Viðskipti innlent

Skúli Hrafn tekur við Íslandssjóðum

Árni Sæberg skrifar
Skúli Hrafn Harðarson tekur við starfi framkvæmdastjóra Íslandssjóða í lok september.
Skúli Hrafn Harðarson tekur við starfi framkvæmdastjóra Íslandssjóða í lok september. Íslandsbanki

Skúli Hrafn Harðarson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Íslandssjóða, dótturfélags Íslandsbanka. Hann hefur starfað við eigna- og sjóðastýringu á íslenskum fjármálamarkaði frá árinu 2007.

Í fréttatilkynningu þess efnis segir að Skúli Hrafn komi til Íslandssjóða frá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins (LSR), þar sem hann hafi frá árinu 2022 gegnt starfi sjóðstjóra innlendra verðbréfa hjá stærsta lífeyrissjóði landsins.

Áður hafi Skúli Hrafn starfað hjá Kviku eignastýringu á árunum 2015 til 2022, þar sem hann hafi leitt meðal annars hlutabréfastýringu félagsins og verið í forsvari fyrir fagfjárfestasjóði. Þar á undan hafi hann verið forstöðumaður eigin viðskipta hjá MP banka og hafið feril sinn hjá Saga Capital fjárfestingarbanka árið 2007. Skúli Hrafn hafi jafnframt setið í fjárfestinga- og hagsmunaráðum ýmissa rekstrarfélaga.

Skúli Hrafn hafi lokið námi í hagfræði með lögfræði sem aukafag frá Háskóla Íslands árið 2007 og hlotið löggildingu í verðbréfamiðlun árið 2011. Hann muni hefja störf hjá Íslandssjóðum í lok september.

„Hjá Íslandssjóðum starfar öflugt teymi með mikla reynslu og skýran metnað til að sækja fram á íslenskum sjóðastýringarmarkaði. Á þeirri vegferð er mikill styrkur fólginn í því að þekkja markaðinn frá báðum hliðum. Skúli Hrafn kemur til okkar frá einum stærsta fjárfesti landsins og býr því yfir djúpum skilningi á sjónarmiðum fagfjárfesta og þeim kröfum sem þeir gera til öflugrar sjóðastýringar. Sú reynsla, ásamt þeim sterka grunni sem þegar er til staðar hjá Íslandssjóðum, styrkir stöðu okkar til að sækja enn frekar fram. Við hlökkum mikið til samstarfsins og þess að byggja áfram upp Íslandssjóði með Skúla Hrafn í brúnni,“ er haft eftir Sylvíu Kristínu Ólafsdóttur, stjórnarformanni Íslandssjóða.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×