Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Aron Guðmundsson skrifar 9. ágúst 2026 12:25 Hallgrímur Jónasson er þjálfari KA sem mætir FH í fallbaráttuslag Bestu deildarinnar í kvöld Vísir KA tekur á móti FH í fallbaráttuslag Bestu deildarinnar í kvöld. Þjálfari KA, Hallgrímur Jónasson, gefur lítið fyrir gagnrýni á vinnuframlag leikmanna liðsins og þó hann finni fyrir tali um starfsöryggi sett hefur Hallgrímur fulla trú að því að hann sé maðurinn til að snúa gengi KA við. „
Þetta verður alvöru fallbaráttuslagur sem leggst bara mjög vel í mig,“ segir Hallgrímur í samtali við Vísi. „Það er augljóst mál að leikurinn er mikilvægur, staðan í deildinni er þannig að það er aðeins eitt stig á milli þessara liða. Þetta er ótrúlega jafnt og við þurfum að fara fá fleiri stig. Það er alveg á hreinu að við förum inn í þennan leik og ætlum að gefa okkur alla í þetta til þess að vinna hann.“ KA kemur inn í leikinn eftir að hafa fengið skell gegn Keflavík á útivelli í síðustu umferð. Lokatölur þar 3-0 Keflavík í vil. KA-menn í tíunda sætinu og aðeins einu stigi frá botni deildarinnar verða að fara slá frá sér. „Alltaf þegar að maður tapar 3-0 þá er það erfitt í einn dag og svo leggur maður það til hliðar og einbeitir sér að næsta verkefni. Það er það stutt á milli leikja. Það tók ekkert langan tíma að jafna sig á því en hárrétt að það hafi ekki verið gaman að fara til Keflavíkur og tapa 3-0. Það verður ekkert erfitt að rífa menn upp úr þessu. Stemningin á æfingum í vikunni er búin að vera frábær. Ég hef tekið rúntinn á milli leikmanna og spjallað við þá. Það eru allir gíraðir í því að gera þetta saman. Við vitum hvað þarf til. Við höfum verið í þessari baráttu áður og ætlum að halda hausnum og hugarfarinu á réttum stað. Þá mun þetta snúast við fyrir okkur. Við vitum að gæðin eru til staðar. Við höfum lent í ýmsum áföllum en höfðum ekki tapað leik í síðustu þremur fyrir leikinn gegn Keflavík. Mér finnst þetta á leið í rétta átt hjá okkur en það er stutt á milli í fótbolta. Ef við mætum ekki hundrað prósent í kvöld þá getur þetta orðið erfitt fyrir okkur. Ef við leggjum okkur hundrað prósent fram þá eigum við góðan möguleika.“ „Bara algjört bull“ Í Stúkunni, uppgjörsþætti Bestu deildarinnar á Sýn Sport, gagnrýndi sérfræðingur þáttarins Albert Brynjar Ingason vinnuframlag leikmanna KA í leiknum gegn Keflavík. Hallgrímur gefur lítið fyrir þá gagnrýni. „Það er bara eitthvað bull. Ég svo sem sá ekki þáttinn en er ekki sammála. Við höfum verið að ströggla með jafnvægið í liðinu. Höfum lent í meiðslum og fleiru. Ungir strákar að taka sín fyrstu skref í því að fá stórt hlutverk. Ef þú kíkir yfir tímabilið þá eru ekki margir leikir þar sem að þú getur sett út á hugarfarið hjá okkur. Þessir tapleikir eru flestir með einu marki, stutt á milli. Það hafa tvö lögleg mörk verið dæmd af okkur í leikjum þar sem að við töpum með einu marki og það er alls konar búið að gerast. Höfum tapað á móti Víkingi Reykjavík á 94.mínútu. Ef ég væri að tapa öllum leikjum 3-0, 4-0 eða 5-0 þá hefði ég mun meiri áhyggjur. Ég hef ekkert út á vinnuframlag strákanna að setja. Við þurfum að verða betra lið inn á vellinum, styrkja hvorn annan í þessari stöðu sem við erum í. Vinna saman og tala um hlutina. Það er það sem mun koma okkur úr þessari stöðu. Það sem Albert Brynjar er að segja er bara algjört bull.“ Orðið var við umræðuna Í þeirri stöðu sem KA er í er kannski óumflýjanlegt að af stað fari umræða um stöðu þjálfarans. Hallgrímur hefur fundið fyrir slíkri umræðu hvað sjálfan sig varðar. „Já ég finn það alveg. Fólk er að sjálfsögðu að tala um þetta og á tímabili í fyrra líka. Ég skil það bara vel. Ég get bara lofað þér því að bæði ég og stjórn deildarinnar erum að leggja okkur hundrað prósent fram í því að snúa gengi liðsins við. Mér finnst fólk vera á bakvið okkur í þeirri vinnu. Bara sem dæmi nefni ég að þegar við vorum þremur mörkum undir í Keflavík þá voru um 60 stuðningsmenn KA mættir á leikinn klappandi og syngjandi áfram KA. Það segir svolítið mikið um stöðuna. Fólkið styður við bakið okkur. Á bakvið leikmennina. En einhver komment og svona sem maður hefur heyrt af. Ég skil fólk vel. Við viljum vera í annarri stöðu. Það er hundrað prósent. Það eru allir sem vilja vera ofar í töflunni en við erum bara í þessu saman og höfum verið það síðustu ár. Ég vil bara minna fólk á hvað KA hefur gert síðustu árin. Eitthvað sem hafði ekki gerst áður í sögunni. Fara í Evrópukeppni, verða bikarmeistarar, fara tvisvar sinnum í bikarúrslit. Það hefur gengið rosalega vel. Núna þurfum við á stuðningi að halda. Ég finn það á fólkinu sem ég hitti bæði út í bæ sem og upp í KA-heimili, ég er að fá skilaboð frá fólki. Það eru bara allir einhvern veginn með okkur í þessu. Á meðan það er staðan þá hef ég ekki áhyggjur af þessu.“ „Ég veit hvað þarf til“ Og þú hefur enn óumdeilda trú á sjálfum þér í þessu starfi? „Já ég hef það. Ég hef ekkert breyst frá því ég var kallaður taktískur snillingur hér fyrir nokkrum árum og nú er einhver að tala um hvort ég verði rekinn. Ég bara legg mig fram, geri mitt. Ég hef verði lengi í þessari deild sem þjálfari og leikmaður. Ég veit hvað þarf til. Ég hef mikla trú á sjálfum mér, hef trú á strákunum og það sem meira er hef ég trú á því að við getum snúið þessu við. Það er oft erfitt. Þegar að við snerum þessu við fyrir tveimur árum síðan komu þjálfarar til mín og sögðu mér að það reyni á þjálfara þegar það gengur illa, erfitt að snúa hlutunum við og bara vel gert að hafa gert það. Ég hef gert þetta áður, ætla mér að gera það aftur. Mér þykir virkilega vænt um þetta félag og vill því alls hins besta. Ætla mér að snúa þessu við saman með leikmönnum, stjórn og stuðningsmönnum liðsins.“
Besta deild karla KA FH Mest lesið Kristján hafði betur gegn Fjallinu og er sterkasti maður Íslands Sport Willum mættur fyrstur upp á spítala alla daga Sport Í hóp lufsulegra lánsmanna Liverpool Enski boltinn Höfuðhöggin á ferlinum valdi heilabilun Sport Mætti þrátt fyrir ráð um annað í skugga ásakana Enski boltinn 16 ára setti vallarmet á Íslandsmótinu Golf Var launahæstur í sögunni í tvo daga Sport Ellefu ensk lið í eldlínunni víðsvegar um heim Enski boltinn Aðför að forsetanum segir FIFA í harðorðri yfirlýsingu Fótbolti Dagskráin í dag: Mansfield og Messa á sunnudegi Sport Fleiri fréttir Hefur enn trú á sjálfum sér: „Finnst fólkið vera á bakvið okkur“ Framherjaleit Breiðabliks lokið Þrótti mistókst að fara á toppinn Erlingur Agnars í FH Sjáðu fernu Emmu og gífurlega mikilvægt mark Vals Martraðardvöl Blika: „Tekið á andlega og líkamlega“ Afturelding á toppinn eftir stórsigur og tap Fylkis Uppgjörið: Valur-Víkingur 1-0 | Fyrsti sigur Vals síðan 25. maí „Var bara eitthvað með hann ógeðslega lengi og svo bara skoraði ég“ Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík-ÍBV 4-2 | Draumahálfleikur Emmu kláraði ÍBV Uppgjörið: Þór/KA-Fram 2-0 | Ungi miðvörðurinn hetja norðankvenna Víkingar kaupa Hrannar Snæ frá Noregi Valur í brekku: „Ýtum öllu sem er í gangi til hliðar“ Markvörður Breiðabliks spilaði sem útileikmaður Uppgjörið: Stjarnan - Þróttur 1-1 | Sanngjarnt jafntefli Óskar Smári: „Óþolandi að vinna ekki heima“ Tveir erlendir leikmenn yfirgefa Keflavík Ekki sammála Lárusi þá og ekki núna: „Þetta er bara heimskulegt“ Líkti frammistöðu KA við tíma sinn í Mjólkursamsölunni Tekur skóna af hillunni til að hjálpa Þrótti Sjáðu kveðjumark Kjartans Kára fyrir FH og Keflavík klára KA á níu mínútum „Leik eftir leik mæta þeir til leiks með núll ákefð, núll hjarta og ekkert hungur“ Kjartan Kári á leiðinni í Víking Uppgjörið: FH - KR 1-1 | Ótrúlegt að KR hafi ekki unnið „Það er skellur“ Uppgjörið: Keflavík-KA 3-0 | Þrjú mörk á níu mínútum kláraði KA Sjáðu markið sem lyfti Þór af botninum FH fær danskan framherja Spenntur að mæta KR í fyrsta sinn „Okkar lang slakasti hálfleikur síðan ég tók við“ Sjá meira