JÁkvæður kvikmyndaframleiðandi Grímar Jónsson skrifar 7. ágúst 2026 15:17 Ég starfa sem kvikmyndaframleiðandi og hef framleitt myndir á borð við Hrúta, Undir Trénu, Héraðið, Northern Comfort og Eldana. Ég hef sérhæft mig í framleiðslu íslenskra mynda í samframleiðslu við kvikmyndaframleiðendur í öðrum Evrópulöndum. Þannig hefur mér tekist að fjármagna þessi verkefni en markaðurinn og styrkjakerfið hér heima er of lítið til að framleiða kvikmyndir af þeim gæðum sem ég og þeir leikstjórar sem ég starfa með viljum gera. Myndirnar sem ég hef framleitt hafa kostað á bilinu 200-800 milljónir króna. Það tekur að meðaltali 5 ár að gera eina mynd og það er því mikið undir í hvert skipti. Heimanmundur frá Kvikmyndasjóði Íslands og endurgreiðslur vegna kvikmyndagerðar gera mér kleift að sækja út fyrir landsteinanna til Evrópu og afla ég yfirleitt um 60% af kostnaði frá evrópskum sjóðum, sjónvarpsstöðvum, dreifingarfyrirtækjum, sölufyrirtækjum og fjárfestum. Meirihluti þess fjármagns sem ég afla er í evrum en minnihlutinn í krónum. Í fjármögnunarferlinu geri ég samninga um greiðslur sem oftast falla til löngu síðar. Vegna óstöðugleika íslensku krónunnar hafa verkefnin mín oftar en ekki mátt þola mikið gjaldeyristap. Tap sem mælist ekki í hundruðum þúsunda heldur milljónum. Lítil og meðalstór íslensk fyrirtæki sem fá erlent fjármagn í rekstur sinn hafa ekki kost á því að tryggja sig gagnvart þessu. Staða okkar er svipuð og hjá lélegum pókerspilara sem tekur bara sénsinn og vonar það besta. Og jafnvel þegar krónan veikist og evrurnar frá útlöndum verða að fleiri krónum fara áætlanir mínar í uppnám. Strangar reglur gilda um hlutfall fjármagns frá hverju og einu ríki og gengið er oft læst í samningum í upphafi. Í stuttu máli er óvissan algjör þegar íslenska krónan er annars vegar. Þegar ég á von á fjármagni í evrum sem koma á til greiðslu þegar myndirnar mínar eru tilbúnar er hægur leikur að fá lánað fyrir þeirri upphæð á sanngjörnum vöxtum frá Evrópu. Þar ríkir mikil samkeppni og margir bankar sem sérhæfa sig í þess konar lánum gagngert fyrir kvikmyndaverkefni. En sömu lánsaðilar líta ekki við íslensku krónunni. Það er engin banki í Evrópu sem vill lána mér fyrir þeim fjárhæðum sem koma til greiðslu frá íslenska ríkinu í íslenskum krónum þegar ég skila inn árituðu uppgjöri við lok framleiðslutímabilsins. Áhættan er að þeirra mati of mikil og lendir því öll á mér og mínu fyrirtæki. Kollegar mínir í Evrópu gapa af undrun þegar ég útskýri fyrir þeim að mér standi til boða að taka lán fyrir fjármagni sem kemur frá íslenska ríkinu á 13,5% vöxtum hjá íslenskum viðskiptabanka. Gjaldeyristap og fjármögnunarkostnaður á einni íslenskri kvikmynd mælist yfirleitt í tugum milljóna og hæst “launaði” aðili verkefnanna minna er oftar en ekki íslenski viðskiptabankinn. Mér líður eins og þetta sé ákveðin birtingarmynd á þeim raunveruleika sem við langflest búum við. Við berum byrðarnar af íslensku krónunni - tökum verðtryggð lán á háum vöxtum eða óverðtryggð lán á enn hærri vöxtum. Nema þau sem aldrei þurfa að taka lán og ekkert skulda. Ég trúi því að þetta þurfi ekki að vera svona. Þó ég sé sjálfur löngu orðinn samdauna þessu ástandi langar mig innilega að komandi kynslóðir búi við betri og fyrirsjáanlegri aðstæður. Ég ætla að segja JÁ í ágúst – og vona enn og aftur það besta. Höfundur er kvikmyndaframleiðandi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Kvikmyndagerð á Íslandi Kvikmyndahús Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar Skoðun Skoðun Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun Þegar sjálfboðaliðar borga með sér Hildur Dís Jónsdóttir skrifar Skoðun Sleggjan fundin Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Að vaxa út úr vandanum Runólfur Ágústsson skrifar Skoðun Tuttugu ár frá brottför varnarliðsins – úr áfalli í uppbyggingu Árni Sigfússon skrifar Skoðun Gefið með annarri hendinni og tekið með hinni Sigrún Ólafsdóttir,Zophonías O. Jónsson skrifar Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar Skoðun SÁÁ er stærra en einstaklingarnir Ólafur Hand skrifar Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun 21% þá – 2% nú Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Við borgum, þeir kosta. Eða hvað? María Rut Ágústsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar
Skoðun Hvers vegna liggur svona mikið á? Um breytingar á námsmati í grunnskólum Sædís Ósk Harðardóttir skrifar
Skoðun Opið bréf til ríkisstjórnar Íslands - Ákall um aðgerðir vegna þjóðarmorðs Halldóra Haraldsdóttir skrifar
Skoðun Festi frystir verð á yfir 600 vörum í baráttunni gegn verðbólgu Ásta S. Fjeldsted,Magnús Kr. Ingason skrifar
Skoðun Meistaravík, Akureyri og nýtt öryggishlutverk á norðurslóðum Njáll Trausti Friðbertsson skrifar