur, segjum nei. Ef við vitum ekki hvað er í pakkanum væri kannski ráð að opna hann áður en við byrjum að öskra á hvort annað. En svo er auðvitað eitt atriði sem hagfræðingar, stjórnmálafræðingar og aðrir svokallaðir sérfræðingar virðast kerfisbundið hafa útilokað úr umræðunni: Konurnar. Evrópskar konur eru einfaldlega fallegri og meira sexý en bandarískar kellingar. Franskar konur! Guð minn góður. Og íslenskar stelpur? Margar hverjar geðveikislega sætar, sexý og þokkafullar. Mér finnst íslenskar konur miklu evrópskari en bandarískar beljur, meiri stíll, meiri þokki, meiri losti og miklu æstari þegar rétt er farið að þeim. Ég geri mér grein fyrir því að þetta telst líklega ekki fullnægjandi þjóðhagsleg greining. En maður verður einhvers staðar að taka afstöðu. Ég hallast að Evrópu. Höfundur er myndlistarmaður, stjórnmálaleiðtogi Vinstri Hægri Snú, Engla- og Indjánaflokksins og Kattaflokksins og formannskandídat Sjálfstæðisflokksins.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar